Fréttablaðið - 30.04.2013, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 30.04.2013, Blaðsíða 10
30. apríl 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 10 2013 Háskóli Íslands býður upp á úrval námskeiða í viðskiptafræði með vinnu. Kynntu þér námið á vmv.hi.is Umsóknarfrestur er 5. júní Viðskiptafræði með vinnu Aukin þekking - fjárfesting til framtíðar BIRTING LÝSINGAR Útgefandi: REG 1 fagfjárfestasjóður, kennitala 680912-9390, Borgartúni 19, 105 Reykjavík REG 1 fagfjárfestasjóður hefur birt lýsingu í tengslum við umsókn um að flokkur eignavarinna skuldabréfa væri tekinn til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. Lýsingin er dagsett 29. apríl 2013 og staðfest af Fjármálaeftirlitinu, gefin út á íslensku og gefin út rafrænt og birt á vefsíðu Stefnis hf. sem er rekstraraðili sjóðsins, nánar tiltekið á slóðinni www.stefnir.is/kaupholl. Lýsinguna má nálgast á vefsíðunni næstu 12 mánuði. NASDAQ OMX Iceland hf. tilkynnir opinberlega ef skuldabréfin eru tekin til viðskipta og þá hvenær fyrsti mögulegi viðskiptadagur með bréfin er á hinum skipulega verðbréfamarkaði, en NASDAQ OMX Iceland hf. tilkynnir slíka dagsetningu með að lágmarki eins viðskiptadags fyrirvara. Skuldabréfin eru gefin út af REG 1 fagfjárfestasjóði sem rekinn er af Stefni hf. Upphafleg höfuðstólsfjárhæð útgefinna skuldabréfa, sem öll hafa verið seld, og heildarheimild útgáfu nemur 5.500.000.000 kr. að nafnverði. Bréfin eru gefin út rafrænt í kerfi Verðbréfaskráningar Íslands hf. Auðkenni flokksins er REG1 12 1. ISIN-númer skuldabréf- anna er IS0000022226. Bréfin eru gefin út í íslenskum krónum og er hver eining skuldabréfanna 1 kr. að nafnverði. Tilgangur með því að fá skuldabréfin tekin viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. er að tryggja fjárfestum að starfshættir og upp- lýsingagjöf um m.a. fjárhagsstöðu útgefanda séu í samræmi við Reglur fyrir útgefendur fjármálagerninga, útgefnar af NASDAQ OMX Iceland hf., eins og þær eru á hverjum tíma, svo og að auka markaðs- hæfi skuldabréfanna. Nánari upplýsingar um REG 1 fagfjárfestasjóð og skuldabréfaflokkinn REG1 12 1 má finna í lýsingu sjóðsins. Fyrirtækjaráðgjöf Fjárfestinga- bankasviðs Arion banka hf. hafði umsjón með því ferli að fá skulda- bréfin tekin til viðskipta í Kauphöllinni. Reykjavík, 29. apríl 2013 Stjórn Stefnis hf. Skoðanakannanir sem birtar voru í aðdraganda þingkosninganna á laugardag fóru almennt mjög nærri úrslitunum. Könnun Félags- vísindastofnunar Íslands fór næst úrslitunum en könnun MMR kom næst á eftir. Fjögur fyrirtæki könnuðu fylgi flokkanna með skoðanakönnun- um fyrir þessar alþingiskosning- ar. Fréttablaðið og Stöð 2 gerðu sameiginlegar kannanir sem birtust í þeim miðlum, Capacent Gallup gerði skoðanakannanir fyrir fréttastofu Ríkisútvarpsins og Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði kannanir fyrir Morg- unblaðið. Þá birti könnunarfyrir- tækið MMR niðurstöður sinna kannana opinberlega reglulega fyrir kosningarnar. Öll þessi fyrirtæki birtu niður- stöður kannana í vikunni fyrir kosningar. Þegar niðurstöðurnar eru bornar saman við niðurstöður kosninga kemur í ljós að Félags- vísindastofnun komst að meðal- tali næst niðurstöðunni hjá þeim fimmtán framboðum sem kosið var á milli. Að meðaltali munaði 0,61 prósentustigi á fylgi hvers flokks í könnun Félagsvísindastofnunar, sem gerð var dagana 17. til 23. apríl. Næstminnstu munaði í könnun MMR, sem gerð var dagana 22. til 25. apríl, eða 0,66 prósentustigum að meðaltali. Litlu meiru munaði í könnun Fréttablaðsins og Stöðv- ar 2, um 0,7 prósentustigum að meðaltali, en könnunin var gerð dagana 22. til 24. apríl. Mestur var munurinn í könnun Capacents, sem gerð var dagana 18. til 25. apríl, 0,73 prósentustig að meðaltali. brjann@frettabladid.is Félagsvísindastofnun komst næst úrslitum Afar litlu munaði að meðaltali á niðurstöðum kannana og kosninganna á laugar- dag. Fjórar kannanir voru birtar vikuna fyrir kosningarnar og komst Félagsvís- indastofnun Háskóla Íslands næst niðurstöðunum og MMR var næst á eftir. Það vekur athygli hve niðurstöður allra kannananna voru nálægt úrslitunum, segir Svandís Nína Jónsdóttir stjórnmálafræðingur, sem hefur rannsakað skoðana- kannanir fyrir alþingiskosningar. Hún bendir þó á ákveðin tilvik sem skeri sig frá. Fréttablaðið og Stöð 2 mældu til að mynda fylgi Sjálf- stæðisflokksins talsvert undir kjörfylgi. Þá mældi MMR fylgi Framsóknarflokksins talsvert undir kjörfylgi, en fylgi Pírata vel yfir kjörfylginu. Kannanir sýndu miklar fylgissveiflur fyrir kosning- arnar, en aðallega hjá stóru flokkunum fjórum, segir Svandís Nína. Minni sveiflur mældust á fylgi minni framboðana, þrátt fyrir mikla eftirspurn kjósenda eftir einhverju nýju, sem endurspeglast í því að um fjórðungur kjósenda kaus eitthvert af nýju framboðunum. ➜ Sveiflurnar mestar hjá stóru flokkunum SVANDÍS NÍNA JÓNSDÓTTIR SJÁVARÚTVEGUR Góð veiði hefur verið á kolmunna- miðunum við Færeyjar eftir að veður gekk þar niður. Til Neskaupstaðar tínast skip Síldarvinnslunnar eitt af öðru til hafnar með góðan afla; Börkur NK kom til Seyðisfjarðar með fullfermi eða 1.800 tonn og Beitir NK með fullfermi eða 2.100 tonn. Flest skipanna eru að fá 300 til 500 tonn í holi en misjafnt er hve lengi er togað. Stystu holin eru oft um fjórir tímar en stundum er togað í allt að tíu tíma. Veiðisvæðið er hið sama og verið hefur að undan- förnu; um 90 mílur suður af Suðurey. Fjarlægðin frá veiðisvæðinu er um 350 mílur og eru skipin um einn og hálfan sólarhring að sigla frá miðunum til Aust- fjarðahafna í góðu veðri. Í Neskaupstað er búið að taka á móti um 8.300 tonn- um af kolmunna til mjöl- og lýsisvinnslu. Þá hefur einnig verið landað liðlega 1.450 tonnum af frystum kolmunna í Neskaupstað. Flutningaskipið Green Guatemala liggur nú í höfn í Neskaupstað við að lesta frysta loðnu sem fer til Svartahafsins. Um er að ræða eina stærstu útskipun ársins en skipið mun taka 5.000 tonn af afurðum. - shá Flutningaskip sækja frysta loðnu og rýma fyrir kolmunnaafurðum: Góð kolmunnaveiði eftir brælu Í NORÐFJARÐARHÖFN Mikið líf er að jafnaði í höfninni á þessum tíma árs. MYND/KRISTÍN HÁVARÐSDÓTTIR ÍTALÍA, AP Fjármálamarkaðir virðast taka Enrico Letta, forsætisráðherra Ítalíu, fagnandi ef marka má skuldabréfaútboð ríkissjóðs í gær. Að morgni sama dags og nýja ríkisstjórnin var samþykkt í neðri deild þingsins fékk ríkis- sjóður Ítalíu bestu lánakjör sem hann hefur fengið frá árinu 2010. Alls seldu Ítalir tíu ára skuldabréf fyrir þrjá milljarða evra með ávöxtunarkröfu upp á 3,94% í samanburði við 4,66% í síðasta útboði. Þá seldust fimm ára skuldabréf, einnig fyrir þrjá milljarða evra, með 2,84% ávöxtunarkröfu miðað við 3,65% í síðasta útboði. Samsteypustjórn Lettas, þar sem stóru flokk- arnir tveir koma saman, á enn eftir að fá sam- þykki öldungadeildarinnar, en tillaga þess efnis verður lögð fram í dag. Verði hún samþykkt lýkur tveggja mánaða stjórnarkreppu í Ítalíu. Letta bíður stórt verkefni þar sem Ítalía er í erfiðri stöðu efnahagslega. Síðustu misseri hafa stjórnvöld þurft að grípa til erfiðra og óvinsælla aðhaldsaðgerða. Letta boðaði ákveðinn viðsnúning í gær, meðal annars að lækka skatta á ungt fólk og afnema fasteignaskatta, en hann hyggst einnig efla hagvöxt og vinna á atvinnuleysi og spillingu. Hlutabréfamarkaðir tóku einnig við sér og hækkuðu um 1,5% snemma dags. - þj Lántökukostnaður Ítalíu lækkar og nýr forsætisráðherra boðar aðgerðir til að efla hagvöxt: Bjartsýni fylgir nýrri stjórn Enricos Letta Á ÞINGI Enrico Letta ávarpaði neðri deild ítalska þingsins í gær. Fjármálamarkaðir tóku nýrri stjórn fagnandi, en Letta boðar umfangsmiklar aðgerðir til að efla hagvöxt í landinu. NORDICPHOTOS/AFP ORKUMÁL Hlutfall endurnýjan- legra orkugjafa af heildar- orkunotkun ESB-ríkjanna nam einungis um fjórtán prósentum árið 2011 að því er fram kemur í nýjum tölum frá Eurostat. Ríkin hafa aukið notkun slíkra orku- gjafa síðustu ár, hlutfallið var aðeins tæp átta prósent árið 2004. Af ríkjunum 27 eru Svíar efst- ir á blaði með tæpan helming orkunotkunar í endurnýjanleg- um orkugjöfum, en Lettar koma næstir með tæpan þriðjung. - þj Nýjar tölur frá Eurostat: Meira af endur- nýjanlegri orku NIÐURSTÖÐUR KOSNINGA OG SÍÐUSTU KANNANA FYRIR KJÖRDAG 30% 25% 20% 15% 10% 5% 0% Niðurstöður kosninga ■ FBL 22. til 24. apríl ■ MMR 22. til 25. apríl ■ Gallup 18. til 25. apríl ■ Félagsvísindastofnun 17. til 23. apríl 5,1% 10,9% 12,9% 26,7% 24,4% 8,2%

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.