Fréttablaðið - 30.04.2013, Side 21
| FÓLK | 3
■ VONBRIGÐI
Ófrjósemi veldur miklu and-
legu álagi. Þegar óléttuprófið
reynist alltaf neikvætt eykur
það á vanlíðan. Talið er að 70-
80% kvenna verði barnshaf-
andi áður en hálft ár er liðið frá
því að ákveðið er að eignast
barn. Eftir eitt ár hefur frjóvg-
unin tekist hjá um 90% para.
Það þýðir að ekki er ástæða til
að leita læknis fyrr en að þeim
tíma liðnum ef ekkert gerist.
Aldur kvenna getur skipt máli.
Eftir því sem konan er eldri
þeim mun lengri tíma tekur
hana að verða barnshafandi.
Lífsstíll karlmannsins getur
þar að auki haft áhrif, segir á
netmiðli Norska dagbladet. Ef
ekkert hefur gengið í tvö ár er
það vísbending um að eitthvað
geti verið að hjá konunni eða
karlinum.
Hollt og gott mataræði er
nauðsynlegt til að halda
sæðinu í sem mestum gæðum.
Ómega-3 gerir gott, B12, E-, C-
og D-vítamín. Gæði sæðisins
skipta miklu máli varðandi
frjóvgunina. Maraþonhlaup
getur haft neikvæð áhrif á
það, jafnt og neysla sterkra
áfengisdrykkja, mikið álag og
vinna við ýmis hættuleg efni.
Miklar og strangar líkams-
æfingar hafa neikvæð áhrif á
sæði og geta orsakað ófrjó-
semi. Þá er vitað að reykingar
hafa sömuleiðis neikvæð áhrif.
Mikill hiti hefur ekki góð áhrif
á sæðið, til dæmis frá farsím-
anum í vasanum. Hiti í stutta
stund í gufuböðum er þó í lagi.
Þá þykir sýnt að yfirvigt er
slæm fyrir frjósemina bæði hjá
konum og körlum.
LÍFSSTÍLL
HEFUR ÁHRIF
Á FRJÓSEMI
● ALLRA MEINA BÓT
Bananar eru næringarríkir og
góðir fyrir meltinguna, hvort
sem þeir eru borðaðir í heilu
lagi, skornir í bita eða stapp-
aðir í mauk. Þeir eru frábær
valkostur sem fyrsta fæði eftir
gubbu- og niðurgangspestir og
geta slegið vel á flökurleika.
Bananar, ásamt hrísgrjónum,
eplamauki og ristuðu brauði,
eru gjarnan það fyrsta sem
læknar mæla með að fólk prófi
að borða þegar það er á
batavegi eftir magapest
og að vinna upp
matarlystina í
átt að fastara
og flóknara
fæði.
GÓÐIR Í MAGA
Algengt er að fólk sem stundar
líkamsrækt leggi fyrst og fremst
áherslu á brennslu- og styrktar-
æfingar og freistist til að sleppa eða
gera lítið af teygjum. Hugsunin er ef
til vill sú að teygjur geri lítið þegar
kemur að því að grennast eða
styrkjast. Það er misskilningur því
teygjur gefa meiri styrk og fallegri
vöðva ásamt því að fyrirbyggja
meiðsli.
Við mikið álag styttast vöðv-
arnir og er mikilvægt að teygja úr
þeim aftur. Ef vöðvarnir styttast
mikið missa þeir kraft. Passa þarf
upp á að það sé gott jafnvægi í
styrk og liðleika á fram- og aftur-
hlið líkamans. Ef vöðvarnir framan
á læri eru stirðir verða vöðvarnir
aftan á læri kraftminni svo dæmi
sé tekið.
Sérstaklega þarf að vera meðvit-
aður um mjóbak og kvið, bak og
brjóst og framanverð og aftan-
verð læri.
Mikilvægt er að vöðvarnir
séu heitir þegar teygt er á þeim.
Ef þeir eru stífir og stirðir geta
teygjur valdið skaða. Flestir
teygja eftir æfingar en sé ætlunin
að teygja á öðrum tímum er mikil-
vægt að hita líkamann í að minnsta
kosti tíu mínútur áður.
EKKI GLEYMA TEYGJUNUM
Teygjur gera vöðvana lengri og fallegri.
Hvað getur NutriLenk
gert fyrir þig?
Liður með slitnum
brjóskvef
Heilbrigður liður
NÁTTÚRULEGT
FYRIR LIÐINA
Brjóskskemmdir urðu til þess að ég
hætti að geta gert ýmsa hluti sem ég
gat áður eins og að hlaupa og öll
almenn leikfimi varð ofraun fyrir hnéð.
Ég starfa mikið við kennslu/þjálfun
sem kostar miklar stöður, átti hnéð til
að bólgna mikið upp. Góður vinur
benti mér svo á NutriLenk Gold.
Fór strax að geta reynt á hnéð
eftir að ég byrjaði á NutriLenk
Nánast strax eftir að ég fór að nota
NutriLenk fann ég mikinn mun, fór
strax að geta reynt meira á hnéð. Nú
get ég æft af fullri ákefð eins og mér
einum er lagið og er ekkert mál að
þola langar stöður þegar ég er að
kenna og þjálfa.
Það er klárt mál að þetta efni er að
virka, því ef ég sleppi að taka það inn
þá finn ég aftur fyrir óþægindum í
hnénu.
Ég mæli eindregið með því að fólk
prófi NutriLenk sem er að kljást við
liðverki og brjóskskemmdir og finni
hvort að það virki. Þetta er toppefni
og náttúrulegt í þokkabót.
Jón Halldórsson
- Dale Carnegie þjálfari / ráðgjafi. 42 ára
Brjóskskemmdir í hné
hömluðu hreyfingu
Fyrir átta árum var ég í veiði - datt og laskaðist á hné.
NutriLenk er fáanlegt í flestum apótekum, heilsubúðum,
Fræinu Fjarðarkaupum, Hagkaup, Krónunni, Þín verslun Seljabraut
og Vöruvali Vestmanneyjum
NUTRILENK
NÁTTÚRLEGT BYGGINGAREFNI FYRIR BRJÓSKVEFINN
Nánari upplýsingar á www.gengurvel.is
Við mikið álag og með árunum getur brjósk-
vefurinn rýrnað sem veldur því að liðirnir
slitna. Þetta er náttúrulegt ferli. Mjög margir
finna fyrir miklum óþægindum þegar beinin
byrja að núast saman, sérstaklega í liðamótum
eins og í mjöðmum, hryggjar og hnjáliðum.
Þess vegna er allt til vinnandi að styrkja
liðbrjóskið á náttúrulegan hátt.
Náttúrulegt byggingarefni fyrir
liðbrjóskið og beinin
NutriLenk inniheldur náttúrulegt byggingarefni
fyrir brjóskvefinn og er mjög góður valkostur
fyrir þá sem þjást af minnkuðu liðbrjóski. Unnið
úr sérvöldum fiskibeinum úr hafinu sem hefur
sýnt fram á að vera fyrsta flokks byggingarefni til
að styðja við brjóskvefinn og viðhalda honum.
NutriLenk hefur hjálpað fjölmörgu fólki.
NutriLenk er 100% náttúruleg vara sem er mjög
gagnleg þeim sem þjást af brjóskvefsrýrnun.
Prófið sjálf-upplifið breytinguna!