Fréttablaðið - 30.04.2013, Page 12
30. apríl 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 12
KYNNINGARFUNDUR UM
FRÍVERSLUNARSAMNINGINN VIÐ KÍNA
FIMMTUDAGINN 2. MAÍ Á HILTON NORDICA KL. 16:00
Fundurinn fer fram á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut, 2. hæð í sal H-I, 2. maí kl 16:00.
Dagskrá:
Bergdís Ellertsdóttir, sendiherra og aðalsamningamaður Íslands, kynnir efni samningsins.
Magnús Bjarnason, forstjóri Icelandic Group, ræðir áhrif samningsins á viðskipti með fiskafurðir og
önnur tækifæri sem felast í samningnum.
Andri Marteinsson, Íslandsstofu, kynnir þá þjónustu sem Íslandsstofa veitir fyrirtækjum í útflutningi.
Ársæll Harðarson, formaður ÍKV stýrir fundi og kynnir starfsemi ÍKV.
Umræður og fyrirspurnir.
Skráning á heimasíðu Íslensk-kínverska viðskiptaráðsins www.ikv.is
FÍ
TO
N
/
SÍ
A
Gullið tækifæri eða ógn?
BRETLAND, AP Bandarísk kona
í Bretlandi hefur verið dæmd í
fimm ára fangelsi fyrir að hafa
neytt fjórtán ára dóttur sína til
að verða þungaða. Barnið ætlaði
konan að ala upp sjálf.
Konan notaði gjafasæði og
þvingaði dóttur sína til að ganga
með barn fyrir sig. Konan átti
þrjú ættleidd börn en hafði verið
neitað um að ættleiða það fjórða.
Stúlkan sagði fyrir rétti að hún
hefði ekki viljað ganga með barn
en hefði vonast til þess að móðir
hennar myndi elska hana meira
ef hún hlýddi. Stúlkan varð ófrísk
fljótlega en missti fóstur. Móðir-
in gerði í kjölfarið sex tilraunir
til viðbótar áður en stúlkan varð
aftur þunguð og eignaðist son árið
2011, þegar hún var sautján ára.
Ljósmæður á spítalanum þar
sem drengurinn fæddist fylltust
hins vegar grunsemdum þegar
stúlkan vildi gefa syni sínum
brjóst en móðir hennar bannaði
það vegna þess að hún vildi ekki að
hún tengdist barninu. Spítalinn til-
kynnti mál mæðgnanna til barna-
verndar. Stúlkan, sonur hennar
og yngri systkini hennar tvö voru
send í fóstur.
Greint var frá dómi í málinu í
fyrsta sinn í gær. - þeb
Kona í Bretlandi afplánar fimm ára dóm:
Neyddi dóttur
til að ala barn
DÆMD Í FANGELSI
Konan var dæmd í
fangelsi í fyrra en
fyrstu fréttir af málinu
bárust í gær.
NORDICPHOTOS/GETTY
Spila 430
blakleiki
í Kórnum
144 blaklið af landinu öllu komu saman í Kórnum
í Kópavogi til leiks á stórmótinu HKarlinum,
öldungamóti Blaksambands Íslands (BLÍ).
Öldungamót Blaksambands Íslands
EINBEITING SKEIN ÚR HVERJU ANDLITI Það var varla þurran þráð að finna á
leikmönnum í Kórnum í gær.
GEYMT EN EKKI GLEYMT Keppt er í tveimur flokkum á aldursbilinu 30-50
ára og 50 ára og eldri. Ljóst er að kapparnir hafa engu gleymt.
BLAK ER ÍÞRÓTT FYRIR ALLA Spilaðir verða 430 leikir í 21 deild á mótinu
sem lýkur í dag. Spilað er á þrettán völlum.
KONUR Í MEIRIHLUTA Alls voru fjórtán kvennadeildir á mótinu og voru þær ívið fleiri en karladeildir, sem voru sjö. Þetta er í 38.
sinn sem mótið er haldið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
LIÐSSKIPANIR Það var mikill hiti í fólki þegar ljós-
myndara Fréttablaðsins bar að garði í gær.