Fréttablaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 2
24. apríl 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 2
DÓMSMÁL Aðalmeðferð í máli
barnaníðingsins Karls Vignis Þor-
steinssonar hófst í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær. Réttarhöld-
in eru lokuð og því ekki hægt að
greina frá því sem þar fór fram.
Þeim lýkur í maí.
Karl Vignir gaf fyrstur skýrslu
fyrir dóminum. Þeirri skýrslugjöf
lauk fyrir hádegi og að henni lok-
inni yfirgaf Karl Vignir dómhúsið
í fylgd lögreglumanna sem fluttu
hann aftur í gæsluvarðhald á Litla-
Hrauni.
Karl Vignir gekkst við því á upp-
tökum sem birtar voru í Kastljósi
í janúar að hafa um áratugaskeið
misnotað tugi barna. Sjálfur hafði
hann ekki tölu á fórnarlömbum
sínum. Í kjölfarið bárust kærur á
hendur honum vegna nýlegra brota
og skömmu síðar var hann hand-
tekinn og úrskurðaður í gæsluvarð-
hald sem hann hefur setið í síðan.
Ekki hafa fengist upplýsing-
ar um það hversu mörgum Karli
Vigni er gefið að sök að hafa brotið
gegn í ákærunni. - sh
Réttað yfir stórtækum barnaníðingi í Héraðsdómi Reykjavíkur:
Karl Vignir gaf skýrslu og fór
MÆTTI OG FÓR Karl Vignir hefur viður-
kennt brot gegn tugum barna.
Perlan fær steypireyði
sem Húsavík stólaði á
Norðurþing vill að menningarmálaráðherra lýsi yfir að beinagrind úr steypireyði
sem rak á land á Skaga verði sett upp á Húsavík. Forstjóri Náttúrfræðistofnunar
segir hvalinn hins vegar fara í Perluna ef Náttúruminjasafn Íslands biður um það.
STJÓRNMÁL Jóhanna Sigurðar-
dóttir forsætisráðherra mun
ávarpa sinn síðasta kosningafund
í dag þegar hún kemur fram á
hvatningarfundi Samfylkingar í
dag.
Jóhanna segir skilið við stjórn-
málin þegar kjörtímabilinu lýkur
eftir 35 ár á þingi, en þetta er
fyrsti og eini kosningafundurinn
sem hún tekur þátt í fyrir þessar
kosningar.
Fundurinn er opinn og fer fram
í kosningamiðstöð Samfylkingar-
innar að Laugavegi 18b, og hefst
klukkan 17. - þj
Jóhanna Sigurðardóttir:
Lokafundurinn
eftir 35 ára starf
MENNINGARMÁL Afar fágæt beina-
grind úr steypireyði sem rak á
land við Ásbúðir á Skaga sumar-
ið 2010 er nú orðin bitbein Hvala-
safnsins á Húsavík og Náttúru-
minjasafnsins í Perlunni.
„Við höfum búið okkur til
ákveðna sérstöðu í þessum efnum
og teljum eðlilegt að þessi grind
komi hingað,“ segir Bergur Elías
Ágústsson, bæjarstjóri Norður-
þings, þar sem bæjarráðið skoraði
á síðasta fundi á Katrínu Jakobs-
dóttur, mennta- og menningar-
málaráðherra, sem æðsta yfir-
mann safnamála í landinu, að lýsa
því yfir að beinagrindin yrði sett
upp á Húsavík. Ekki náðist tal af
Katrínu í gær.
Jón Gunnar Ottósson, forstjóri
Náttúrufræðistofnunar, sem á
steypireyðina og er að verka bein-
in, segir þau mjög merkileg og að
aðalatriðið sé að þau verði til sýnis
fyrir almenning. Bæði Hvalasafn-
ið á Húsavík og Náttúruminjasafn
Íslands, sem fengið hafi 500 millj-
ónir frá ríkinu til að búa til sýn-
ingu í Perlunni, vilji fá hvalinn.
„Okkur er svo sem sama hvar
hún er, svo framarlega sem hún er
til sýnis. Ef Náttúruminjasafnið
vill fá hvalinn í sína grunnsýningu
um náttúru Íslands þá munum við
láta hann fara þangað. Ef ekki þá
eru Húsvíkingarnir næstir í röð-
inni,“ segir Jón Gunnar og bendir
á að dýrt sé að setja beinagrindina
upp. „Þar verður ekkert tjaldað til
einnar nætur. „Ef við setjum hana
upp í Perlunni verður hún þar í að
minnsta kosti tíu til tuttugu ár.“
Hvalasafnið og félagið Garð-
arshólmi eru í samstarfi um upp-
byggingu safna-, menningar- og
fræðastarfsemi á lóð Hvalasafns-
ins á Húsavík. Beinagrindinni af
steypireyðinni er ætlað að verða
krúnudjásnið í verkefninu og
frumdrög að húsi yfir hana eru
tilbúin.
Einar Gíslason, framkvæmda-
stjóri Hvalasafnsins, segir að frá
því að steypireyðina rak á land
hafi Hvalasafnið, með vitund og
vilja mennta- og menningarmála-
ráðuneytisins, unnið að því að fá
grindina norður.
„Að fá slíka segla inn á svæð-
ið styrkir auðvitað það yfirlýsta
markmið ríkisstjórnarinnar að
dreifa ferðamönnum meira um
landið. Þessi beinagrind á auð-
vitað ekkert heima í Perlunni held-
ur hér í höfuðborg hvalaskoðunar
í Evrópu,“ segir framkvæmda-
stjóri Hvalasafnsins. gar@frettabladid.is
SÝN HÚSVÍKINGA Þannig sjá hvalasafnsmenn fyrir sér steypireyðina af Skaga í nýrri
byggingu á Húsavík. Beinagrindin er 25 metra löng og fjórir metrar á hæð.
MYND/HVALASAFNIÐ HÚSAVÍK
HVALREKI Á SKAGA Steypireyðurin við
Ásbúðir var engin smásmíð.
MYND/VALUR ÖRN ÞORVALDSSON
Að fá slíka segla inn á
svæðið styrkir auðvitað
það yfirlýsta markmið
ríkisstjórnarinnar að
dreifa ferðamönnum
meira um landið.
Einar Gíslason, framkvæmdastjóri
Hvalasafnsins á Húsavík.
MENNING Barnamenningarhátíð var sett í þriðja sinn í Hörpu í gær. Hátíð-
in hófst á því að 1.300 nemendur í fjórða bekk í grunnskólum Reykjavíkur
fluttu tónverkið 268° eftir Áka Ásgeirsson, en það sækir innblástur í tölvu-
leikjamenninguna.
Eftir hádegið hélt fjölbreytt dagskráin áfram og meðal annars stigu 400
börn úr 20 leikskólum á svið, ásamt nemendum úr Tónskóla Sigursveins og
Hamrahlíðarkórnum, og fluttu lög Atla Heimis Sveinssonar.
Hátíðin heldur áfram næstu daga, en henni lýkur með stórtónleikum í
Laugardalslaug á sunnudag. - kóp
Barnamenningarhátíð var sett í gær:
Börnin eiga sviðið
Á STÓRA SVIÐINU Fjögur hundruð leikskólabörn skemmtu gestum í Hörpu með
ljúfum söng á Barnamenningarhátíð í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
TÆKNI Búist er við um tvö þúsund
gestum á EVE Fanfest-hátíð tölvu-
leikjafyrirtækisins CCP, sem hefst
í Hörpu í dag og stendur í fjóra
daga. Aldrei hafa fleiri mætt á
hátíðina, en fyrirtækið fagnar nú
tíu ára afmæli EVE-heimsins.
Á annað hundrað dagskrárliða
eru í boði, meðal annars pallborðs-
umræður um hlutverk og samband
leikjaþróunar og listar og kosning-
ar í fulltrúaráð EVE Online-spil-
ara, þar sem nær 400.000 manns
eru á kjörskrá. - þj
CCP setur hátíð í dag:
Metfjölda spáð
á EVE Fanfest
SAMGÖNGUR Ögmundur Jónas-
son innanríkisráðherra kynnti í
gær ákvörðun sína um að hönnun
og smíði nýrrar Vestmannaeyja-
ferju verði boðin út á Evrópska
efnahagssvæðinu. Miðað er við
að hönnunin verði boðin út í byrj-
un maí og að henni ljúki í des-
ember 2013. Smíði ferjunnar á
að vera lokið síðla árs 2015.
Ögmundur tilkynnti að mark-
miðið væri að smíða ferju sem
gæti sinnt öllum flutningum
milli Vestmannaeyja og Land-
eyjahafnar árið um kring með
lágmarksröskun. Samhliða hönn-
un ferjunnar yrði unnið áfram að
rannsóknum á höfninni og ráðist
í nauðsynlegar endurbætur.
Ráðherra sat fund með bæjar-
stjórn Vestmannaeyja í gær þar
sem Eyjamenn settu fram þrjú
áhersluatriði. Hönnun ferjunnar
yrði boðin út sérstaklega og að
ferjan gæti siglt á Þorlákshöfn
þegar ekki gæfi á Landeyjahöfn,
og að aðbúnaður farþega vegna
siglinga til Þorlákshafnar yrði
viðunandi. Ráðist yrði í endur-
bætur á Landeyjahöfn meðan
ferja er smíðuð, og í þriðja lagi að
kannað yrði hvort unnt væri að
fá annað skip til að annast sigl-
ingarnar þar til ný ferja kæmist
í gagnið. - shá
Hönnun og smíði Vestmannaeyjaferju verður boðin út á EES-svæðinu:
Smíði ferju ljúki í lok árs 2015
HAND-
SALAÐ
Ögmund-
ur og
Elliði
Vignisson
bæjar-
stjóri
ánægðir
með dags-
verkið.
MYND/ÓSKAR
Ingólfur Júlí-
usson látinn
Ingólfur
Júlíusson,
ljósmyndari
og hönnuð-
ur, er látinn
42 ára að
aldri. Hann
greindist
með bráða-
hvítblæði í
október á síðasta ári og vakti
þjóðarathygli fyrir æðruleysi í
veikindum sínum.
Ingólfur var kvæntur Monicu
Haug og eiga þau tvær dætur,
Hrafnhildi og Söru.
SPURNING DAGSINS
FYRIR FÓLKIÐ Í LANDINU
Ertu ekki viss um hvað þú ætlar að kjósa?
Viltu fá svör við ákveðnum spurningum?
Hringdu í Vg númerið 863 7038 og tilgreindu
það málefni sem brennur á þér.
Við finnum rétta frambjóðandann til þess að
hafa samband við þig og svara spurningum þínum.
Við hlökkum til að heyra frá þér!
HVAÐ
VILTU VITA?
Ólafur, er hægt að kenna ein-
hverjum um þetta?
„Ja, það mætti kenna sveitarfélög-
unum ýmislegt um þetta.“
Ólafur Loftsson er formaður Félags grunn-
skólakennara. Kjaradeila milli kennara og
sveitarfélaganna hefur staðið um hríð og
sýnist sitt hverjum í þeim málum.