Fréttablaðið - 09.04.2013, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 09.04.2013, Blaðsíða 23
KYNNING − AUGLÝSING Sumardekk & bílar9. APRÍL 2013 ÞRIÐJUDAGUR 7 Arctic Trucks hefur um árabil sér-hæft sig í lausnum fyrir jeppa og ferðalög og býður f lest það sem jeppaeigendur dreymir um. „Hér starfar fólk með mikla reynslu og veit upp á hár hvaða dekk henta hverjum jeppa eða jepp- lingi. Við leggjum gífurlega áherslu á fag- lega þjónustu og ráðgjöf til viðskiptavina. Þeim ætti að vera óhætt að treysta okkar fagfólki,“ segir Steinar Sigurðsson, sölu- stjóri Arctic Trucks. Þótt Arctic Trucks sé þekktast fyrir að þjónusta stóra fjallatrukka er úrval dekkja þar mjög fjölbreytt. „Við erum með virkilega vönduð amerísk heilsárs- dekk frá Dick Cepek fyrir flestar gerðir jeppa og jepplinga sem hafa reynst vel við íslenskar aðstæður. Þau eru hljóðlát, slitsterk, með frábært veggrip. Þau eru auk þess neglanleg og það má míkró- skera þau.“ Fyrir stærri bílana fást einnig dekk frá Dick Cepek í flestum stærðum, en aðals- merki Arctic Trucks er AT405. „Það er 38 tommu dekk, hannað á Íslandi en fram- leitt fyrir Arctic Trucks hjá fjórða stærsta dekkjaframleiðanda Kína. Hönnunin byggir á reynslu íslenskra jeppamanna til fjölda ára.“ Dekkið er fyrir 12-14 tommu breiðar felgur og stendur í 38,1 tommu. Mynstrið er milligróft og stefnu- virkt með opnar rásir fyrir vatn og krapa. „Okkar viðskiptavinir hafa verið einstak- lega ánægðir með þetta dekk sem endur- speglast í vinsældum þess.“ Hjá Arctic Trucks er einnig þjónustu- verkstæði þar sem boðið er upp á ástandsskoðun jeppa og fólksbíla. „Við gerum verðtilboð í viðgerðir, sé þess óskað, í framhaldi af skoðununum. Við tökum vel á móti fólki og á biðstofunni okkar er alltaf heitt á könnunni á meðan viðskiptavinir bíða.“ Miðstöð allra jeppamanna Fagleg þjónusta, sérhæfing og reynsla einkennir alla starfsemi Arctic Trucks. Þar fást sérhönnuð íslensk dekk fyrir alvöru háfjallajeppa og ásamt hágæða amerískum jeppadekkjum í öllum stærðum. Hjá Arctic Trucks starfar fólk með mikla reynslu af þjónustu við jeppa sem veit upp á hár hvað hentar hverjum jeppa, segir sölustjórinn Steinar Sigurðsson. Bílgreinasambandið stendur fyrir stórsýningu á bílum og tækjum í Fífunni í Kópavogi dagana 4.-5. maí næstkomandi. Sýnt verður á 4.000 fermetrum og eru sýnendur öll helstu bílaum- boð landsins ásamt fyrir tækjum sem bjóða vörur og þjónustu sem á einn eða annan hátt tengjast farar- tækjum. Á sýningunni verður að finna nýjustu bílana á markaðnum auk þess sem fjölmargir bílar verða sérstaklega fluttir til landsins í til- efni sýningarinnar. Einnig verður að finna á sýningunni hjólhýsi, fellihýsi, fjármögnunarfélög sem sérhæfa sig í lánveitingum til bíla- og tækjakaupa og olíufélag, auk aðila sem bjóða upp á alls kyns rekstrar vörur sem og menntunar- aðila í bílgreininni. Tíðar bílasýningar árin 1970 til 1984 Bílasýningar á vegum Bílgreina- sambandsins voru algengar á árunum í kringum 1970-1984. Sambandið endurvakti þennan atburð vorið 2011 og komu þá alls um 15.000 gestir á sýninguna. Sýningarnar þá og í ár hafa það fram yfir fyrri sýningar að nú eru ekki einvörðungu sýndar bif- reiðar, heldur einnig nýjungar og tengdar vörur eins og segir hér framar. Ásamt því að geta komið og skoðað það nýjasta á mark- aðnum geta sýningargestir fengið sér hressingu í veit- ingasölu og eflaust fundið sér eitthvað spennandi við hæfi og dáðst að glæsilegum farartækjum, ungir jafnt sem aldnir. Aðgangur að sýningunni er ókeypis og verður hún opin frá 11 til 18 laugardaginn 4. maí og 11 til 16 sunnudaginn 5. maí. Stór bílasýning í maí – Allt á hjólum 2013 Bílasýningar á vegum Bílgreinasambandsins voru algengar á árunum í kringum 1970-1984. Sambandið endurvakti þennan atburð vorið 2011. Bílakaupendur í Bandaríkjunum eru í sífellt meira mæli að átta sig á kostum dísilvéla og kaupa sem aldrei fyrr. Fara þar bílar þýsku fram- leiðendanna fremstir í flokki því sala dísildrifinna bíla frá Audi, BMW, Benz, Porsche og Volkswagen hefur vaxið mjög hratt undan- farið. Skýrir það að stórum hluta söluaukningu þeirra í Bandaríkjun- um. Hafa þessir framleiðendur kynnt marga nýja dísildrifna bíla sína fyrir kaupendum þar vestra og lítil eyðsla þeirra hefur heillað kaup- endur. Telja stjórnendur þýsku framleiðendanna að innan tíðar verði allar þeirra gerðir bíla sem drifnir eru af dísilolíu og boðnar í Evrópu einnig í boði í Bandaríkjunum. Helsta ástæða þess er krafa yfirvalda um lækkun eyðslu og telja þeir að ómögulegt sé að ná þeim kröfum án þess að bjóða dísilbíla. Audi er að kynna bílana A8, A7 og A5 á banda- ríska markaðnum og Porsche einnig Cayenne Diesel. Hjá Volkswagen voru 82% allra seldra Jetta-bíla vestanhafs í fyrra dísildrifin. Vandinn við að kaupa dísilbíl í Bandaríkjunum er þó enn sá að dísilolía er alls ekki seld á öllum eldsneytisstöðvum og það óttast kaupendur. Dísilbílar sækja á vestanhafs Frá bílasýningunni í Fífunni í Kópavogi vorið 2011. Audi A7 er einn þeirra bíla sem boðnir eru í Bandaríkjunum dísil- drifnir. Arctic Trucks | Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | Sími 540 4900 | www.arctictrucks.is Vönduð amerísk heilsársdekk - stærðir 31- 44 tommur - slitsterk - neglanleg - má míkróskera - frábært veggrip Gott verð! Við eigum dekkin undir bílinn þinn og bjóðum upp á alla dekkjaþjónustu. Bjóðum einnig ástandsskoðanir, smurþjónustu og almenna viðgerðarþjónustu. Skjót og góð þjónusta! 38x15,5R15 38 tommu dekk sem er sérstaklega hannað fyrir íslenskar aðstæður. - slitsterkt - endingargott - hljóðlátt - míkróskorið - neglanlegt Dekkja- verkstæði á staðnum. Bjóðum alla almenna dekkja- þjónustu.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.