Fréttablaðið - 30.04.2013, Side 4
30. apríl 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 4
FUNDAÐ MEÐ FORSETA Bjarni Benediktsson mætti fyrstur flokksformannanna á Bessastaði í gær, klukkan ellefu að morgni. Hann sat með forsetanum í hálfa aðra klukku-
stund, eins og Sigmundur Davíð, sem mætti á eftir honum. Hinir formennirnir komu svo í röð eftir stærð þingflokkanna og funduðu í tæpan klukkutíma hver; Árni Páll Árna-
son, Katrín Jakobsdóttir, Heiða Kristín Helgadóttir og Guðmundur Steingrímsson og loks Birgitta Jónsdóttir. Engar ákvarðanir voru þó teknar í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM,VALLI,DANÍEL
2013
Það eru engar alvöru
viðræður hafnar á milli
flokka, en ég er þeirrar
skoðunar að Framsóknar-
flokkurinn og Sjálfstæðis-
flokkurinn ættu að setja
kraft í viðræður sín á milli
Bjarni Benediktsson
formaður Sjálfstæðisflokksins
Forystumenn Sjálfstæðisflokksins
og Framsóknarflokksins bíða þess
nú hverjum forseti Íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson, felur stjórnar-
myndunarumboð, áður en viðræð-
ur flokkanna um mögulegt ríkis-
stjórnarsamstarf fara á flug.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, leit reyndar
svo á, að loknum fundi sínum með
forsetanum á Bessastöðum í gær,
að ekki væri eftir neinu að bíða.
„Það eru engar alvöru viðræð-
ur hafnar á milli flokka, en ég er
þeirrar skoðunar að Framsóknar-
flokkurinn og Sjálfstæðisflokkur-
inn ættu að setja kraft í viðræður
sín á milli og ég geri ráð fyrir því
að það gerist í dag. Aðrir hafa ekki
verið í myndinni,“ sagði hann eftir
fundinn, sem var sá fyrsti í langri
fundalotu forsetans með forystu-
mönnum allra flokka sem fengu
menn kjörna á þing um helgina.
Sigmundur Davíð var hins vegar
á öðru máli eftir að hann hafði
fundað með forsetanum. Spurður
hvort hann væri jafnbjartsýnn og
Bjarni á að ríkisstjórn Framsóknar
og Sjálfstæðisflokks yrði að veru-
leika sagði hann „allt of snemmt að
fara að spá í það – nú er málið hjá
forsetanum“.
Hann játti því að þeir Bjarni
hefðu hist á stuttum fundi að loknu
sjónvarpsviðtali í fyrrakvöld og
farið yfir stöðuna í þjóðfélaginu.
Engar viðræður væru hins vegar
farnar af stað og það mundu þær
ekki gera strax. „Ekki fyrr en for-
setinn hefur tekið af skarið.“
Heimildir Fréttablaðsins herma
enda að ósköp lítið hafi gerst í þreif-
ingum flokkanna tveggja í gærdag
og -kvöld. Nú bíði menn þess ein-
faldlega að forsetinn kveði upp úr
með það hver skuli leiða viðræður
Sigmundur vill bíða eftir forsetanum
Viðræður Sjálfstæðisflokks og Framsóknar um myndun nýrrar ríkisstjórnar bíða ákvörðunar forsetans um hvorum formanninum hann
felur umboðið. Bjarni Benediktsson vildi einhenda sér í verkið í gær en Sigmundur Davíð Gunnlaugsson vildi fara hægar í sakirnar.
um myndun nýrrar stjórnar, Bjarni
eða Sigmundur. Þeirrar ákvörðun-
ar er líklega að vænta í dag.
Bæði Árni Páll Árnason, formað-
ur Samfylkingarinnar, og Birgitta
Jónsdóttir, kafteinn Pírata, sögðu
við fréttamenn að loknum fund-
um sínum með forsetanum að
þeim þætti eðlilegast að Sigmundi
Davíð yrði falið umboðið til stjórn-
armyndunar og hefðu tjáð forset-
anum þá skoðun sína.
„Ég sagði það sem ég hef áður
sagt að mér finnst einboðið að for-
maður Framsóknarflokksins fengi
stjórnmyndunarumboðið í ljósi
þingkosninganna, hann er auðvitað
stærsti sigurvegari kosninganna,“
sagði Árni Páll.
Formenn Bjartrar framtíðar,
þau Heiða Kristín Helgadóttir og
Guðmundur Steingrímsson, sögð-
ust ekki taka afstöðu til þess hvort
Bjarni eða Sigmundur fengi umboð-
ið og Katrín Jakobsdóttir, formað-
ur Vinstri grænna, vildi ekki svara
spurningu fréttamanna þar að lút-
andi, frekar en öðrum.
Enginn hinna formannanna sagð-
ist hafa heyrt frá Bjarna eða Sig-
mundi um mögulega þátttöku í rík-
isstjórn.
Guðmundur og Heiða sögðust þó
reiðubúin til viðræðna. „Svo erum
við bara í símaskránni ef einhver
þarf á okkur að halda,“ sagði Heiða.
Birgitta sagði Pírata hins vegar
ekki vilja eiga aðild að ríkisstjórn
– til þess væri þingflokkurinn of
smár og hann gæti gert meira gagn
með aðhaldi utan stjórnar.
stigur@frettabladid.is
DÓMSMÁL Jóhann Ragnar Páls-
son, fyrrverandi umdæmisstjóri
Þróunarsamvinnustofnunar
Íslands (ÞSSÍ) í Mósambík, var
í gær dæmdur í fimmtán mán-
aða fangelsi, þar af tólf skilorðs-
bundna, fyrir fjárdrátt í starfi.
Dómurinn var kveðinn upp
í Héraðsdómi Reykjavíkur en
hvorki Jóhann né verjandi hans
voru viðstaddir. Skaðabótakröfu á
hendur honum var vísað frá.
Mál Jóhanns var þingfest í mars
síðastliðnum en þar játaði hann
afbrotin. Hann var ákærður fyrir
að draga sér tæplega fimmtán
milljónir króna sem starfsmaður
Þróunarsamvinnustofnunar á fjög-
urra ára tímabili.
Féð notaði hann meðal annars til
þess að kaupa utanborðsmótor og
tölvu til eigin nota, auk þess sem
hann notaði féð til þess að greiða
fyrir viðgerð á eigin bíl.
Samkvæmt ákæru reyndi
Jóhann að fela slóð sína meðal ann-
ars með því að útbúa falskar skýr-
ingar á hvarfi fjárins. - shá
Umdæmisstjóri ÞSSÍ í Mósambík dæmdur fyrir 15 milljóna króna fjársvik:
Fékk fangelsisdóm fyrir fjársvik
Í MÓSAMBÍK Íslendingar hafa miðlað
þekkingu um fiskveiðar sem hluta af
þróunarstarfi í landinu.
DANMÖRK Belginn Lors Douk-
ajev, sem var dæmdur til tólf ára
fangelsisvistar árið 2011 fyrir
að hafa áformað að senda bréfa-
sprengju á ritstjórn Jótlandspóst-
sins árið áður, hefur verið fram-
seldur til Belgíu.
Doukajev, sem vakti athygli
sem einfætti sprengjumaður-
inn frá Tsjetsjeníu, stórslasað-
ist þegar sprengja hans sprakk á
hótelherbergi hans áður en hann
gat látið verða af spellvirkinu.
- þj
Hugðist sprengja ritstjórn:
Sprengjumaður
heim til Belgíu
208,5106
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
116,83 117,39
181,41 182,29
152,8 153,66
20,489 20,609
20,066 20,184
17,863 17,967
1,1923 1,1993
176,23 177,29
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
GENGIÐ
29.04.2013
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigrún Kristinsdóttir sigrunp@365.is, Sigurjón Viðar Friðriksson sigurjon@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Steinunn Sandra Guðmundsdóttir ssg@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Dagskrá skv. lögum félagsins er:
1. Setning fundar og dagskrá kynnt.
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
3. Skýrsla stjórnarinnar um störf félagsins á liðnu starfsári.
4. Umræða um skýrslu stjórnar.
5. Skoðaðir reikningar lagðir fram og skýrðir.
6. Umræða um reikninga og þeir bornir upp til samþykktar.
7. Skýrslur nefnda, ef kjörnar hafa verið.
8. Tillögur/lagabreytingar frá stjórn, nefndum eða félagsmönnum.
9. Kjör stjórnar, varamanna og fastanefnda.
10. Kjör Skoðunarmanna.
11. Önnur mál.
12. Fundarslit.
Rétt til setu á aðalfundi hafa allir félagar í öllum deildum og móðurfélagi
sem hafa staðið full skil á gjöldum til félagsins. Hinir sömu hafa einnig
atkvæðisrétt á aðalfundi.
Stjórnin
Aðalfundur
Ferðaklúbbsins 4x4
verður miðvikudagskvöldið 8. maí kl. 20:00.
Fundarstaður er Hótel Natura (Loftleiðir).
Ingibjörg Karlsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Fimmtudagur
Strekkingur NV- lands annars hægari.
SVALT verður á landinu fram eftir vikunni en á fimmtudag snýst til suðvestanáttar
með hlýnandi veðri og á föstudag verður væntanlega orðið frostlaust á láglendi.
-2°
5
m/s
0°
6
m/s
2°
5
m/s
2°
12
m/s
Á morgun
Fremur hægur vindur um allt land.
Gildistími korta er um hádegi
3°
3°
1°
0°
1°
Alicante
Aþena
Basel
19°
29°
19°
Berlín
Billund
Frankfurt
16°
12°
12°
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
18°
10°
10°
Las Palmas
London
Mallorca
22°
13°
18°
New York
Orlando
Ósló
18°
30°
13°
París
San Francisco
Stokkhólmur
14°
23°
12°
2°
6
m/s
0°
6
m/s
-2°
3
m/s
-2°
3
m/s
-2°
4
m/s
0°
6
m/s
-5°
5
m/s
1°
-2°
1°
-1°
-2°