Fréttablaðið - 30.04.2013, Side 6
30. apríl 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 6
PI
PA
R\
TB
W
A
SÍ
A
Skráning fer fram á
www.promennt.is
og þar má einnig finna
allar nánari upplýsingar.
STYRKTU
STÖÐU ÞÍNA
www.promennt.is
Skeifunni 11B 108 Reykjavík Sími 519 7550 promennt@promennt.is
SKRÁÐU ÞIG NÚNA!
BÓKARANÁM FYRIR
LENGRA KOMNA – AUKAHÓPUR!
Viltu dýpka þekkingu þína í bókhaldi eða ertu jafnvel á leiðinni í
námið Viðurkenndur bókari? Þá er þetta kjörinn undirbúningur
fyrir þig!
Vegna mikillar eftirspurnar höfum við bætt við aukahópi sem
hefst 7. maí. Bókaranám fyrir lengra komna er hagnýtt
framhaldsnámskeið í bókhaldi sem hentar þeim sem hafa
einhverja bókhaldsreynslu eða hafa lokið tölvu-, skrifstofu- og
bókhaldsnámi og vilja ná dýpri þekkingu og færni í bókhaldi.
Námskeiðið er einnig hugsað sem aðfararnám fyrir þá sem
stefna á námið Viðurkenndur bókari.
Kvöldhópur hefst 7. maí 90 std. 109.000 kr.
Kennsla fer að mestu leyti fram í formi verklegra æfinga með
Excel fyrir bókara
Fjárhagsbókhald, upprifjun og flóknar færslur
Vsk. uppgjör og leiðréttingarskýrslur
Launabókhald, útreikningur launa, lífeyrissjóður og skattur
Launamiðar, launaframtal og skil til skatts
Afstemmingar, lokafærslur og skil á bókhaldi til endurskoðenda
Uppsetning rekstrar- og efnahagsreikninga
Lestur ársreikninga
TOLLSKÝRSLUGERÐ
Öðlastu færni í gerð tollskýrslna á þessu stutta og hnitmiðaða
námskeiði þar sem m.a. er farið yfir reglur er varða innflutning,
myndun tollverðs og útreikning aðflutningsgjalda. Farið er yfir
fylgiskjöl með vörusendingum og hvaða tilgangi þau þjóna við
innflutning og gerð tollskýrslna ásamt því að kynntir eru
fríverslunarsamningar og notkun tollskrárinnar.
14. maí 21 std.
28.000 kr.
ÖRYGGISMÁL TF-GNA, þyrla Land-
helgisgæslunnar, var á laugar-
dagskvöld flutt með flutninga-
bifreið frá Kvískerjum í Öræfum
til Reykjavíkur. Þyrlan nauðlenti
þar vegna bilunar í útkalli.
Þyrlan TF-SYN flutti mann-
skap og búnað að Kvískerjum til
að undirbúa GNA fyrir flutning-
inn og gekk framkvæmdin í alla
staði mjög vel. Til stóð að flytja
þyrluna á mánudag en gengið var
fyrr í verkið vegna óhagstæðrar
veðurspár. - shá
Flutningur tókst vel:
TF-GNA komin
til Reykjavíkur
VEISTU SVARIÐ?
NÁTTÚRA Björgunarsveitarmönn-
um á Þórshöfn virðist hafa tekist
að bjarga einum af sex háhyrn-
ingum sem syntu upp í fjöru við
Heiðarhöfn á Langanesi í gær,
um kílómetra frá Þórshöfn. Þegar
Fréttablaðið fór í prentun voru tvö
dýr þegar dauð en þrjú tórðu enn
þá.
Guðni Hauksson, formaður
björgunarsveitarinnar Hafliða,
var á staðnum. Hann segir að til-
kynning um hvalina hafi komið
um tvöleytið. Þegar voru kallaðir
út björgunarsveitarmenn frá Þórs-
höfn, sem voru fimmtán á staðnum
þegar mest var.
„Það tókst að koma einu dýri út
og öðru náðum við að koma út í tví-
gang en það synti alltaf upp í fjör-
una aftur,“ segir Guðni. Í gær var
farið á gröfu niður í fjöruna sem
gróf holur fyrir dýrin. „Þetta er
það eina sem okkur datt í hug til
að halda þeim lifandi á fjörunni en
svo verður reynt að koma þeim út
þegar flæðir seint í kvöld,“ sagði
Guðni. Hann var svartsýnn á að
dýrunum yrði bjargað úr því sem
komið var í gærkvöldi.
Sverrir Daníel Halldórsson, líf-
fræðingur hjá Hafrannsóknastofn-
un, segist ekki muna eftir því að
hafa áður heyrt af því að háhyrn-
ingar syntu upp í fjöru með þess-
um hætti hér á landi, án þess að
vilja fullyrða nokkuð um að atvik-
ið nú sé einsdæmi. Hann segir það
einn af leyndardómum lífríkis-
ins af hverju hvalir syndi á land,
án merkjanlegrar ástæðu. Þó séu
yfirleitt þrjár ástæður taldar lík-
legastar.
„Í fyrsta lagi truflanir í segul-
sviði og þá raskist staðsetning-
artækni þeirra. Eins hefur verið
nefnt að forystudýrið sé veikt og
syndi í land þess vegna. Hin dýrin
fylgja svo á eftir. Að síðustu hafa
menn nefnt að hjörðin hafi fælst
af einhverjum ástæðum, með þess-
um afleiðingum,“ segir Sverrir.
Fræðin geyma jafnframt kenning-
ar um að landfræðilegar aðstæð-
ur spili inn í þessa hegðun dýr-
anna, til dæmis að fjaran sé flöt
og sendin. Myndir af vettvangi við
Heiðar höfn sýna að aðstæður eru
með þeim hætti. svavar@frettabladid.is
Björguðu einum af
sex háhyrningum
Sex háhyrningar syntu upp í fjöruna við Heiðarhöfn á Langanesi í gær. Björgunar-
sveitarmenn unnu klukkustundum saman að því að koma þeim til bjargar. Einum
virðist hafa tekist að bjarga. Líffræðingur segir þessa hegðun hvala óútskýrða.
ERFIÐAR AÐSTÆÐUR Tvö dýr drápust fljótlega í fjörunni í gær. Litlar líkur voru
taldar á björgun þriggja dýra en reyna átti til þrautar. MYNDIR/HILMA STEINARSDÓTTIR
HANDAFLIÐ Dýrin voru misstór en þau stærstu nokkur tonn að þyngd; því máttu
menn sín lítils með handaflinu einu saman.
NÁTTÚRA Sérstök fjárveiting frá stjórnvöldum, 20
milljónir króna, var samþykkt nýlega til aukinn-
ar landvörslu á friðlýstum svæðum og vinsælum
ferðamannastöðum. Þetta er gert til að bregðast við
versnandi ástandi fjölsóttra ferðamannastaða vegna
aukins ágangs ferðafólks.
Í tilkynningu frá umhverfis- og auðlindaráðu-
neytinu segir að mikil aukning ferðamanna til
Íslands kalli á verulegt átak í uppbyggingu innviða
á friðlýstum svæðum, en jafnframt verulega aukna
landvörslu; fræðslu, umsjón og eftirlit. Samkvæmt
fjárfestingaráætlun verða á næstu þremur árum
veittar 500 milljónir króna árlega til uppbyggingar
ferðamannastaða og 250 milljónir króna árlega til
uppbyggingar þjóðgarða og friðlýstra svæða.
Gangi spár eftir má gera ráð fyrir að komur
ferðamanna til landsins nái einni milljón innan
fárra ára. Samkvæmt Ferðamálastofu nam fjöldi
erlendra gesta um Leifsstöð um 647 þúsundum á
árinu 2012, sem er tæplega 20% aukning frá árinu
áður. - shá
Aukin fræðsla, umsjón og eftirlit sem svar við ágangi ferðafólks:
Fé veitt til aukinnar landvörslu
DYRHÓLAEY Markvisst er unnið að því að byggja upp
aðstöðu á ferðamannastöðum og í þjóðgörðum landsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
1. Hvað heitir forsætisráðherra Ítalíu?
2. Hvað heitir höfuðborg Bangladess?
3. Hver var kjörsóknin í alþingiskosn-
ingunum á laugardaginn?
SVÖR
1. Enrico Letta. 2. Dakka. 3. 81,4%
BRETLAND, AP Talið er að 140 fyrr-
verandi vistbörn á barnaheimilum
í Wales hafi mátt þola kynferðislegt
ofbeldi á meðan á dvöl þeirra stóð.
Þetta kemur fram í nýrri rannsókn
sem breska lögreglan kynnti í gær.
Rannsóknin tók til átján heimila
og í niðurstöðum hennar kemur
fram að fólkið sem um ræðir, aðal-
lega sjö til nítján ára drengir, hafi
mátt þola alvarlega og kerfis-
bundna misnotkun, meðal annars
nauðgun, á árunum 1965 til 1992.
Blásið var til rannsóknarinnar í
nóvember eftir úttekt BBC þar sem
kom fram að grunsemdir og ásak-
anir um misnotkun á vistheimil-
um í Wales hefðu ekki verið rann-
sakaðar í þaula. Eftir því sem leið
á beindust augu rannsakenda að
fleiri heimilum og lengra tímabili.
Ásakanirnar beinast að 84 meint-
um brotamönnum, 75 körlum og níu
konum, og er einn þeirra í haldi
vegna rannsóknarinnar.
Rannsóknin stendur enn yfir og
er ekki útilokað að enn fleiri ásak-
anir muni koma fram. - þj
Sláandi skýrsla um misnotkun á barnaheimilum í Wales:
Kerfisbundin afbrot um árabil
VETTVANGUR AFBROTANNA Tugir
barna voru misnotuð á barnaheimilum í
Wales um árabil að því er fram kemur í
lögreglurannsókn. Þar á meðal var Bryn
Estyn-heimilið.