Fréttablaðið - 30.04.2013, Síða 2
30. apríl 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 2
FÉLAGSMÁL „Ég er almennt á móti
því þegar hinir og þessir reyna að
eigna sér þennan dag. Menn eru að
setja upp alls konar íþróttamót og
hitt og þetta sem hefur farið í taug-
arnar á mér í gegnum árin,“ segir
Árni Stefán Jónsson, formaður
SFR, og vísar til Grænu göngunn-
ar, sem samtök umhverfisvernd-
arsinna hafa boðað til fyrsta maí
til að vekja athygli á umhverfis-
málum. Yfir þúsund manns höfðu
boðað komu sína í gönguna í gær.
„Ég veit ekkert akkúrat hvað
er þarna á ferðinni, en þegar ég
heyrði þetta kom snúður á mig.
Mín almenna skoðun er sú að
launþegahreyfingin eigi að eiga
athyglina fyrsta maí. Það fer
verulega í taugarnar á mér þegar
aðrir eru að reyna að troða sér inn
á þann dag.“
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
tekur undir orð Árna.
„Mér finnst að umhverfisvernd-
arsinnar, fyrirtækin í landinu og
aðrir hagsmunahópar eigi að leyfa
okkur að hafa þennan dag um
málefni launafólks,“ segir hann.
„Vissulega eru umhverfismálin
þar á meðal en þessi ganga er ekki
boðuð frá hagsmunum launafólks.“
Árni Finnsson, formaður Nátt-
úruverndarsamtaka Íslands, segir
verkalýðshreyfinguna ekki huga
nægilega mikið að umhverfismál-
um.
„Á sama tíma og ég skil að
verkalýðsleiðtogar vilji hafa
þennan dag fyrir sig verða þeir
að skilja að umhverfisvernd er að
verða ansi snar þáttur í að verja
lífskjör,“ segir hann. „Ég held að
umhverfismál séu víða tekin upp
á degi verkalýðsins.“
Guðmundur Ingi Guðbrandsson,
framkvæmdastjóri Landverndar,
segir gönguna ekki vera skipu-
lagða sem samkeppni við verka-
lýðinn. „Þetta hitti á þennan dag
því þetta er frídagur og svo vilj-
um við koma málum okkar á fram-
færi áður en ný ríkisstjórn verður
mynduð,“ segir hann. „Það er ekki
verið að beina þessu gegn verka-
lýðshreyfingunni á nokkurn hátt.“
sunna@frettabladid.is
Foringjarnir ósáttir
við Grænu gönguna
Formenn verkalýðsfélaga eru ósáttir við að samtök umhverfisverndarsinna hafi
stofnað til fjölmennrar göngu á frídegi verkalýðsins. Fer verulega í taugarnar á
mér, segir formaður SFR. Umhverfisverndarsinnar vísa gagnrýni á bug.
KRAFIST ÚRBÓTA Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir hvaða hópa sem er
hafa rétt á því að vekja athygli á sínum málefnum hvenær sem er, meira að segja
fyrsta maí. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
„Það er einfaldlega þannig að að sjálfsögðu má hver sem er krefjast hvers
sem er hvenær sem er og því er erfitt fyrir mann að gagnrýna slíkt,“
segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness. „Vissulega
er þetta alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins og hefur verið haldinn
hátíðlegur um alllanga hríð, en ég undirstrika að ég geri ekki athugasemd
við það ef einhverjir hópar vilja koma sínum málefnum á framfæri þá nýti
þeir tækifæri til slíks, hvar og hvenær sem er. Þannig virkar lýðræðið.“
„Þannig virkar lýðræðið“
Mér finnst að um-
hverfisverndarsinnar,
fyrirtækin í landinu og
aðrir hagsmunahópar eigi
að leyfa okkur að hafa
þennan dag um málefni
launafólks.
Gylfi Arnbjörnsson
Forseti ASÍ
Margrét, meiddirðu þig
nokkuð?
„Eftir fjögur ár á þingi er maður
kominn með þykkan skráp.“
Margrét Tryggvadóttir, sem náði kjöri til
Alþingis fyrir Borgarahreyfinguna árið 2009
og gekk síðar til liðs við Dögun, féll út af
þingi í kosningunum á laugardaginn.
HLÚÐ AÐ SLÖSUÐUM Háskólar eru í næsta nágrenni við húsið sem sprengingin
varð í og þurftu stúdentar að yfirgefa svæðið. Hlúð var að sumum hinna slösuðu á
staðnum. NORDICPHOTOS/AFP
TÉKKLAND, AP Minnst 35 eru slasaðir, þar af einn alvarlega, eftir
sprengingu í miðborg Prag í gærmorgun. Mögulegt er að þrír til
viðbótar séu fastir í rústum hússins sem sprengingin varð í.
Fréttir herma að mikil gaslykt hafi fundist bæði fyrir og eftir
sprenginguna, sem er talin hafa verið slys. Tveggja kílómetra svæði í
kringum húsið var lokað og nálægar byggingar rýmdar. Um fimmtán
manns eru sagðir hafa verið inni í húsinu þegar sprengingin varð. - þeb
Mögulegt að þrír hafi orðið undir rústum í Prag:
35 slasaðir eftir gassprengingu
JAFNRÉTTISMÁL Stórefla þarf rann-
sóknir á vændi, þar sem varpa
þarf ljósi á karla sem vændis-
kaupendur. Efla þarf rannsókn-
ir á ofbeldismenningu og þætti
karla í henni, bæði hvað varðar
ofbeldi í nánum samböndum og
ekki síst ofbeldi almennt.
Þetta er meðal niðurstaðna
starfshóps velferðarráðherra um
karla og jafnrétti, sem skipaður
var til að fjalla um hlut karla í
jafnréttismálum. Í skýrslu nefnd-
arinnar eru tíundaðar fimmtán
tillögur að sérstökum aðgerð-
um, rannsóknum og verkefnum.
Starfshópurinn var skipaður í
janúar 2011 sem liður í áætlun
ríkisstjórnarinnar í jafnréttis-
málum fyrir árin 2011-2014.
Vinnurammi starfshópsins var
að mestu bundinn við fimm svið:
Ofbeldi og kynbundið ofbeldi;
umönnun, fæðingarorlof og
forsjá; heilsu og lífsgæði; klám og
vændi og menntun og kynskiptan
vinnumarkað.
Í tillögunum bendir starfshóp-
urinn á nauðsyn þess að efla rann-
sóknir á ýmsum sviðum jafnrétt-
ismála. Auk þess sem að framan
er nefnt telur starfshópurinn
að rannsaka þurfi efnahags- og
félagslega stöðu meðlagsgreið-
enda, sem í flestum tilfellum eru
karlar. Þá telur starfshópurinn að
kanna verði þörf námskeiðs fyrir
foreldra um afleiðingar skilnaðar
á börn. - shá
Starfshópur um jafnrétti vill stórauka rannsóknir er varða jafnrétti og karla:
Stórefla þarf vændisrannsóknir
KVENNAFRÍ Ein niðurstaða nefndar-
innar er að stórauka þarf rannsóknir er
varða jafnréttismál.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
LEIÐRÉTT
Fylgi Lýðræðisvaktarinnar var
ranghermt í grafík blaðsins í gær.
Lýðræðisvaktin fékk 2,5 prósenta fylgi.
Þá vantaði nafn Tryggva Þórs Herberts-
sonar í lista yfir þá sem féllu af þingi
eða eru hættir.
DANMÖRK Nemendur og kennarar
mættu aftur í danska grunnskóla í
gær eftir fjögurra vikna fjarveru
vegna verkbanns sem samband
sveitarfélaga setti á tugi þúsunda
kennara vegna kjaradeilu.
Eftir algera pattstöðu hjuggu
stjórnvöld á hnútinn í síðustu
viku og settu lög á deiluna þar
sem ýmsar reglur voru settar um
vinnufyrirkomulag kennara til
að auka kennsluskyldu á kostnað
undir búningstíma kennara í sam-
ræmi við stefnu stjórnvalda.
Samkvæmt heimildum Berl-
ingske munu skólastjórnendur
fyrst um sinn skera niður undir-
búning kennara fyrir kennslu-
stundir í íþróttum, listgreinum og
handavinnu.
Það hugnast kennurum ekki og
segir Anders Bondo Christiansen,
formaður kennarasambandsins, að
með þessu sé verið að gera lítið úr
fögum sem útheimti sannarlega
undirbúning. Hann er óánægður
með hugmyndirnar í heild sinni.
- þj
Verkbanni á kennara í Danmörku lokið með lögum frá Kristjánsborgarhöll:
Allt á fullt í dönsku skólunum
ÚR BARÁTTUNNI Kennarar sýndu
mikla samstöðu á meðan á aðgerðum
stóð. Þeir eru nú komnir aftur til vinnu
eftir að lög voru sett á þá. NORDICPHOTOS/AFP
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur stað-
fest að Gestur Jónsson megi verja
Sigurð Einarsson, fyrrverandi
stjórnarformann Kaupþings, í
stóru markaðs- og umboðssvika-
máli sem höfðað hefur verið á
hendur Sigurði og átta öðrum fyrr-
verandi starfsmönnum Kaupþings.
Saksóknari í málinu hafði mót-
mælt því að Gestur yrði skipaður
verjandi þar sem Gestur baðst
lausnar sem verjandi Sigurðar í
svokölluðu al-Thani máli með þeim
afleiðingum að fresta þurfti aðal-
meðferðinni. Héraðsdómur gerði
ekki athugasemd við skipan Gests
og staðfesti Hæstiréttur þá niður-
stöðu. - jhh
Úrskurður staðfestur:
Gestur fær að
verja Sigurð
STJÓRNSÝSLA Rannsókn Eftirlits-
nefndar með rafrænum sjúkra-
skrám leiddi ekkert óeðlilegt
í ljós, samkvæmt ársskýrslu
nefndarinnar fyrir árið 2012.
Vegna frétta af þekktum ein-
staklingum sem leituðu til Land-
spítalans var kannað hvort óvið-
komandi hefðu opnað sjúkraskrár
þeirra. Þá óskuðu 56 sjúkling-
ar eftir lista yfir þá sem hefðu
opnað sjúkraskrá þeirra og fimm
beiðnir komu frá yfirmönnum
vegna gruns um misferli. - shá
Ekkert óeðlilegt kom í ljós:
Sjúkraskrárnar
ekki opnaðar
FÉLAGSMÁL
Ólafur kjörinn formaður
Ólafur G. Skúlason var kjörinn for-
maður Félags íslenskra hjúkrunarfræð-
inga næstu tvö árin í kosningu sem
lauk í gær. Hann var kjörinn fyrr á árinu
en kjör hans var lýst ógilt.
UMHVERFI
Torg að hætti borgarbúa
Reykjavíkurborg óskar eftir hjálp
borgarbúa við endursköpun almenn-
ingssvæða í borginni. Völdum svæðum
verður úthlutað ásamt styrkjum til
hugmyndavinnu og framkvæmda.
SPURNING DAGSINS