Fréttablaðið - 09.04.2013, Blaðsíða 31
ÞRIÐJUDAGUR 9. apríl 2013 | MENNING | 19
Kristján Ingimarsson, maðurinn
á bak við leiksýninguna Blam!,
mun gera sína næstu leiksýningu
í samstarfi við Borgarleikhús-
ið. Magnús Geir Þórðarson, leik-
hússtjóri Borgar leikhússins, seg-
ist hlakka mikið til samstarfs við
Kristján. „Stefnan er sú að Krist-
ján komi hingað nokkrum sinnum
næsta vetur til að undirbúa sýn-
inguna sem verður svo frumsýnd
í Borgar leikhúsinu leikárið 2014-
2015.“
Kristján kom til Íslands í upp-
hafi síðustu viku með leiksýn-
inguna Blam! sem var valin leik-
sýning ársins 2012 í Danmörku.
Blam var sýnd sex sinnum fyrir
fullu húsi í Borgarleikhúsinu en
hún verður sýnd í Hofi á Akur-
eyri á miðvikudag og fimmtudag.
„Því miður gátum við ekki bætt við
fleiri sýningum hér í Borgarleik-
húsinu. En sem betur fer náðum
við að búa svo um hnútana að
Blam! verður sýnt aftur hér næsta
vetur,“ segir Magnús Geir og bætir
við að það skýrist fljótlega hvenær
Kristján og félagar verði á ferðinni
í Borgarleikhúsinu.
Kristján Ingimarsson, sem
er fæddur og uppalinn á Akur-
eyri, hefur að mestu alið mann-
inn í Danmörku frá því að hann
var rúmlega tvítugur. Hann segir
mikil vægt að sýna verkin sín á
Íslandi: „Ég á ekki orð til að lýsa
því hvað mér þykir vænt um að
finna þessi frábæru viðbrögð.
Samstarfið við Borgarleikhúsið
hefur verið framúrskarandi og
því hlakka ég mikið til að þróa
nýju sýninguna með þeim þar,“
segir Kristján en Blam! fékk fullt
hús bæði hjá gagnrýnanda Frétta-
blaðsins og DV.
Þess má geta að Blam! fer í leik-
ferð til Bretlands, Noregs, um
Danmörku og víðar á árinu. „Ég
spái því að sýningin leggi heiminn
að fótum sér,“ segir Magnús Geir
að lokum.
Kristján í samstarf
við Borgarleikhúsið
Leikritið Blam! snýr aft ur í Borgarleikhúsið næsta vetur. Blam! sló í gegn hjá
íslenskum áhorfendum rétt eins og dönskum en uppselt var á allar sýningar.
Næsta verk Kristjáns Ingimarssonar verður í samstarfi við Borgarleikhúsið.
FIMM STJÖRNU SÝNING Blam! fékk mikið lof meðal gagnrýnenda hér á landi líkt
og hjá kollegum þeirra í Danmörku. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
ÞRIÐJUDAGUR 09. APRÍL 2013
Tónlist
20.30 Hljómsveitin Reykjavík Swing
Syndicate spilar á jazzkvöldi KEX Hos-
tels, Skúlagötu 28. Tónlistin tengist
sveiflu fjórða áratugarins, Django djassi
og bannáragleði. Aðgangur er ókeypis.
Fyrirlestrar
12.00 María Antonia Mezquita Fernán-
dez frá háskólanum í Valladolida á
Spáni heldur fyrirlestur í stofu 106 í
Odda Háskóla Íslands. Fyrirlesturinn
er fluttur á ensku og ber yfirskriftina
Feminism and Identity Throughout
the Works of the Canadian Writers
Margaret Laurence, Alice Munro and
Margaret Atwood: An Ecocritical
Approach. Hann fjallar um náttúru-
myndir í verkum þriggja kanadískra
skáldkvenna. Aðgangur er ókeypis og
öllum heimill.
12.05 Guðrún Harðardóttir, sér-
fræðingur í byggingarsögu hjá Þjóð-
minjasafni Íslands, heldur fyrirlestur
í fyrirlestrarsal safnsins undir yfir-
skriftinni Skáldað í byggingararfinn?
Fyrirlesturinn er sá síðasti þennan
veturinn í hádegisfyrirlestraröð Sagn-
fræðingafélags Íslands.
Myndlist
20.00 Listamennirnir Fiete Stolte,
Ragnheiður Gestsdóttir, Emily Wardill,
Guido van der Werve, Ragnar Kjartans-
son, Erla Silfá Þorgrímsdóttir, Eygló
Harðardóttir og Ríkharður H. Frið-
riksson ræða verk sín í tengslum við
myndlistarhátíðina Sequences VI.
Upplýsingar um viðburði
sendist á hvar@frettabladid.is
Gildi - lífeyrissjóður
Sætúni 1
105 Reykjavík
Sími 515 4700
www.gildi.is
gildi@gildi.is
Á R S F U N D U R
Ársfundur Gildis-lífeyrissjóðs verður haldinn á Grand Hótel
Reykjavík þriðjudaginn 23. apríl kl. 17.00.
Dagskrá fundarins:
1. Venjuleg ársfundarstörf.
2. Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins liggja frammi á
skrifstofu sjóðsins og eru birtar á heimasíðunni,
Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á ársfundinum með málfrelsi
og tillögurétti. Sérstakt fulltrúaráð, að jöfnu skipað fulltrúum
stéttarfélaga og samtaka atvinnurekenda sem að sjóðnum
standa, fer með atkvæði á ársfundinum.
Tillögur til ályktunar sem taka á fyrir á ársfundi þurfa að berast
stjórn sjóðsins eigi síðar en viku fyrir ársfund.
Reykjavík 2. apríl 2013,
lífeyrissjóður
Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs.
2 013
www.gildi.is
Loft innan fárra mínútna
Ilmur af mentól og eukalyptus
Andaðu
með nefinu
Otrivin Menthol ukonserveret, nefúði, lausn. Innihaldslýsing: Xýlómetazólínhýdróklóríð 1
mg/ml. Ábendingar: Bólgur og aukin slímmyndun í nefi, kinnholum og nefkoki. Skammtar
og lyfjagjöf: Fyrir fullorðna og börn eldri en 12 ára: 1 úði í hvora nös 3 sinnum á sólarhring
eftir þörfum, lengst í 10 sólarhringa og ekki úða oftar en að hámarki 3 úða í hvora nös á
sólarhring. Snýttu þér. Fjarlægðu glæru plasthettuna. Skorðaðu úðaflöskuna milli fingran-
na. Úðað er með því að þrýsta kraganum niður að flöskunni. Hallaðu höfðinu örlítið fram.
Stúturinn á úðaflöskunni er settur upp í nösina. Úðað er einu sinni, um leið og andað er að
sér inn um nefið. Farðu eins að í hina nösina. Ekki má nota lyfið ef þú ert með ofnæmi fyrir
einhverju innihaldsefnanna, ef þú hefur gengist undir aðgerð í gegnum nefið eða munninn
eða ert með þrönghornsgláku. Ráðfærðu þig við lækni áður en lyfið er notað ef þú ert: Þun-
guð, með barn á brjósti, næmur fyrir adrenvirkum efnum, ert með skjaldvakaóhóf, sykursýki,
háþrýsting, æðakölkun, slagæðargúlp, blóðtappa í hjarta, óreglulegan eða hraðan púls, er-
fiðleika við þvaglát, æxli í nýrnahettum, þunglyndi og ert á lyfjameðferð við því. Geymið þar
sem börn hvorki ná til né sjá. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota
lyfið. Sjá notkunarleiðbeiningar í fylgiseðli. Markaðsleyfishafi:Novartis Healthcare. Umboð á
Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.