Fréttablaðið - 09.04.2013, Blaðsíða 27
ÞRIÐJUDAGUR 9. apríl 2013 | SKOÐUN | 15
HEILSA
Teitur
Guðmundsson
læknir
Starfsemi innkirtlanna er afar
spennandi og hefur margvísleg
áhrif á það hvernig okkur líður
dagsdaglega og hversu orku mikil
við erum alla jafna. Þá er ekki
alltaf alveg augljóst hvernig hin
ýmsu einkenni tengjast saman og
er enn verið að læra um samspil
þessara þátta sem gerir það sér-
staklega skemmtilegt. Hjá þeim
einstaklingum sem þjást af breyt-
ingum á starfsemi innkirtlanna
geta verið fjölmargar birtingar-
myndir og því er nauðsynlegt að
horfa heildstætt á kvartanir við-
komandi. Þannig virkar svokölluð
mismunagreining, en það er listin
að velta upp þeim möguleikum
sem geta passað við sjúkdóms-
mynd einstaklingsins og komast
þannig að réttri niðurstöðu og í
kjölfar þess taka ákvörðun um
nauðsyn meðferðar eða ekki.
Þeir eru býsna margir sem
koma til læknis og kvarta um
orkuleysi, slappleika og slík
almenn óljós einkenni og í flest-
um tilvikum er svo sem um
minniháttar vanda að ræða, ein-
hvers konar flensu eða tímabund-
ið álag sem engu að síður getur
haft umtalsverð áhrif á líðan
viðkomandi. Þegar við þessi ein-
kenni bætast fleiri hlutir eins og
hárlos, hægðatregða, kulsækni og
bjúgur svo fátt eitt sé nefnt þá er
nauðsynlegt að horfa meðal ann-
ars til starfsemi skjaldkirtilsins.
Skjaldkirtillinn er einn af inn-
kirtlum líkamans, hann liggur
framan á hálsinum fyrir neðan
barkakýlið og sést almennt ekki
þegar horft er framan á einstak-
linginn. Hann framleiðir svo-
kölluð skjaldkirtilshormón sem
gegna mikilvægu hlutverki í efna-
skiptum líkamans, en hormónin
stýra hraða þeirra og notkun fitu
og kolvetna, auk þess sem þau
hafa áhrif á próteinframleiðslu
og hitastig. Stjórnstöðin er svo
aftur í heiladinglinum sem gefur
kirtlinum merki um hversu mikið
hann skuli framleiða á hverjum
tíma fyrir sig. Þetta flókna sam-
spil getur ruglast af mörgum
ástæðum með þeim afleiðingum
að skjaldkirtillinn framleiðir
annaðhvort of mikið eða of lítið
af hormónum, sem aftur getur
verið orsökin fyrir þeim einkenn-
um sem einstaklingurinn finnur
fyrir.
Í fluggír
Þegar um er að ræða ofstarfsemi
er líkaminn og efnaskipti hans
í nokkurs konar fluggír ef svo
mætti að orði komast og finna
einstaklingar fyrir ýmsum ein-
kennum, svo sem eins og hjart-
slætti, takttruflunum, megrun,
svita, óróleika, skjálfta, kvíða,
niðurgangi og sjóntruflunum án
þess að þessi listi sé tæmandi.
Mikilvægt er að komast að orsök
vandans og meðhöndla því þetta
ástand getur verið lífshættulegt.
Algengast er að veirusýkingar og
ónæmissjúkdómar valdi slíku og
getur skjaldkirtillinn orðið van-
virkur í kjölfar meðferðar og ein-
staklingurinn þá þurft hormóna-
uppbót í formi lyfja.
Í allri þeirri umræðu sem fer
fram daglega um heilsu, heilsufar,
mataræði og lífsstíl þá er býsna
oft verið að gefa leiðbeiningar og
benda á töfralausnir til að losna
við aukakílóin, nota bætiefni til að
styrkja hárið og neglurnar, taka
fæðubót til að auka brennslu og
úthald, vinna gegn bjúg með ýmiss
konar losandi aðferðum og svona
má eflaust lengi telja. Í mörgum
tilvikum virkar ekkert af þessu og
er það vegna þess að skjaldkirt-
illinn framleiðir ekki nægjanlegt
magn hormóna. Nú er ég ekki að
halda því fram að öll slík vanda-
mál séu á þeim grunni heldur ein-
faldlega að benda á að ekki skuli
gleyma því að líkaminn sjálfur er
hannaður í grunninn til þess að
viðhalda eðlilegri starfsemi. Það
er því rökrétt að fá mat á því hvers
vegna svo er ekki þegar það á við.
Meðferðin
Konur eru líklegri til að fá vanda-
mál sem tengjast skjaldkirtlinum,
oftsinnis eru þær á miðjum aldri
en þó geta breytingar átt sér stað
á öllum æviskeiðum. Blæðinga-
truflanir eru algengar og geta
verið misgreindar sem tíðahvörf
kvenna, ekki má gleyma að bæði
tíðahvörf og skjaldkirtilsvandi
geta komið upp á sama tíma svona
rétt til að flækja þetta aðeins. Þá
geta slík vandamál komið upp á
meðgöngu og í kjölfar fæðingar.
Algengast er þó að einstakling-
ar séu komnir yfir miðjan aldur
og á það bæði við um ofstarfsemi
og vanstarfsemi skjaldkirtilsins
en nokkur munur er á einkennum
eins og ég lýsti hér að ofan. Það er
því mikilvægt að átta sig á þeim,
en greining fer fram í gegnum
viðtal, skoðun, lýsingu einkenna
og blóðrannsókn, auk hugsanlegr-
ar myndgreiningar. Meðferð við
vandamálum í skjaldkirtilsstarf-
semi er alla jafna í formi lyfja en
það getur þurft að gera aðgerð og
nota geislavirka meðferð í flókn-
ari tilfellum. Fylgstu því vel með
þér og hafir þú einkenni sem þú
ekki getur skýrt með góðu móti
sem passa við of- eða vanstarfsemi
skaltu leita uppi lækninn þinn.
Hárlosið,
hægðatregðan og
hormónin
Meðferð við vanda-
málum í skjaldkirtils-
starfsemi er alla jafna í
formi lyfja en það getur
þurft að gera aðgerð…
NÝI TÖLVU- OG VIÐSKIPTASKÓLINN
– VIÐURKENNDUR EINKASKÓLI Á FRAMHALDSSKÓLASTIGI
PHOTOSHOP EXPERT
ALVÖRU PHOTOSHOP NÁMSKEIÐ
Um námskeiðið
Við hjá NTV leyfum okkur að fullyrða að þetta sé eina
námskeiðið sem uppfylli kröfur þeirra sem einhverja reynslu
hafa í Photoshop. Námskeiðið er yfirgripsmikið þar sem mikið er
lagt upp úr þeim þætti sem snýr að eftirvinnslu s.s. litgreiningu,
prófílum, upptöku aðgerða, skipulag, meðferð RAW skráa og
myndblöndun.
Fyrir hverja
Námskeiðið er ætlað þeim sem vinna við grafík og stafræna
myndvinnslu og vilja ná dýpri þekkingu og skilningi á nær
óendanlegum möguleikum þessa flotta verkfæris. Námið er
undirbúningur fyrir alþjóðlegt próf sem gefur gráðuna:
Adobe Certified Expert.
Inntökuskilyrði
Þeir sem ætla í þetta nám þurfa að hafa einhverja reynslu í
Photoshop og undirstöðuþekkingu á Windows umhverfinu.
Einnig þarf góða enskukunnáttu þar sem námsgögn eru á ensku.
Næsta námskeið
Hefst: 22. apríl og lýkur 29. maí.
Kennt er á mánudögum og miðvikudögum 18.00 - 22.00
Kennarinn
Sigurður Jónsson, lærði
ljósmyndun í School Of Visual
Arts Í New York og öðlaðist
meistararéttindi í ljósmyndun
árið 1989. Hann hefur haldið
námskeið í stafrænni mynd-
vinnslu fyrir Ljósmyndarafélag
Íslands, Listaháskóla Íslands,
Margmiðlunarskólann,
Iðnskólann Í Reykjavík og nú í
7 ár hjá NTV.
til batnaðar á einfaldan og öfgalausan hátt?
INGA KRISTJÁNSDÓTTIR næringarþerapisti D.E.T. kennir ykkur
hve einfalt það getur verið að bæta mataræðið og hvaða ráð hún hefur til þess.
ÞETTA ER EKKI FLÓKIÐ! Inga er búin að halda yfir
40 fyrirlestra um mataræði. Nálgunin er einföld, skýr og
hentar öllum sem áhuga hafa á breyttum lífsháttum.
Staður og stund: Heilsuhúsið Lágmúla 5, kl.18:30 - 21:00
Innifalið er mappa með
uppskriftum og fróðleik.
Verð: 4.900 kr. Nánari
upplýsingar og skráning í síma
8995020 eða á inga@inga.is
www.heilsuhusid.is
FARIÐ VERÐUR MEÐ EINFÖLDUM HÆTTI YFIR:
• Hverju er hægt að skipta út og hvað kemur þá í staðinn
• Hvernig hægt er að þekkja muninn á hollri og skaðlegri fitu
• Hvernig þú getur haldið fullri orku allan daginn og losnað
við sykurþörf og þreytuköst
firi›judaginn 16 . apríl
Ég hef áhyggjur!
Ég horfi lítið á sjónvarp en danski þátturinn Borgen er
þó meðal þess sem ég missi helst ekki af. Í þeim þáttum
sem nú eru sýndir er aðalpersónan, Birgitte Nyborg, að
stofna nýjan stjórnmálaflokk. Í upphafi flykktist fólk
að og útkoman varð kaos og mýgrútur hugmynda sem
samræmdust engan veginn. Aðalpersónan endaði á að reka
alla áhugasömu sjálfboðaliðana út. Ég mæli ekki með því
en spyr hvort ekki sé rétt að gera þá kröfu að stjórnmálasamtök, sem hafa
haft heilt kjörtímabil til að búa sig undir kosningar, standi fyrir ákveðna
hugmyndafræði og málefni sem séu flokknum, frambjóðendum hans og
grasrótinni sameiginleg?
http://blog.pressan.is
Margrét Tryggvadóttir
AF NETINU