Fréttablaðið - 09.04.2013, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 09.04.2013, Blaðsíða 16
FÓLK|HEILSA FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs- ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Lukka segir að kannski mætti kalla safakúrinn vorhreingerningu líkamans. „Þegar vorar í lofti klæðir fólk sig öðruvísi og fer þá að hugsa um línurnar. Þá er ágætt að taka sér tak og skipta um gír eftir mikið sykurát um páska. Hægt er að núllstilla líkamann og losna við sykurþörfina,“ útskýrir hún. „Þrjár gerðir eru af safakúrum, litrík hreinsun, en þá er miklu af ávöxtum og grænmeti blandað í drykkina. Síðan græn hreinsun, en sá safi er basískari og getur verið meira krefjandi fyrir fólk sem hefur mikla sykurþörf. Einnig erum við með chia-drykk en í honum eru chia- fræ sem eru ákaflega prótínrík og rík af ómega-3. Chia-fræin eru öflug við að koma meltingunni í lag. Kúrinn stendur í nokkra daga en við mælum með fimm dögum. Á þriðja degi fer fólk að finna fyrir jákvæðum breytingum á meðan fyrstu tveir dagarnir eru erfiðari. Á fjórða og fimmta degi fer fólki síðan að líða mjög vel,“ segir Lukka. „Það kemur fólki yfirleitt á óvart hversu auðvelt það er að fara í svona hreinsun. Þetta er ekki svelti heldur mjög næringarríkur kúr. Sumir telja að þeir verði orkulausir og geti ekki stundað hreyfingu samfara safakúrnum en stað- reyndin er sú að fólk verður orkuríkara. Sumir fá vissulega fráhvarfseinkenni þegar þeir hætta að borða sykur og drekka kaffi. Það gengur yfir á tveimur sólarhringum. Það eru sex gerðir af söfum, hver er hálfur lítri og það er fínn dag- skammtur. Einnig er gott að drekka sí- trónuvatn að auki eða góð lífræn jurtate.“ Happ selur matarpakka sem henta vel fyrir og eftir safakúrinn. „Sú leið er ákaf- lega árangursrík og jafnvel svo árangurs- rík að við bjóðum endurgreiðslu ef fólk er ekki ánægt,“ segir Lukka og gefur hér uppskrift að heilsudrykk. MINN SAFI 1/2 lárpera 2-3 græn epli 1 sítróna Góðir 2 þumlar engifer 1 handfylli klettasalat Pressaðu safann úr epl- unum og engiferrótinni. Settu annað hráefni í blandara ásamt klaka. Blandaðu vel og njóttu. HOLLUR SAFAKÚR HAPP KYNNIR Safakúr í nokkra daga hreinsar líkamann. Lukka Pálsdóttir hjá Happi segir fólk finna mikinn mun á líðan sinni eftir nokkra daga. GÓÐ HEILSA Lukka segir þá sem prófa safakúrinn finna mikinn mun á líðan sinni. MYND/VALLI Ergo býður 100% afslátt af lántökugjöldum í apríl Suðurlandsbraut 14 > sími 440 4400 > www.ergo.is > ergo@ergo.is Það er gaman að fá sér grænan bíl sem eyðir litlu. Í tilefni af grænum apríl býður Ergo 100% afslátt á lántökugjöldum af umhverfishæfum bílum. Gott fyrir þig, fyrir umhverfið og okkur öll. Við aðstoðum þig með ánægju! GRÆNIR BÍLAR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.