Fréttablaðið - 30.04.2013, Síða 15
ÞRIÐJUDAGUR 30. apríl 2013 | SKOÐUN | 15
Það mætti segja mér að ventillinn
hafi flautað á nokkrum undan-
farna daga og er ekki að undra
miðað við þá spennu sem fylgir
kosningum, sérstaklega fyrir þá
sem eru í framboði til hins háa
Alþingis. Ekki komust þó allir að
sem vildu, enn aðrir þurftu að yfir-
gefa leikvöllinn, svipað eins og
að vera dæmdur úr leik, í bili að
minnsta kosti.
Það er vel þekkt fyrirbæri að
blóðþrýstingur hækkar við spennu
og streitu, líka við áreynslu og
hreyfingu auk margra annarra
þátta og er það eðlilegt. Hann er
ekki föst tala heldur sveiflast yfir
sólarhringinn og er það okkur
nauðsynlegt. Það væri til að mynda
ansi bagalegt ef við myndum ekki
auka trukkið á kerfinu þegar
á reyndi, en þar koma ýmsar
aðstæður upp í hugann.
Til dæmis er verulega vont ef
við ætlum okkur að standa hratt
upp af stól eða úr rúmi og æða af
stað inn í daginn. Þá er eins gott
að hjarta- og æðakerfið elti mann,
enn betra ef það er aðeins á undan
manni sem talið er líklegast að
gerist og algerlega ómeðvitað.
Ef þrýstingurinn hækkar ekki
og æðarnar þrengjast ekki til að
bregðast við þessu tímabundna
álagi missir maður meðvitund
og liggur kylliflatur. Við læknar
köllum það vasovagal syncope eða
réttstöðublóðþrýstifall og hvorugt
orðanna er sérlega þjált.
Vitum ekki af hverju
Þegar rætt er um blóðþrýsting
getur hann verið of lágur en flestir
tengja þó slíka umræðu við hækk-
aðan blóðþrýsting sem hefur býsna
margar orsakir, en sú algengasta
er að við hreinlega vitum ekki af
hverju. Mikill meirihluti þeirra
sem greinast eru með svokallaða
óútskýrða blóðþrýstingshækkun
og því algengt að sjúklingar upp-
lifi að ekki sé frekar skoðað hvað
veldur og viðkomandi skellt á lyf
sem alla jafna eru fyrir lífstíð.
Þetta er auðvitað ekki alveg svo
einfalt. Í fyrsta lagi eru ákveðin
mörk sem teljast eðlileg en þau eru
á bilinu 100-120 í efri mörkum og
60-80 í neðri mörkum á svoköll-
uðum kvikasilfursskala. Almenna
reglan var að miða við að vera
undir 140/90 mm Hg en rann sóknir
undanfarin ár gefa vísbend ingar
um að nauðsynlegt sé að grípa
inn fyrr og meðhöndla eða breyta
þeim lífsstílsþáttum sem eru að
ýta þrýstingnum upp og fylgjast
vel með viðkomandi. Það dugar
því sjaldnast ein mæling og mikil-
vægt er að gefa þeim fjöldamörgu
umhverfisþáttum gaum sem og
öðrum áhættuþáttum viðkomandi.
Ég man eftir ungum strák með
alltof háan blóðþrýsting sem ætl-
aði allt að sprengja. Hann hafði
drukkið fimm orkudrykki áður en
hann kom til skoðunar sem skýrði
málið. Sömuleiðis eldri kona sem
var hrifin af lakkrís og þurftu
bæði einfaldar ráðleggingar til
að laga ástandið. Enn annar hafði
tekið lyfin sín samkvæmt fyrir-
mælum en svo rann lyfseðillinn út
og hann hætti að taka þau inn og
kom þremur árum seinna í mæl-
ingu! Stundum er þetta flóknara og
er því nauðsynlegt að vita um hina
ýmsu þætti sem geta gefið villandi
mælingar. Hins vegar má ekki bíða
endalaust með ákvörðun um fram-
hald og eftirfylgni hjá þeim sem
sannarlega eru með háan blóð-
þrýsting án skýringar.
En hvers vegna þarf að eiga við
of háan blóðþrýsting? Svarið við
því er að of hár blóðþrýstingur er
einn af megináhættuþáttum æða-
kölkunar, sem aftur er algengasta
dánarorsök á Vesturlöndun, en
slíkar breytingar á æðaveggjum
slagæðanna leiða til hjarta- og
heilaáfalla. Þróun þessara sjúk-
dóma gerist alla jafna á löngum
tíma hjá flestum og því hefur hár
blóðþrýstingur stundum verið kall-
aður hinn þögli dauði því einstak-
lingurinn getur verið einkenna-
laus um árabil og jafnvel fram að
alvarlegu atviki eins og hjarta- eða
heilaáfalli. Vafalaust eru þeir mjög
margir sem ekki eru í nægjanlega
góðu eftirliti, aðrir sem vita hrein-
lega ekkert hvernig staða þeirra
er og svo enn aðrir sem kæra sig
kollótta.
Látið fylgjast með
Greiningin byggir að sjálfsögðu
á að mæla blóðþrýstinginn, sem
er einföld og fljótleg aðferð til að
átta sig. Best er að venja sig á að
láta fylgjast með blóðþrýstingi og
öðrum áhættuþáttum hjarta- og
æðasjúkdóma með skipulögðum
hætti. Ef þú þarft lyf þarf að fylgj-
ast reglubundið með þér og endur-
meta lyfjaþörfina og skammta-
stærðir. En burtséð frá lyfjum er
mikilvægt að koma reglu á neyslu
matar og drykkjar með því að
draga úr salti, fituríkri fæðu og
áfengi auk þess að fylgja almenn-
um leiðbeiningum um hollt matar-
æði. Stunda skal reglubundna
hreyfingu þar sem hjartað fær
aðeins að spretta úr spori og að
sjálfsögðu hætta að reykja ef þú
stundar þann ósið.
Þið alþingismenn, sem eruð
að klambra saman ríkisstjórn í
þessum töluðu orðum, andið djúpt,
passið þrýstinginn og munið að
forvarnir eru aðalatriði þegar
kemur að lýðheilsu.
Þið alþingismenn,
sem eruð að klambra
saman ríkisstjórn í þessum
töluðu orðum, andið djúpt,
passið þrýstinginn…
HEILSA
Teitur
Guðmundsson
læknir
Er þrýstingurinn í lagi?
AF NETINU
Leiksýning á
Bessastöðum?
Sumir myndu telja að Ólafur
Ragnar Grímsson væri að setja
upp leiksýningu með því að kalla
formenn flokka til sín einn af
öðrum til að ræða við þá um
stjórnarmyndun. Undir mynda-
vélum fjölmiðla. Hér á árum áður
heyrðu menn reyndar aðeins
í forseta eftir kosningar fyrir
siðasakir, yfirleitt mættu þeir svo
barasta með tilbúnar ríkisstjórnir.
[…] Flokksformennirnir vilja
greinilega umgangast Ólaf
Ragnar af varúð eftir inngrip
hans í pólitíkina síðustu árin. En
í raun geta þeir komið á Bessa-
staði með tilbúna ríkisstjórn, hafi
hún þingmeirihluta er ekkert
sem Ólafur Ragnar getur gert
til að stöðva það. Þannig hefur
hann í raun ekkert um það að
segja hvernig ríkisstjórn verður
mynduð, þótt látið sé eins og svo
er. En þarna er dæmi um hvernig
Ólafur Ragnar er að reyna að
endurmóta forsetaembættið
eftir sínu höfði– nei, svona var
það ekki á Davíðstímanum.
http://silfuregils.eyjan.is
Egill Helgason
Sátt í sjávar-
útvegsmálum
Í stað þess að lækka veiðigjaldið
ættu hægrimenn að einbeita sér
að því að nýta það svigrúm sem
mun skapast á næstu árum í
ríkisfjármálum til þess að lækka
þá skatta sem draga mestan
þrótt úr hagkerfinu. Þar má
nefna tryggingagjaldið, hæsta
þrep virðisaukaskattsins, stimpil-
gjöld og vörugjöld.
Það að fráfarandi ríkisstjórn
hafi einungis tekist að koma
öðru af tveimur frumvörpum
sínum um sjávarútvegsmál í
gegn á síðasta þingi skapar
afskaplega góða stöðu.
http://blog.pressan.is/jon-
steinsson
Jón Steinsson
CAFÉ ROSENBERG
Kl 20:30
Jazzhátíð Reykjavíkur
fagnar alþjóðlegum degi jazzins
Meðal þátttakenda verða Hilmar Jensson — Haukur Gröndal
Hans Andersson — Matthías Hemstock — Pétur Grétarsson
Óskar Guðjónsson — Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson
KEX HOSTEL
Kl. 20:30
Flosason/Lauritsen kvartett
Nightfall – útgáfutónleikar
Sigurður Flosason: Saxófónn — Kjeld Lauritsen: Hammond orgel
Andrés Þór Gunnlaugsson: Gítar — Erik Qvick: Trommur
JÓMFRÚIN
Kl 12:00-13:00
Reykjavik Swing Syndicate
Haukur Gröndal: Saxófónn — Gunnar Hilmarsson: Gítar
Jóhann Guðmundsson: Gítar — Gunnar Hrafnsson: Bassi
HARPA
Hörpuhorn kl. 17:00-18:30
Hvað er jazz?
Málþing og tónlist á vegum Íslensku
UNESCO-nefndarinnar
DAGSKRÁ:
Setning:
Páll Skúlason, formaður Íslensku UNESCO-nefdarinnar
Pendúllinn sveiflast – hvar eru jazzinn og tæknin?
Egill B. Hreinsson, prófessor
Jazzinn og útvarpið:
Lana Kolbrún Eddudóttir, útvarpsmaður
Hressleiki og sannfæring í þakkargjörð spunans:
Pétur Grétarsson, framkvæmdastjóri Jazzhátíðar Reykjavíkur
Jazzmenntun – þversögn eða nauðsyn:
Sigurður Flosason, aðstoðarskólastjóri Tónlistarskóla FÍH
Villimannslegir garganstónar:
Tómas R. Einarsson, tónlistarmaður
Þegar jazzinn kom til Íslands:
Vernharður Linnet, jazzgagnrýnandi
Tónlist:
Gaukshreiðrið
Hljómsveit frá Tónlistarskóla FÍH
Þorleifur Gaukur Davíðsson: Munnharpa — Sölvi Kolbeinsson: Saxófónn
Mikael Máni Ásmundsson: Gítar — Anna Gréta Sigurðardóttir: Píanó
Birgir Steinn Theódórsson: Kontrabassi — Kristófer Rodriguez Svönuson: Trommur
ÓKEYPIS AÐGANGUR
Á ALLA ATBURÐI