Fréttablaðið - 09.04.2013, Page 22

Fréttablaðið - 09.04.2013, Page 22
KYNNING − AUGLÝSINGSumardekk & bílar ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 20136 Það var mjög spennandi ferli að kaupa bílinn og ekki síður þegar við settum hann á lyftuna hjá IB og grand- skoðuðum hann og í ljós kom að allt var meira og minna endurnýjað. Haustið 2012 lét Eiríkur Ingvarsson gamlan draum rætast og keypti Oldsmobile 442 fornbíl af árgerð 1969 frá Bandaríkjunum. Eiríkur hafði átt tvo Oldsmobile-bíla þegar hann var ungur. Eiríki fannst þó ávallt 442 bíllinn mest spennandi af öllum Oldsmobile- bílum. Stafirnir 442 standa fyrir fjögurra hólfa blöndung, fjögurra gíra skiptingu og tvöfalt pústkerfi. Oldsmobile 442 er sam- bærilegur bíll og Pontiac GTO og Chevr- olet Seville SS, sannkallaður kraftabíll. Leitin hófst Eiríkur hafði leitað, ásamt Brynjari syni sínum, að rétta bílnum á uppboðs vefnum Ebay en fékk svo Ingimar hjá IB á Selfossi í lið með sér og þá fóru hjólin að snúast. Tveimur mánuðum síðar var bíllinn kom- inn til landsins og á skráningar númerið X-442. „Það var mjög spennandi ferli að kaupa bílinn og ekki síður þegar við settum hann á lyftuna hjá IB og grand- skoðuðum hann og í ljós kom að allt var meira og minna endurnýjað. Það er viss áhætta fólgin í því að kaupa bíl á þennan hátt og einhverjir hafa víst brennt sig á því,“ sagði Eiríkur. Er frá „musclecar“-tímabilinu Oldsmobile 442 var fyrst framleiddur 1964 en það ár hófst einmitt svokallað „musclecar“-tímabil þar sem banda rískir bílaframleiðendur kepptu í hestaf la- fjölda, hraða og snerpu. Mælikvarðinn var hversu fljótir bílar voru í hundraðið eða hversu snöggir kvartmíluna. Hest- öflum fjölgaði ár frá ári eða allt þar til um 1972 að farið var að spá í bensíneyðslu og mengun bíla. Framleiðslu Oldsmobile 442 var hætt árið 1985. Álíka flókið að gera við og hjólbörur Tæknilega séð eru þessir bílar hálfgerðar risaeðlur miðað við bíla í dag og félagar Eiríks sem þekkja þessa bíla vel ganga að viðgerðum á þeim líkt og á hjól börum. Eiríkur segir að það sem hann fái út úr því að eiga fornbíl sé að miklu leyti fé- lagsskapur annarra bílaáhugamanna og bílaklúbbarnir, sem standa fyrir dagskrá allt árið. Þeir koma saman á bílunum á sumrin við ýmis tækifæri og þá er allt- af gaman. Það að fara á góðviðrisdegi á rúntinn og kaupa sér ís er einnig gefandi og þá er gjarnan spiluð önnur tónlist en hljómar vanalega í fjölskyldubílnum. Lét gamlan draum loksins rætast Hafði átt tvo Oldsmobile bíla áður en fannst Oldsmobile 442 alltaf flottastur. Oldsmobile 442 er holdgervingur hestafla- keppni bandarísku bílaframleiðendanna. Á Íslandi eru 537 Kia-bílar sem falla undir innköllunina. Hyundai og Kia munu innkalla 1,6 milljón bíla sinna á næstunni. Því vill Askja koma eftir- farandi á framfæri: Kia Motors hefur tilkynnt um innköllun á ákveðnum gerðum Kia-bifreiða, vegna mögu- legrar bilunar í rofa sem tengist hemlaljósum. Um er að ræða bifreiðar sem framleiddar voru á ákveðnu framleiðslutímabili, og er mest- megnis um að ræða bifreiðar framleiddar á árunum 2004–2010. Alls verða innkallaðar um 126.000 bifreiðar í Evrópu, og af þeim eru 537 skráðar á Íslandi. Varahlutir vegna innköllunarinnar munu byrja að berast í maí og júní, og í framhaldi mun Bílaumboðið Askja kalla inn þær Kia-bifreiðar sem um ræðir, þar sem skipt verður um umræddan rofa, án kostnaðar fyrir eigendur bifreiðanna. Um er að ræða sjálfviljuga inn- köllun Kia Motors og verða upplýsingar sendar Neytendastofu þegar þær liggja endanlega fyrir. TILKYNNING FRÁ ÖSKJU VEGNA INNKÖLLUNAR KIABÍLA Ívar Guðmundsson Þú ert í traustum höndum! Virka daga kl. 9-13

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.