Fréttablaðið - 24.04.2013, Side 10

Fréttablaðið - 24.04.2013, Side 10
24. apríl 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 10 TRÍPÓLÍ, AP Bílasprengja sprakk við franska sendiráðið í Trípólí, höfuðborg Líbíu, í gærmorgun. Tveir franskir öryggisverðir særð- ust í árásinni auk líbísks tánings. François Hollande, forseti Frakk- lands, sagði árásina árás á öll lönd sem berjast gegn hryðjuverkum. Nú þegar tvö ár eru liðin frá borgarastyrjöldinni í Líbíu eiga þarlend stjórnvöld enn erfitt með að tryggja öryggi í landinu. Þetta er þó í fyrsta skipti sem ráðist er gegn sendiráði í Trípólí. Ráðist var á sendiráð Bandaríkjanna í Benghazi í september með þeim afleiðingum að fjórir létust. Enginn hópur hefur lýst yfir ábyrgð vegna árásarinnar í Trípólí í gær en grunur hefur fallið á hryðjuverkamenn með tengsl við AQIM, Norður-Afríkudeild Al- Kaída, sem er talin hafa staðið að baki árásinni í Benghazi. Í síðustu viku hótaði AQIM hefndaraðgerðum gegn öllum ríkj- um sem tekið hafa þátt í hernaðar- aðgerðum Frakka í Malí. - mþl Bílasprengja sprakk við sendiráð Frakklands í Trípólí í gærmorgun: Ráðist gegn Frökkum í Líbíu TRÍPÓLÍ Í GÆR Sendiráð Frakka var illa leikið eftir bílasprengjuna sem sprakk við sendiráðið í gærmorgun. Mildi þykir að enginn lést. FRÉTTABLAÐIÐ/AP LANDVERND Sjö mismunandi aðilar hafa kært sauðfjárbeit á Almenn- ingum í Rangárþingi eystra til atvinnu- og nýsköpunarráðuneyt- isins. Almenningar eru afréttur við Þórsmörk og því þjóðlenda. Svæðið hefur verið í upp- græðslu síðustu tvo áratugi en Ítölunefnd var skipuð í fyrra af sýslumanninum á Hvolsvelli. Nefndinni var falið að áætla beit- arþol svæðisins. Nefndin klofn- aði í afstöðu sinni en niðurstað- an varð að endingu 50 tvílembur, alls 150 dýr, fyrstu fjögur árin og svo fjölgun í 130 tvílembur, alls 390 dýr á næstu átta árum. Krafa kærenda er sú að fram fari yfirítölumat með tilstuðlan ráðherra, Steingríms J. Sigfús- sonar. Allir aðilar kæra á þeim grunvelli að landið sé of við- kvæmt og birkigræðlingar þoli illa ágang fjár. Almenningar eru á stóru eld- fjallasvæði og gróður á þessu svæði heftir því öskufok sem bor- ist getur til höfuðborgarinnar og annarra sveitarfélaga í nágrenn- inu. Kærendur telja að ekki hafi verið farið að náttúrusjónarmið- um við gerð ítölunnar. - mlþ Atvinnu- og nýsköpunarráðherra bárust sjö kærur vegna Almenninga: Kæra sauðfjárbeit við Þórsmörk Þessi hópur sendi inn athugasemd til ráðuneytisins og fer fram á að sauð- fjárbeit við Almenninga verði endurskoðuð með tilliti til náttúruverndar. Skógrækt Ríkisins, Skógræktarfélag Íslands, Jón Kr. Arnarsson og Sigurður Arnarson, dr. Ingibjörg Svala Jónsdóttir og dr. Þóra Ellen Þórhallsdóttir, prófessorar við líf- og umhverfisvísindasvið Háskóla Íslands, Landgræðsla ríkisins, Landbúnaðarháskóli Íslands og Landvernd. - mlþ ÞAU LÖGÐU FRAM KÆRU VEGNA ALMENNINGA Mýrdalsjökull SléttujökullEntujökull Þórsmörk Almenningar Emstrur Tindfjallajökull Eyjafjallajökull Almenningar í Rangárþingi eystra Eins og sést á kortinu eru Almenningar umkringdir jöklum. RENAULT KANGOO DÍSIL EYÐSLA 4,9 L / 100 KM* VINSÆLIR ENDA SPARNEYTNIR ATVINNUBÍLAR RENAULT TRAFIC DÍSIL EYÐSLA 6,9 L / 100 KM* RENAULT MASTER DÍSIL EYÐSLA 8,0 L / 100 KM* E N N E M M / S ÍA / N M 5 6 5 6 4 * E yð s la á 1 0 0 k m m ið a ð v ið b la n d a ð a n a k s tu r. BL ehf. Sævarhöfða 2 / 525 8000 Bílahúsið / Reykjanesbæ / 421 8808 – Bílasalan Bílás / Akranesi / 431 2622 Bílaverkstæði Austurlands / Egilsstöðum / 470 5070 – Bílasala Akureyrar / 461 2533 www.renault.is RENAULT – Í LIÐI MEÐ ATVINNUREKENDUM Í 100 ÁR. Það er ekki að undra að Renault sé stærstur á sviði sendibíla í Evrópu. Eftir meira en 100 ár í bransanum vita þeir hjá Renault hvað skiptir máli þegar bíllinn er vinnustaðurinn þinn: áreiðanleiki, sveigjanleiki og ekki síst þægindi. TRAFIC STUTTUR VERÐ FRÁ: 3.418.327 KR. ÁN VSK. 2,0 DÍSIL - 115 HÖ VERÐ: 4.290.000 KR. M. VSK. MASTER MILLILANGUR VERÐ FRÁ: 4.292.821 KR. ÁN VSK. 2,3 DÍSIL - 125 HÖ VERÐ: 5.390.000 KR. M. VSK. KANGOO II EXPRESS VERÐ: 2.541.833 KR. ÁN VSK. 1,5 DÍSIL - 90 HÖ VERÐ: 3.190.000 KR. M. VSK. ÍÞRÓTTIR „Það er mikil vinna fyrir höndum og margir sem eru í afneitun með að kynferðislegt ofbeldi í íþróttum fyrirfinnist hér á landi,“ segir Celia Brackenridge, prófessor í íþróttum og menntun við Brunel-háskóla. Celia er stödd hér á landi til að flytja erindi á ráðstefnu á vegum samtakanna Blátt áfram og Rann- sóknarstofnunar í barna- og fjöl- skylduvernd undir yfirskriftinni Forvarnir eru besta leiðin, sem stendur nú yfir. Ísland er að hennar mati langt að baki öðrum löndum þegar kemur að forvörnum vegna kyn- ferðisofbeldis en Celia er sérfræð- ingur í forvörnum gegn kynferðis- legu ofbeldi í íþróttum. Málefnið er henni hugleikið en hún hefur barist fyrir auknu forvarnarstarfi í íþróttahreyfingum í 35 ár. Að sögn Celiu er ekki til sú íþrótt þar sem kynferðisofbeldi þrífst ekki. „Það er ekki rétt ef iðkendur og þjálfarar tiltekinnar íþróttar segja að kynferðisofbeldi þekkist ekki þar. Þá eru þeir aug- ljóslega að horfa fram hjá vand- anum.“ Erindi Celiu á ráðstefnunni fjallar um forvarnir og hvernig draga megi lærdóm af reynslu annarra landa af kynferðis brotum í íþróttum og forvörnum sem tengjast þeim. Hún segir mikla vinnu hafa verið lagða í forvarnarstarf víðs vegar í heiminum sem hafi gefið mjög góða reynslu. „Margir halda að íþróttir séu eins og ævintýra- land þar sem engin vandamál eru. En það er vitað að þar þríf- ast vandamál eins og kynþátta- fordómar og kynjamisrétti og þar má einnig finna kynferðisofbeldi. Við þurfum að átta okkur á því að þjálfarar hafa mikil völd og að lít- ill hluti þeirra er stundum þátttak- andi í ofbeldisfullri hegðun.“ Hún bendir einnig á að mikil- vægt sé að þjálfarar séu meðvit- aðir um einkenni sem geta komið fram hjá börnum sem hafa orðið fyrir ofbeldi og kunni að grípa til viðeigandi ráðstafana fái þeir vitneskju um slíkt. „Hluti þeirra barna sem stunda íþróttir kemur frá heimilum þar sem þau hafa orðið fyrir ofbeldi. Þjálfarar hafa tækifæri til þess að hjálpa þessum börnum með að þekkja einkenni kynferðis- ofbeldis. Það er sameiginleg ábyrgð allra að koma í veg fyrir kynferðisofbeldi gegn börnum. Allir verða að hafa vakandi auga fyrir því.“ hanna@frettabladid.is Kynferðisofbeldi í öllum íþróttum Sérfræðingur í forvörnum gegn kynferðisofbeldi í íþróttum segir mikla vinnu fyrir höndum í forvarnarstarfi hér á landi. Mikilvægt sé að draga lærdóm af reynslu annarra landa. Þjálfarar geta hjálpað börnum sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi. EFLA SKAL FORVARNIR Mikilvægt er að efla forvarnir er varða kynferðisbrot gegn börnum í íþróttum hér á landi segir Celia Brackenridge, prófessor í íþróttum og menntun við Brunel-háskóla. NORDICPHOTOS/AFP Við þurfum að átta okkur á því að þjálf- arar hafa mikil völd og að lítill hluti þeirra er stundum þáttak- andi í ofbeldisfullri hegðun. Cecilia Brackenridge, prófessor í íþróttum og menntun við Brunelháskóla.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.