Fréttablaðið - 30.04.2013, Qupperneq 8
30. apríl 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 8
N 27
2013
Listahátíð
í Reykjavík
Upplifum Listahátíð
Leikið í myrkri
@ Harpa, Norðurljós — 22. maí
Routeopia
@ Lagt af stað frá Hörpu — 19., 26. & 31. maí
Shostakovich—áskorunin
@ Harpa, Norðurljós — 2. júní
Bang on a Can—All Stars
@ Harpa, Eldborg — 17. maí
Öll dagskráin og miðasala á
www.listahatid.is
17. maí — 2. júní
Forsætisráðherra slapp við
sprengjuárás
1 SÝRLAND, AP Wael al-Halqi, forsætisráðherra Sýrlands, slapp
ómeiddur þegar sprengja sprakk í
Damaskus í gær. Sprengjan sprakk
nálægt bílalest forsætisráðherrans og
var ætlunin að myrða ráðherrann, að
sögn fréttamiðla í landinu.
Ríkissjónvarpið í Sýrlandi sagði
marga hafa látist í sprengingunni, en
mannréttindasamtök segja minnst
fimm hafa látist. Á meðal hinna
látnu voru tveir lífverðir al-Halqi og
bílstjóri hans.
260 þúsund létust í Sómalíu
2 SÓMALÍA, AP Hungursneyð í Sómalíu árið 2011 varð 260
þúsund manns að bana, tvöfalt
fleirum en áður hafði verið talið.
Helmingur hinna látnu voru börn
fimm ára og yngri. Þetta kemur fram
í nýrri bandarískri skýrslu sem gefin
verður út í vikunni.
Hjálparsamtök segja tugi þúsunda
manna hafa látist að óþörfu vegna
þess hversu seint alþjóðasamfélagið
brást við ástandinu í lok árs 2010
og byrjun 2011. Herskáir öfgamenn
sem stjórnuðu hluta landsins komu
einnig í veg fyrir að hjálparsendingar
bærust til þurfandi.
Nýr konungur í Hollandi
3 HOLLAND, AP Nýr konungur verður svarinn í embætti í Hol-
landi í dag. Beatrix, drottning lands-
ins, ætlar þá að láta af embættinu og
sonur hennar Vilhjálmur Alexander
tekur við krúnunni. Beatrix ávarpaði
þjóð sína í síðasta sinn í gærkvöldi.
DÓMSMÁL „Þetta mál hefur legið
þungt á okkur í eitt og hálft ár,“
segir Rúnar Geirmundsson, eig-
andi Útfararþjónustunnar sem í
gær var sýknuð af kröfu Kirkju-
garða Reykja-
v í k u r u m
greiðslu gjalds
við útfarir og
kistulagningar
í kirkjunni og
kapel lunni í
Fossvogi.
Kirkjugarðar
Reykjavíkur
settu gjaldið
á í ársbyrjun
2012. Það er 3.500 krónur fyrir
kapelluna og 6.500 krónur fyrir
kirkjuna. Þórsteinn Ragnarsson,
forstjóri Kirkjugarðanna, segir
gjaldinu ætlað að vega upp á móti
kostnaði við húsnæðið þótt því fari
fjarri að það endurspegli hann
allan. Eðlilegt hafi þótt að útfarar-
stofur önnuðust innheimtuna.
„Við erum svolítið hissa,“ segir
Þórsteinn. „Dómarinn telur að
viðkomandi útfararstofa eigi ekki
aðild að málinu. Þannig að það
gilda ekki sömu hefðbundnu við-
skiptavenjur gagnvart Kirkjugörð-
unum og öðrum kirkjum.“
Rúnar minnir á að á árunum
2004 til 2006 hafi Kirkjugarðarn-
ir lagt á líkhúsgjald sem umboðs-
maður Alþingis hafi sagt ólöglegt
þar sem fyrir því væri ekki laga-
heimild. Nú hafi verið reynt að
koma á nýju gjaldi og lagt fyrir
útfararþjónustur að innheimta það
af viðskiptavinum.
„Þetta eru peningar sem við
höfum alltaf neitað að rukka og
höfum aldrei rukkað. Niðurstaðan
er komin og þeir hafa enga heim-
ild til að skikka fyrirtæki úti í bæ
til að rukka fyrir sig gjald; hvort
sem það er löglegt eða ólöglegt,“
segir Rúnar.
Þórsteinn segir Kirkjugarðana
muna um gjaldið því þeir hafi
verið reknir með tapi síðastliðin
tvö ár. Ekki var tekin afstaða til
þess í Héraðsdómi Reykjavíkur
hvort gjaldið sé löglegt eða ekki.
Þórsteinn bendir á að í líkhús-
gjaldamálinu hafi umboðsmað-
ur Alþingis lagt til að heimildir í
lögum yrðu gerðar skýrari. Þetta
hafi ekki gerst.
„Heppilegast væri fyrir alla að
menn tækju á honum stóra sínum
í innanríkisráðuneytinu og kæmu
því á hreint hvort setja eigi þetta
sem heimild í lögum eða ekki. Ég
væri mjög sáttur við að niðurstað-
an á löggjafarsamkundunni yrði
að það væri ekki leyft. Þá yrðum
við bara að velta við öðrum stein-
um. Á meðan þetta hangir svona í
lausu lofti er öllum gert mjög erfitt
fyrir,“ segir Þórsteinn.
gar@frettabladid.is
Þarf ekki að rukka
kistulagningargjald
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði útfararstofu af kröfu um að hún innheimti
fyrir Kirkjugarða Reykjavíkur gjald vegna útfara og kistulagninga. Forstjóri
Kirkjugarðanna er hissa á að ekki gildi sama fyrir kirkjugarðana og aðrar kirkjur.
NEITAÐI Rúnar Geirmundsson neitaði að innheimta gjöld á útfarir og kistulagning-
ar fyrir Kirkjugarða Reykjavíkur. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
ÞÓRSTEINN
RAGNARSSON
Þeir hafa enga heimild
til að skikka fyrirtæki út í
bæ til að rukka fyrir sig
gjald.
Rúnar Geirmundsson útfararstjóri
HEILBRIGÐISMÁL Ekki er á barnshafandi fjölskyld-
ur leggjandi að ferðast langar vegalengdir til þess
að fæða. Þetta segir Esther Ósk Ármannsdóttir,
sem nýverið lét af embætti for-
manns Ljósmæðrafélags Íslands.
Á aðalfundi félagsins nýverið
kallaði stjórn þess eftir skýrri
stefnumótun um fæðingarþjón-
ustu en fæðingarstöðum á land-
inu hefur fækkað úr sextán í átta
á síðastliðnum sextán árum.
„Þessum litlu fæðingarstöðum
hefur verið lokað eða þá þjónust-
an mikið skert, sem hefur valdið
því að konur sem eru barnshaf-
andi og fjölskyldur þeirra þurfa oft og tíðum að
fara langan veg vegna fæðinga, ekki síst á vet-
urna,“ segir Esther Ósk og bætir við: „Við lýsum
yfir áhyggjum af þessari stöðu og köllum eftir
heildrænni stefnu um þessi mál til hagsbóta fyrir
allar fjölskyldur á barneignaaldri.“
Þá segir Esther að mikið álag sé á fjölskyldum
skömmu fyrir fæðingu. Þann tíma eigi að nýta
í andlegan undirbúning og hreiðurgerð fremur
en í ferðalög sem geti valdið streitu og jafnvel
árekstrum vegna skuldbindinga eldri barna og
annarra fjölskyldumeðlima. - mþl
Stjórn Ljósmæðrafélags Íslands kallar eftir stefnu um fæðingarþjónustu:
Fæðingarþjónusta verið skert
FÆKKAÐ Fæðingarstöðum á landinu hefur fækkað úr sextán
í átta á síðustu sextán árum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ESTHER ÓSK
ÁRMANNSDÓTTIR
HEIMURINN
1
2
3