Fréttablaðið - 30.04.2013, Blaðsíða 14
30. apríl 2013 ÞRIÐJUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
FRÁ DEGI
TIL DAGS
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is
MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000
eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á
landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
ISSN 1670-3871
Jón Finnbogason, formaður Gerplu í
Kópavogi, fór mikinn í Fréttablaðinu í
gær, þar sem hann með rakalausum mál-
flutningi heldur því fram að vísa þurfi
börnum frá íþróttaiðkun vegna óbilgirni
Kópavogsbæjar.
Ég skil ekki hvað Jóni gengur til en
vil byrja á því að árétta að það er rangt
hjá honum að þúsund börn séu á bið-
lista hjá Gerplu. Samkvæmt þeirra eigin
tölum voru 528 börn á biðlista sl. haust.
Þar af voru 206 börn, frá sex ára aldri,
úr Kópavogi. Á sama tíma voru 300
iðkendur Gerplu búsettir utan Kópavogs.
Þetta þýðir með öðrum orðum að „vandi“
Gerplu felst í því að um þriðjungur
félagsmanna er ekki Kópavogsbúar.
Það getur ekki hvílt nein skylda á skatt-
greiðendum Kópavogs að greiða fyrir
nýtt húsnæði þegar félagið er þannig
samsett. Eða eiga bæjarbúar að borga
fyrir íþróttaiðkun þeirra sem búa ekki í
bænum á sama tíma og þeirra eigin börn
komast ekki að?
Íþróttahúsin vel nýtt
Einnig vil ég nefna, og vísa í nýlega sam-
antekt því til staðfestingar, að íþrótta-
húsin í Kópavogi eru að öllu jöfnu vel
nýtt. Með því að halda öðru fram, eins
og Jón gerir, er verið að gera lítið úr
starfi HK og Breiðabliks sem eru í hópi
öflugustu íþróttafélaga landsins. Gerpla
hefur góða aðstöðu og til umráða stærsta
íþróttahús landsins, skv. samningi við
bæinn. Ekki stendur til að reisa aðra
fimleikahöll enda engin þörf á því.
Erindi Gerplu frá sl. hausti var svarað
með bréfi dagsettu 1. nóvember 2012,
ólíkt því sem Jón heldur fram, þar sem
afstaða bæjarins var rakin. Þar var
áréttað að Gerplu var boðin aðstaða í
íþróttahúsum Kársnesskóla og Linda-
skóla sem ekki var þegin.
Það er mjög miður, svo vægt sé til orða
tekið, að Jón kjósi að ráðast til atlögu
að Kópavogsbæ sem hefur búið fim-
leikafólki sínu bestu mögulegu aðstöðu
á landinu öllu. Um það vitnar glæsilegur
árangur íþróttafólksins okkar nú síðast
á Íslandsmóti í hópfimleikum um liðna
helgi.
Upphlaup formanns Gerplu
ÍÞRÓTTIR
Ármann Kr. Ólafsson
bæjarstjóri í Kópavogi
➜ Það er mjög miður, svo vægt sé
til orða tekið, að Jón kjósi að ráðast
til atlögu að Kópavogsbæ sem
hefur búið fi mleikafólki sínu bestu
mögulegu aðstöðu á landinu öllu.
T
uttugu og sjö nýir þingmenn munu mæta til vinnu í
Alþingishúsinu á setningardegi þingsins í haust. Alls
konar fólk úr öllum geirum þjóðfélagsins, alls staðar að
af landinu. Fólk sem á lítið sem ekkert sameiginlegt nema
það að vera að byrja í nýrri vinnu sem það hefur takmark-
aða þekkingu á.
Endurnýjun er nauðsynleg
á löggjafarsamkundunni, um
það eru allir sammála, en ef við
setjum annan vinnustað, hvaða
vinnustað sem er, inn í jöfnuna
þá er staðan vægast sagt óvenju-
leg. Myndi einhver vinnustaður
skipta tuttugu og sjö starfs-
mönnum af sextíu og þremur út
á einu bretti? Og ef einverjum dytti nú slík fásinna í hug hvernig
ætli rekstur fyrirtækisins gengi næstu mánuðina á eftir? Álagið
á vönu starfsmennina myndi aukast til muna þar sem þeir þyrftu
að eyða tíma og kröftum í að þjálfa upp nýju starfsmennina um
leið og þeir sinntu eigin störfum og það tekur á taugarnar. Hætt er
við að urgur yrði í fólki og að það hugsaði stjórnarmönnum fyrir-
tækisins þegjandi þörfina. Ef ofan á bættist að enginn hinna nýju
starfsmanna kynni nokkuð til verka er líklegasta niðurstaðan sú að
vönu starfsmennirnir gerðu uppreisn, neituðu að bæta þessu álagi á
vinnuframlagið og hreinlega settu stjórninni stólinn fyrir dyrnar:
ráðið vant fólk eða við löbbum út.
Vinnuveitendur alþingismanna, þjóðin sjálf, virðast ekki hafa
nokkrar áhyggjur af því að ráða alls óvant fólk til starfa í æðstu
stofnun samfélagsins. Engar kröfur eru gerðar til nýliðanna aðrar
en þær að hafa komist ofarlega á lista einhvers framboðsins og náð
inn á þing. Flestir kjósendur þekkja hvorki haus né sporð á þessu
fólki, vita ekkert um mannkosti þess, hæfni til vinnu, vinnusemi,
samstarfshæfileika eða innræti. Það er eins og Alþingi sé ekki
vinnustaður í hugum vinnuveitandans. Bara eitthvert partí þar
sem hver sem er getur beðið um orðið og fabúlerað út og suður eins
og andinn blæs honum/henni í brjóst þá mínútuna. Kjaftaklúbbur
athyglissjúklinga.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, fráfarandi forseti Alþingis,
sagði í umræðum í sjónvarpssal á kosninganótt að það tæki um
það bil fjögur ár að læra að verða góður þingmaður. Samkvæmt
því verða nýliðarnir sem taka til starfa í haust orðnir nokkuð góðir
starfsmenn í lok kjörtímabilsins, en þá er allt eins líklegt að þeir
missi vinnuna, nýir óþjálfaðir starfsmenn verði ráðnir í þeirra stað
og þjálfunin þurfi að byrja frá grunni á ný. Kannski ekkert skrítið
að virðing fyrir Alþingi sé um það bil ómælanleg í skoðanakönn-
unum. Þetta virðist ekki vera vinnustaður heldur þjálfunarbúðir ef
borið er saman við aðra vinnustaði og þær kröfur sem þeir gera til
starfsfólks.
Að þessu sögðu er auðvitað rétt að líta á þá hlið málsins sem snýr
að flokkshollustu. Nýliðarnir væntanlega gera bara eins og forystu-
sauðirnir skipa – eða allavega virðist gengið út frá því. Það getur
þó brugðið til beggja vona eins og glögglega kom í ljós á nýafstöðnu
kjörtímabili þar sem mikil orka og tími fóru í hina svokölluðu
kattasmölun, oftast án árangurs. Leiðtogar flokkanna verða því
væntanlega að koma sér upp kröftugri svipum í haust og berja
græningjana til hlýðni ef einhver samstaða á að nást í þinginu.
Gangi þeim vel.
Nær helmingur alþingismanna nýr í starfi:
Engrar starfs-
reynslu krafist
Friðrika
Benónýsdóttir
fridrikab@frettabladid.is
Vantaði kynningu
Stjórnarliðar og stuðningsfólk
fráfarandi ríkisstjórnar hafa margir
freistað þess að skýra hið gríðarlega
fylgistap Vinstri grænna og sér-
staklega Samfylkingar að hluta til
með því að hin góðu verk sem unnin
voru á kjörtímabilinu hafi ekki náð í
gegn til kjósenda. Því er ekki hægt að
neita að stjórnin lét margt gott af sér
leiða, en er það virkilega sennilegt
að góðu verkin hafi liðið fyrir það að
vera ekki nógu vel kynnt, og hverjum
er þar þá um að kenna?
Upplýsingafulltrúaherinn
Þannig er nefnilega mál með vexti að
hvert ráðuneyti hefur fram að tefla
upplýsingafulltrúa, hvers starf er að
svara fyrir gjörðir og vekja athygli á
því sem vel er gert. Þá var meira að
segja bætt um betur og í rúmt ár hef-
ur fréttahaukurinn Jóhann Hauksson
gegnt starfi upplýsingafulltrúa ríkis-
stjórnarinnar. Það er harður dómur
yfir þessum hópi að hann hafi ekki
staðið sig í stykkinu. Er ekki líklegra
að þjóðin hafi heyrt boðskapinn en
ekki meðtekið hann af einni eða
annarri ástæðu?
Ákvörðun forsetans
Forseti Íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson, hitti
formenn flokkanna á
Alþingi á Bessastöðum
í gær. Hann hafði boðað
að hann tæki í fram-
haldinu ákvörðun
um hver fengi
stjórnarmynd-
unarumboðið.
Svo virðist sem Sjálfstæðismenn hafi
ekki verið að hengja sig á formleg-
heitin, þar sem formaðurinn Bjarni
Benediktsson sagði í gær að hann
gerði ráð fyrir að viðræður við Fram-
sóknarflokkinn hefðust strax sama
dag, án þess að ákvörðun forseta
lægi fyrir, og þeim ætti að ljúka á
einni eða tveimur
vikum.
thorgils@frettabladid.is
Ársfundur sjálfbærniverkefnisins 2013
Ársfundur Sjálfbærniverkefnis á Austurlandi verður haldinn
í Fróðleiksmolanum á Reyðarfirði þriðjudaginn 7. maí frá kl. 13:00 – 17:00.
Allir áhugasamir um verkefnið og sjálfbæra þróun eru hvattir til að mæta.
Nánari dagskrá og upplýsingar um skráningu er hægt að nálgast á heimasíðu verkefnisins:
www.sjalfbaerni.is