Fréttablaðið - 30.04.2013, Blaðsíða 46
30. apríl 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 34
„Sú bók sem er á náttborðinu mínu
í augnablikinu er þýdd bók eftir
Paul McGee sem nefnist Meira
sjálfstraust.“
Friðrik Ómar Hjörleifsson söngvari
BÓKIN
„Ég er bara að flýja úr landi. Mig grunaði
hvernig kosningarnar myndu fara þannig
að ég hef bara hraðann á,“ segir Sigurður
Guðmundsson úr Hjálmum og Memfis-
mafíunni í léttum dúr.
Sigurður flytur til Noregs um mánaða-
mótin júlí/ágúst ásamt fjölskyldu sinni.
„Við ákváðum bara að prófa eitthvað nýtt
og fá aðeins víðari sýn á þetta litla heima-
sker hérna,“ segir hann og stefnir á að búa
í Ósló í að minnsta kosti tvö ár. „Ég held
að það verði ágætt að hvíla sig aðeins á
Íslandi í smá tíma.“
Eiginkona Sigurðar, sem er uppalin í
Noregi, er komin með vinnu þar í landi
og dóttir þeirra er komin með leikskóla-
pláss. Sjálfur segist hann ekki vita hvað
hann ætlar að gera. „Það er ekkert fast-
neglt tónlistarlega. Ég ætla bara að lenda
á götunni og sjá hvað gerist.“
Aðspurður hvað verði um Hjálma segist
hann ekki hafa áhyggjur af því. „Um árið
vorum við að reka Hjálma með þremur
Svíum sem bjuggu í Svíþjóð. Það er ekki
eins og ég sé að fara yfir hálfan hnött-
inn. Við erum þar að auki búnir að spila
svo mikið á Íslandi að við höldum okkur
aðeins til hlés. En við erum ekkert að fara
að leggja upp laupana.“
Hjálmar gáfu nýverið út plötuna Dub of
Doom með finnska tónlistar-
manninum Jimi Tenor. „Ég
er gríðarlega ánægður
með hana,“ segir hann.
- fb
Siggi í Hjálmum fl ytur til Noregs
Sigurður Guðmundsson leggur land undir fót og fl ytur til Óslóar seinna í sumar.
TIL NOREGS Sigurður Guð-
mundsson flytur til Noregs
síðar í sumar.
➜ Sigurður segir að stefnt
sé á útgáfu „hreinræktaðrar“
Hjálma plötu síðar á árinu.
„Þetta er búið að vera baráttumál
hjá Útón [Útflutningsskrifstofu
íslenskrar tónlistar] í langan
tíma,“ segir Sigtryggur Baldurs-
son, formaður Útón.
Nýr sjóður sem hefur það að
markmiði að styðja við útflutn-
ing tónlistar hefur tekið til
starfa og nefnist hann Útflutn-
ingssjóður íslenskrar tónlistar.
Í sjóðinn verður hægt að sækja
um ferðastyrki mánaðarlega og
ársfjórðungslega verða veittir
tveir styrkir sem nema 500 þús-
und krónum og einn styrkur sem
nemur einni milljón króna. Sjóð-
urinn er hluti af fjárfestingar-
áætlun ríkisstjórnarinnar í skap-
andi greinum.
Í stjórn sjóðsins sitja þau
Ragnhildur Gísladóttir formað-
ur, Sigtryggur Baldursson,
fyrir hönd Útón, og Kamilla Ingi-
bergsdóttir, markaðs- og kynn-
ingarstjóri Iceland Airwaves.
Varamenn eru þau Árni Heim-
ir Ingólfsson, Tómas Young og
Margrét Örnólfsdóttir.
Aðspurður um muninn á
Útflutningssjóðnum og Útón
segir Sigtryggur: „Við hjá Útón
höfum ekki verið með mikið af
fjármagni til að setja í beina
styrki. Við höfum verið að setja
fjármagn í ferðastyrki til tón-
listarmanna sem eru að fara út
að spila á hátíðum sem við höfum
verið að vinna í, eins og Euro-
sonic og by:Larm, en það hefur
ekki verið hægt að sækja um
ferðastyrki eins og þetta er hugs-
að. Þetta eru líka átaksstyrkir til
að gera aðeins stærri verkefni,“
segir hann. - fb
Stofna sjóð fyrir
íslenska tónlist
Nýr tónlistarsjóður styrkir íslenska tónlist erlendis.
SIGTRYGGUR BALDURSSON
Sigtryggur er stjórnarmaður í
Útflutningssjóði íslenskr-
ar tónlistar.
„Þegar við tókum upp lagið kom
upp gamli Quarashi-aðdáandinn í
mér,“ segir söngkonan Rakel Mjöll
Leifsdóttir, sem syngur með rapp-
aranum Sölva Blöndal og sveitinni
Halleluwah í laginu Blue Velvet.
Rakel er menntuð í djasssöng frá
FÍH og hefur sungið með sveitun-
um Sykri og Útidúr en söðlaði um í
haust er hún hóf nám í tónsmíðum
og sjónlist í Brighton. Hún var þá
tilbúin að leggja sönginn á hilluna
í bili en Sölvi fékk hana til að snú-
ast hugur. Nú hefur hún tekið upp
listamannsnafnið Raketa og ætlar
að sameina sönginn og sjónlistina
en hún leikstýrir nýútkomnu
myndbandi við lagið Blue Velvet.
„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga
á myndböndum og að búa til mína
eigin list. Þegar Sölvi hafði sam-
band við mig síðasta sumar leist
mér mjög vel á að prufa að syngja
með honum þó að í sjálfu sér væri
ég ekkert að spá í að gera meiri
tónlist á þeim tíma,“ segir Rakel
en lagið var tekið upp um jólin og
myndbandið í páskafríinu.
Samstarfið gekk svo vel að
Rakel ætlar að koma til Íslands
í sumar í þeim tilgangi að búa
til fleiri lög með Sölva og Hal-
leluwah. „Það er dásamlegt að
vinna með Sölva og við náðum vel
saman. Þess vegna ætlum við að
halda þessu áfram, taka upp fleiri
lög og sjá hvert það leiðir okkur,“
segir Rakel sem er spennt að koma
heim í sumar en hún á rúm tvö ár
eftir af námi sínu í Brighton. Hægt
er að hlusta á lagið Blue Velvet á
síðunni Gogoyoko.com og Sound-
cloud.com. alfrun@frettabladid.is
Syngur með Sölva
Rakel Mjöll Leifsdóttir er komin í samstarf við rapparann Sölva Blöndal og sveit
hans Halleluwah en hún hefur áður sungið með sveitunum Sykri og Útidúr.
SYNGUR OG LEIKSTÝRIR Rakel Mjöll Leifsdóttir syngur með Sölva Blöndal og sveitinni Halleluwah í laginu Blue Velvet en hún
sá einnig um að leikstýra myndbandi við lagið.
Rakel sá um að leikstýra myndbandinu við lagið Blue Velvet. Það var tekið
upp á heimili Sölva Blöndal í páskafríinu. „Hann var nýfluttur inn og engin
húsgögn komin og því tilvalið rými fyrir tökur,“ segir Rakel, sem fékk tvo
vini sína til að vera við myndavélina. „Þeir Snorri Hertervig og Bruno
Granato sáu um kvikmyndatöku en þeir eru mjög hæfileikaríkir. Bruno
er frá Brasilíu og hefur meðal annars unnið fyrir Mtv Brazil og brazilísku
grúppuna CSS.“
Myndbandið er með heldur dökku yfirbragði og með innblástur frá
verkum leikstjórana David Lynch og Tyrone Lebon. Það var frumsýnt um
helgina og náði þrjú þúsund áhorfum á fyrsta deginum.
3.000 ÁHORF Á EINUM DEGI
„Þorpið verður í anda Bakken í Kaupmanna-
höfn. Fólk getur gengið um svæðið, fengið
sér kaffi og virt fyrir sér starfsemina, en það
kostar inn á allar sýningarnar,“ segir Ilmur
Dögg Gísladóttir, kynningar- og verkefnastjóri
Norræna hússins, um sirkushátíð sem fram
fer í Vatnsmýrinni dagana 4. til 14. júlí. Nor-
ræna húsið skipuleggur hátíðina í samstarfi við
Circus Xanti frá Noregi.
Heilt sirkusþorp með fjórum sýningar-
tjöldum og kaffihúsatjaldi mun rísa á bílastæð-
inu gegnt Háskóla Íslands á meðan á hátíðinni
stendur. Þrettán sirkushópar taka þátt í hátíð-
inni í sumar og koma þeir víða að.
„Alls taka um hundrað manns þátt í hátíð-
inni. Hóparnir koma meðal annars frá Noregi,
Írlandi, Svíþjóð og Finnlandi. Flestar sýning-
arnar höfða til fólks á öllum aldri en á kvöldin
fara fram nokkrar sýningar sem ekki eru ætl-
aðar börnum undir 16 ára aldri,“ segir Ilmur
Dögg og vísar þar til sýningar íslenska sirkus-
hópsins Skinnsemi.
Miðasala á einstakar sýningar hefst á morgun
og fer fram á Midi.is, í móttöku Norræna húss-
ins og í Borgarleikhúsinu. - sm
Sirkusfólk fj ölmennir í Mýrina
Sirkuslistahátíð fer fram í Vatnsmýrinni í sumar. Fjögur sirkustjöld verða reist.
FJÖLSKYLDUVÆN
SKEMMTUN Ilmur Dögg
Gísladóttir, verkefnastjóri
Norræna hússins, segir
sirkushátíðina í Vatns -
mýr inni ætlaða allri
fjölskyldunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
FJÖGUR
TJÖLD RÍSA:
➜ Eyjafjallajökull
(22 metrar)
➜ Katla (16 metrar)
➜ Hekla (12 metrar)
➜ Askja (6 metrar)
Ljósið endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð
fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur
Langho l tsveg i 43, 104 Reyk jav ík , S ími 561 3770,
l jos id@l jos id .org , www. l jos id . i s
Fyrirlestur og umræður fyrir foreldra sem greinst
hafa með krabbamein og eiga ung börn ca. undir
10 ára aldri. Sr. Vigfús Bjarni Albertsson kemur
og heldur fyrirlestur og stýrir umræðum um þetta
mikilvæga málefni fimmtudaginn 2. maí kl. 20:00.
Vinsamlegast skráið þátttöku í síma 5613770.
Krabbamein
- Hvað á ég að segja við börnin mín?