Fréttablaðið - 24.04.2013, Side 38

Fréttablaðið - 24.04.2013, Side 38
KYNNING − AUGLÝSINGHlaupaskór & fatnaður MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 20138 Það er nauðsynlegt að borða tveimur tímum fyrir hlaup, einkum ef hlaupnir eru tíu kílómetrar. Ekki borða þunga máltíð heldur leggðu áherslu á kolvetni. Pasta með kjúklingi er ákjósanlegt eða gróft brauð með sultu eða hunangi. Ekki drekka of mikið vatn. Best er að drekka ¼ lítra þremur tímum fyrir hlaup. Hlaupir þú tíu kílómetra á innan við klukkustund er ekki þörf á vatni eða einhvers konar orku á þeim tíma. Ef hlaupið er í miklum hita eða hlauparinn svitnar mjög mikið er þó betra að fá sér eitt glas af vatni eftir fimm kílómetra. Mörgum finnst sömuleiðis gott að skola hálsinn. Eftir hlaupið er æskilegt að borða kolvetni og drekka vatn. Gott er að fá sér epli, banana eða orkubar. Klukkutíma eftir hlaup er rétt að fá sér prótín- ríka máltíð sem hjálpar uppbyggingu vöðva. Hafragrautur eða mjólk og gróft rúnstykki með fitulausu áleggi er heppilegt. Matur og drykkur fyrir tíu kílómetra hlaup TEYGÐU ÚR TÁNUM Þreyttir fætur geta plagað hlaupara. Tærnar ættu ekki að verða út undan þegar teygt er á líkamanum eftir átök. Eftirfarandi táteygjuæfingar er að finna á www.livestrong.com. Leggstu á bakið og lyftu hægra hnénu að bringu. Gríptu báðum höndum aftan við hnéð. Andaðu frá þér og réttu hægt úr fætinum. Beygðu ökklann svo tærnar snúi að andlitinu og glenntu þær út til hliðanna. Haltu teygjunni meðan þú andar djúpt fimm til sex sinnum. Krjúptu á gólfinu og hafðu bakið beint, beygðu tærnar undir þig og sestu rólega niður á hælana. Teygðu á iljunum og tánum og andaðu djúpt fimm til sex sinnum. Sestu upp til að losa um spennuna en endurtaktu svo teygjuna tvisvar til þrisvar sinnum. SKOKKHÓPAR Fjölmargir skokkhópar eru starfræktir um allt land. Á vefsíðunni hlaup.is er að finna lista yfir allmarga skokkhópa sem hittast reglulega. Listinn er þó ekki tæmandi. Hér fyrir neðan má sjá lista yfir þá skokkhópa sem eru skráðir á höfuðborgarsvæðinu: Reykjavík: Árbæjarskokk Fálka-skokk Hádegisskokk frá Grafarvogs- laug Hádegisskokk frá Laugum Hlaupahópur Ármanns Hlaupahópur Fjölnis Grafarvogi Hlaupahópurinn Norðlingar ÍR-skokk KR-skokk Laugaskokk Skokkhópur Fram, Grafarholti Skokkhópur Íslandsbanka Skokkhópur Víkings Skokkklúbbur Icelandair Trimmklúbbur Seltjarnarness (TKS) Valur Skokk Vesturbæjarhópurinn/Hlaupa- samtök lýðveldisins Vinir Gullu ÖL hópurinn Álftanes: Skokkhópur Álftaness Garðabær: Skokkhópur Garðabæjar og nágrennis Hafnarfjörður: Hlaupahópur FH Skokkhópur Hauka Kópavogur: Bíddu aðeins Snælandsskokkhópurinn Mosfellsbær: Mosóskokk Regenovex hefur klárlega hjálpað mér að ná markmiðum mínum. Ég byrjaði að taka inn Regenovex í apríl 2012 því þá var ég að undirbúa mig undir að hlaupa maraþon. Þar sem ég var farin að finna fyrir eymslum, ákvað ég að prufa einn pakka. Eftir einn pakka var ekki aftur snúið. Sumarið 2012 hljóp ég meiðslalaus og hef aldrei á mínum 6 ára hlaupaferli fundið slíka virkni. Ég hef hlaupið yfir laugaveginn og mörg fjallahlaup ásamt tugum minni hlaupa. Það verður engin breyting á þetta árið því ég hef markmið um stærri hlaup og mun að sjálfsögðu nota regenovex. Ég mæli með þessu efni frá innstu hjartarótum Valdís Sylvía Sigurþórsdóttir Einkaþjálfari í Sporthúsinu Foam flex stofnandi Icepharm a Hýalúrónsýra er lykilefni í brjóski og í liðvökvanum í liðamótum. Hýalúrónsýra er talin auka virkni liðvökvans sem virkar smyrjandi og höggdeyfandi á liðina. Með aldrinum gengur á þessar birgðir og með því að taka inn Regenovex endurhlöðum við þessar birgðir líkamans. Þegar magn og gæði liðvökvans sem umlykur liðina er ekki nægjanlegt geta myndast bólgur og sársauki. Bionovex olían er unnin úr grænkræklingi og er því náttúruleg. Bionovex olían inniheldur einstaka omega 3 olíu sem finnst aðeins í þessari tegund grænkræklings og hefur sýnt bólgueyðandi eiginleika.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.