Fréttablaðið - 30.04.2013, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 30.04.2013, Blaðsíða 32
30. apríl 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 20 BAKÞANKAR Söru McMahon 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 KROSSGÁTA PONDUS Eftir Frode Øverli GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman MYNDASÖGUR LÁRÉTT 2. glata, 6. pot, 8. ískur, 9. rúm ábreiða, 11. ekki, 12. leiftur, 14. kjöt, 16. sjó, 17. mánuður, 18. ránfugl, 20. átt, 21. uppspretta. LÓÐRÉTT 1. íþrótt, 3. tvíhljóði, 4. fjölmiðlar, 5. regla, 7. raddfæri, 10. frostskemmd, 13. er, 15. ávöxtur, 16. sauðaþari, 19. ónefndur. LAUSN LÁRÉTT: 2. tapa, 6. ot, 8. urg, 9. lak, 11. ei, 12. flass, 14. flesk, 16. sæ, 17. maí, 18. örn, 20. nv, 21. lind. LÓÐRÉTT: 1. golf, 3. au, 4. pressan, 5. agi, 7. talfæri, 10. kal, 13. sem, 15. kíví, 16. söl, 19. nn. Jói! Hvað í veröldinni á þetta að fyrirstilla? Hvað? Þetta? Samkvæmt hommanum sem þú mæltir með er þetta fabulous, fabulous! Ég held að ég þurfi að eiga smá spjall við þann mann... Það er best! Held nefnilega að hann sé smá skotinn í Jóa! If you catch my drift! En hann var ekki hrifinn af Kizz bolnum! Það var þá eitt- hvað! Þá keyrum við á ber að ofan- stílnum! Jæja, orðinn þyrstur! Þarf að skjótast á barinn! OK, svolitlar kúlur eru rómantískar en stórar eru það ekki? Er það málið? Ég var að reyna að útskýra vandamál mín fyrir honum Tedda en fannst auðveldara að sýna honum þig bara. Hvað fékkstu í nesti? Hnetusmjör og sultu. En þú? Mamma er að reyna að vera umhverfisvæn. svo ég fékk afganga pakkaði inn í gamla smjördollu. Í dag er það túnfisks-núðlu- pottréttur og kjúklingasalat. Ég þarf kannski ekki að seg ja að ég er til í að skipta. Ég held að ég setjist þarna hinum megin. Klæddu þig í! Þegar ég var tiltölulega nýskriðin á þrí-tugsaldurinn nam ég markaðsfræði við skóla einn í Danmörku. Stuttu eftir að önnin hófst kom í ljós að áhugi minn á mörkuðum, hagkerfum og tölfræði var takmarkaður og ég var fljót að fá mig fullsadda á náminu. Tölfræðin gleymd- ist fyrst, hagfræðin næst en ég man enn eitt úr markaðsfræðitímanum; umfjöllun kennarans um karl- og kvenlæg lönd og markaði. SAMKVÆMT kennara mínum mátti skipta löndum heims í tvo flokka; karllæg og kvenlæg lönd. Bandaríkin, Kína og Ítalía voru á meðal þeirra landa sem féllu undir skilgreininguna á karllægu landi. Lönd í Skand- inavíu féllu hins vegar í síðar- nefnda flokkinn. Og hvernig veit maður hvort land tilheyr- ir fyrrnefnda flokknum eða ekki, kunna sumir ef til vill að spyrja sig. Samkvæmt kenn- ara mínum höfðu stjórn- unar- og samskiptahættir hvers lands áhrif þar á. Í karllægum löndum var ríkjandi sá hugsunarhátt- ur að best væri að fá sínu framgengt á kostnað hins; svonefnt win-lose hugar- far. Í kvenlægum löndum ríkti aftur á móti svokallað win-win hug- arfar; allir eiga að ganga sáttir frá borði. FRÁ blautu barnsbeini var mér kennt að mér bæri að deila með mér og alls ekki skilja út undan. Við hátíðleg tæki- færi fengum við systkinin stundum ís í eftirrétt og var þá eitt okkar valið til að skammta í skálarnar. Við deildum ísnum með hárfínni nákvæmni því sá sem skammtaði fékk síðastur að velja og maður vildi alls ekki eiga það á hættu að fá skálina sem minnst var í. Þessi hugs- unarháttur, að deila með sér, hefur fylgt mér frá barnæsku, í gegnum unglingsárin og allt fram á fullorðinsár. Það er líklega uppeldinu að þakka (eða kenna) að mér þykir skrítið að hugsa til þess að jöfnuður og jafnrétti skuli ekki vera á stefnuskrá hverrar manneskju. Ef til vill lærðu sumir aldrei að deila með sér, kannski lifa aðrir í stöðugum ótta um að hljóta ísskálina sem minnst var í af því þeir deildu ekki jafnt? „ÞEGAR ég læt gott af mér leiða, líður mér vel. Þegar ég læt illt af mér leiða, líður mér illa. Það eru trúarbrögð mín,“ sagði Abraham Lincoln eitt sinn og þykir mér mikið til kauða koma miðað við þessi orð hans. Mikið væri nú ljúft ef orð Lincolns væru höfð í hávegum á nýju kjör- tímabili sem og kvenlæg gildi í bland við þau karllægu. Aðeins þannig munu allir vinna. Allir vinna, enginn tapar Fáðu þér áskrift 512 5100 stod2.is TEKST REAL HIÐ ÓMÖGULEGA? Spænsku meistararnir þurfa að vinna upp þriggja marka forskot þeirra þýsku í stórleiknum á Bernabeau kvöld! Fylgstu með í leiftrandi háskerpu! REAL MADRID DORTMUND Í KVÖLD KL. 18:30 F ÍT O N / S ÍA F I0 14 8 8 1 ÞORSTEINN J. OG GESTIR KL. 18:00

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.