Fréttablaðið - 24.04.2013, Blaðsíða 33
KYNNING − AUGLÝSING Hávaðavarnir24. APRÍL 2013 MIÐVIKUDAGUR 3
Parki hefur selt
Mono-loftin um árabil
með mjög góðum árangri og
mikilli ánægju viðskiptavina
sinna.
Verslunin Parki hefur um nokkurra ára skeið selt samskeytalaus stein-ullarhljóðísogsloft. Um er að ræða
vandaða danska gæðavöru að sögn Smára
V. Grétarssonar, sölumanns hjá Parka, sem
hentar vel jafnt fyrir heimili, vinnustaði
og opinberar byggingar. „Hljóðísogsloft
dempa hljóð og bergmál í opnum rýmum.
Þau henta vel bæði í stórum opnum rýmum
og ekki síður í minni rýmum. Þar sem flís-
ar og steinveggir eru, er hætt við miklum
glymjanda og bergmáli sem hefur truflandi
áhrif á fólk. Því er góð lausn að setja slík loft í
byggingar, hvort sem um er að ræða heima-
hús eða opinberar byggingar.“
Að sögn Smára líta loftin út eins og hefð-
bundin gifsloft. Þau byggjast upp á grind,
ekki ósvipuðu gifslofti, og svo koma 30 milli-
metra steinullarplötur sem eru skrúfaðar á
grindina. „Plöturnar koma með hljóðdúk,
samskeytin eru spörsluð, slíðruð og síðan
grunnuð og sprautumáluð með sérstakri
málningu sem þó rýrir ekki hljóðísogs-
gildið.“ Hægt er að leggja þessi loft með nán-
ast sama hætti og gert er með gifsloft að
sögn Smára. „Loftið er unnið með sama
hætti og býður upp á sömu möguleika og
gifsloft nema það auðvitað einangrar allt
bergmál og glymjanda miklu betur.“
Umhverfisvæn efni
Samskeytalausu hljóðísogsloftin sem Parki
selur heita Mono og eru frá danska fram-
leiðandanum Rockfon. Parki hefur selt
Mono-loftin um árabil með mjög góðum
árangri og mikilli ánægju viðskiptavina
sinna. Loftin frá Rockfon eru gerð úr stein-
ull, sem er umhverfisvænt efni, og plöturn-
ar eru ofnæmisvottaðar. Auk þess lifa bakt-
eríur ekki í steinullinni og þar af leiðandi er
ekki hætta á sveppamyndun eins og getur
myndast í öðrum efnum eins og timbri og
gifsi. Þar að auki er mikið einangrunar-
gildi í steinullinni sem og mikið bruna-
þol þar sem steinullin er óbrennanlegt
efni. „Fyrstu árin var notast við sérhæfða
erlenda iðnaðarmenn við uppsetningu
þeirra með tilheyrandi kostnaði og vinnu.
Nú höfum við íslenska iðnaðarmenn sem
hlotið hafa menntun og viðurkenningu frá
framleiðanda fyrir uppsetningu loftanna
sem gerir þetta allt einfaldara og þægilegra,
auk þess sem kostnaður er mun minni.“
Smári segir best að huga að slíkum loft-
um við hönnun nýbygginga en auðvitað sé
lítið mál að setja þau upp í eldri byggingum.
„Auðvitað fylgir því smá rask en ef fólk ætlar
að búa í húsinu sínu í 30 ár er ein vika stutt-
ur tími miðað við þá bættu hljóðvist sem þú
færð í staðinn. Við vorum fyrir stuttu síðan
að setja upp Mono-loft í eldra húsi í Grafar-
voginum. Íbúarnir höfðu búið þar í nokkur
ár og voru ósáttir með hljóðvist hússins. Þeir
skruppu til útlanda í vikufrí og við skiptum
um loft á meðan. Þegar þeir komu til baka
voru þeir helst ósáttir við að hafa ekki gert
þetta miklu fyrr enda var breytingin á hljóð-
vistinni í húsinu ótrúleg.“
Loft frá Rockfon eru víða
Parki hefur einnig sett upp hljóðísogsloft
á nokkrum veitingastöðum hérlendis með
góðum árangri. „Þar er eðlilega oft mikill
glymjandi í salnum eins og fylgir slíkri at-
vinnustarfsemi. Eftir að við settum þessi
loft upp þar hefur starfsfólki liðið mun
betur og viðskiptavinir sitja lengur, enda
mun þægilegra að sitja á veitingastaðnum
við slíkar aðstæður.“
Parki býður einnig upp á aðrar tegundir
lofta, til dæmis hefðbundin kerfisloft frá
Rockfon þar sem krafa er um gott hljóð-
ísog og auk þess að hafa aðgengi að lögnum
o.fl. Í dag eru loft frá Rockfon í fjölmörgum
byggingum svo sem skólum, leikskólum,
sjúkrahúsum og skrifstofum svo eitthvað
sé nefnt. Parki býður upp á margar lausnir
í útliti á köntum og stærð á loftaplötum þar
sem stærri plötur eru að ryðja sér til rúms í
auknum mæli.
Allar nánari upplýsingar má finna hjá
sölumönnum og á heimasíðu Parka,
www.parki.is.
Samskeytalaus hljóðísogsloft frá Rockfon
Efnisval í nútímabyggingum einkennist oft af hörðum efnum eins og flísum, steyptum veggjum og gleri. Það kallar á nýjar lausnir í
efnisvali á öðrum stöðum til að gera hljóðvist betri. Loftin eru oft sá staður sem hægt er að nota til að bæta hljóðvistina. Parki
vinnur náið með hljóðtæknifræðingum, arkitektum og innanhússhönnuðum til að koma með betri lausnir og útlit.
Mono-loft með innfelldri lýsingu og skuggafúgu með
veggjum. MYND/ÚR EINKASAFNIXX
Fullfrágengið Mono-loft með innbyggðri lýsingu í einbýlsihúsi í Reykjavík. MYND/VILHELM
Sérhæfðir starfsmenn Parka við uppsetningu Mono-lofts. MYND/STEFÁNUnnið við uppsetningu Mono-lofts í blokkaríbúð í Reykjavík. MYND/STEFÁN
Smári V. Grétarsson, sölumaður hjá Parka.
MYND/STEFÁN