Fréttablaðið - 09.04.2013, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 09.04.2013, Blaðsíða 34
9. apríl 2013 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 22 visir.is Allt um leiki gærkvöldsins SPORT ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi. Þú finnur „Kia Motors Ísland“ á Facebook ÚRSLIT DOMINO‘S-DEILD KARLA UNDANÚRSLIT, 3. LEIKUR SNÆFELL - STJARNAN 79-93 (41-57) Snæfell: Ryan Amaroso 21/9 fráköst, Sigurður Á. Þorvaldsson 20/6 fráköst, Jón Ólafur Jónsson 12, Hafþór Ingi Gunnarsson 10/6 fráköst, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 10/6 fráköst/5 stoðsendingar, Sveinn Arnar Davíðsson 2, Stefán Karel Torfason 2, Ólafur Torfason 2. Stjarnan: Jarrid Frye 29/9 fráköst, Jovan Zdravevski 21/4 fráköst, Brian Mills 15/5 fráköst/5 stoðsendingar, Justin Shouse 12/4 fráköst, Marvin Valdimarsson 9, Fannar Freyr Helgason 4/6 fráköst, Dagur Kári Jónsson 3. Staðan í einvíginu er 2-1, Stjörnunni í vil. ENSKA ÚRVALSDEILDIN MAN. UNITED - MAN. CITY 1-2 0-1 James Milner (51.), 1-1 Vincent Kompany, sjálfsmark (59.), 1-2 Sergio Agüero (78.). STAÐA EFSTU LIÐA Man. United 31 25 2 4 71-33 77 Man. City 31 19 8 4 57-27 65 Chelsea 31 17 7 7 61-33 58 Tottenham 32 17 7 8 55-40 58 Arsenal 31 16 8 7 61-34 56 Everton 31 13 13 5 49-37 52 Liverpool 32 13 10 9 59-40 49 West Brom 32 13 5 14 42-43 44 SÆNSKA ÚRVALSDEILDIN UNDANÚRSLIT, 3. LEIKUR SUNDSVALL - NORRKÖPING 79-76 (42-37) Jakob Sigurðarson skoraði nítján stig fyrir Sunds- vall og gaf sjö stoðsendingar. Hlynur Bæringsson var með fjórtán stig og ellefu fráköst. Pavel Ermolinskij var með tvö stig, fjögur fráköst og fjórar stoðsendingar fyrir Norrköping. Staðan í einvíginu er 2-1 fyrir Sundsvall. HANDBOLTI Kári Kristján Krist- jánsson vildi sem fæst orð hafa um þau orð sem Björn Seipp, fram- kvæmdastjóri þýska úrvalsdeildar- liðsins Wetzlar, birti í yfirlýsingu á heimasíðu félagsins í gær. „Það er mjög sorglegt hvernig þetta er allt saman matreitt,“ sagði Kári við Fréttablaðið í gær en hann var þá nýkominn til Wetzlar þar sem hann býr með fjölskyldu sinni, konu og tveimur börnum. „Ég mun eftirleiðis láta minn lögfræðing um að svara fyrir mig. Ég mun ekki leysa þetta í gegnum fjölmiðla,“ sagði hann enn fremur. Seipp ítrekaði afstöðu félagsins í yfirlýsingunni en fyrir helgi var Kára Kristjáni sagt upp störfum eftir að hann spilaði með íslenska landsliðinu. Kári gekk nýverið undir aðgerð á baki þar sem góð- kynja æxli var fjarlægt og hafði verið frá keppni síðan í febrúar. Seipp ítrekaði að Kári hefði aldrei fengið leyfi hjá læknum félagsins til að taka sig af sjúkra- lista félagsins og spila með íslenska landsliðinu í Slóveníu. „Það er fullkomlega ósatt. Það var heldur enginn misskilningur á milli læknanna og Kára,“ sagði Seipp í yfirlýsingu félagsins. Hann fór yfir ferlið í löngu máli og sagði að Kári hefði blekkt sig, þjálfara liðsins og læknana með því að segjast vilja fara til Íslands til að fá annað álit lækna þar og frekari meðhöndlun. „Svo fréttum við í gegnum íslenska fjölmiðla að Kári hefði alls ekki farið til Íslands, heldur til Grosswallstadt þar sem íslenska landsliðið kom saman til að undir- búa sig. Leikmaðurinn sagði okkur aldrei frá því, enda hefðum við gripið umsvifalaust í taumana.“ Seipp segir að það sé enginn vafi á því að tengsl félagsins við Kára séu nú endanlega rofin. „Leikmað- urinn sjálfur ber einn ábyrgð á því,“ sagði hann og hélt áfram: „Að fara of snemma af stað hefði getað haft lífshættulegar afleiðingar í för með sér. Það er mjög sorglegt að Kári hafi ekki farið eftir fyrir- mælum reyndra lækna. Ég fæ ekki skilið hvers vegna hann setti atvinnu og jafnvel líf sitt í hættu þegar hann er með konu og tvö ung börn heima hjá sér.“ Kári vildi litlu svara um allar þær staðhæfingar sem Seipp lagði fram í yfirlýsingunni. „Ég vísa bara í mína eigin yfirlýsingu sem birtist fyrir helgi. Þar koma fram þær staðreyndir sem urðu til þess að ég spilaði leikinn.“ Kári veit ekki hvort hann mætir til vinnu í dag eða hvernig næstu dagar munu þróast. „Þetta er allt óljóst eins og málin standa nú,“ segir Kári. eirikur@frettabladid.is Sorglegt hjá Wetzlar Kári Kristján Kristjánsson vildi lítið tjá sig um nýjasta útspil framkvæmdastjóra Wetzlar sem sagði leikmanninn alfarið bera ábyrgð á þeirri röð atvika sem leiddi til þess að honum var sagt upp. Hann hefur sett málið í hendur lögfræðinga. MEÐ STUÐNING HSÍ Guðmundur B. Ólafsson, varaformaður HSÍ, fór yfir mál Kára á blaðamannafundi í síðustu viku. Kári er honum á hægri hönd. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN MIKIÐ UNDIR Jürgen Klopp vill koma Dortmund í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í kvöld. NORDICPHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Seinni vikan í fjórð- ungsúrslitum í Meistaradeild Evrópu hefst í kvöld með tveimur leikjum. Real Madrid tekur á móti Galatasaray en Madrid-liðar eru í sterkri stöðu eftir 3-0 sigur í Tyrklandi í síðustu viku. Meiri spenna er í viðureign Dortmund og Malaga. Fyrri leiknum lauk með markalausu jafntefli og þurfa því Jürgen Klopp og hans menn að spila til sigurs í kvöld. „Það er mikilvægt að við sýnum að við spilum fótbolta í þeim tilgangi að vinna leiki,“ sagði Klopp en Dortmund hefur unnið alla heimaleiki sína í Meist- aradeildinni í vetur. Malaga verður án tveggja sterkra varnarmanna í kvöld þar sem þeir Weligton fyrirliði og Manuel Iturra eru báðir í banni. Leikirnir hefjast báðir klukkan 18.45 í kvöld. - esá Dortmund þarf sigur

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.