Fréttablaðið - 30.04.2013, Síða 23
BÍLAR Reynsluakstur Suzuki Swift SportBílasýning Í Fífunni næstu helgiVolvo KERS-tækni lækkar eyðslu um 25%
ÞRIÐJUDAGUR 30. APRÍL 2013
visir.is/bilar
MYND: FINNUR THORLACIUS
S
portbíll ársins var valinn á bíla-
sýningunni í New York um dag-
inn. Þá vegtyllu hlutu systurbílarn-
ir Porsche Boxter/Cayman. Bíla-
búð Benna sýndi nýjan Boxter fyrir
ekki svo löngu og um helgina var
komið að Porsche Cayman. Oft
hefur verið talað um Boxter og Cayman sem
„baby“ Porsche 911, en þeir eru báðir umtals-
vert minni en hinn goðsagnakenndi og frægasti
sportbíll í heimi.
Engu að síður eru þeir báðir mjög öflugir og
fimir eins og stóri bróðirinn og umtalað er
hversu nálægt þeir eru komnir getu 911 bíls-
ins þrátt fyrir að kosta nærri helmingi minna.
Cayman kom fyrst á markað fyrir átta árum en
er nú kynntur af þriðju kynslóð.
Sex strokka Boxer-vélar og PDK-sjálfskipting
Vélarnar sem bjóðast í Porsche Cayman eru 2,7
lítra og 275 hestafla sex strokka bensínvél og 3,4
lítra og 325 hestafla einnig sex strokka bensín-
vél, báðar af Boxer-gerð. Sjö gíra frábær PDK-
HULUNNI SVIPT AF PORSCHE CAYMAN
Var kynntur um síðustu helgi hjá Bílabúð Benna. Kemur nú af þriðju kynslóð.
sjálfskipting með tveimur kúplingum tengist
vélunum og hann er afturhjóladrifinn. Hann má
að sjálfsögðu einnig fá með beinskiptingu, þá
sex gíra. Sem fyrr má eingöngu fá Cayman með
hörðum toppi en hann er ekki framleiddur með
blæju líkt og 911 og Boxter. Í Cayman má nú
finna allar þær uppfærslur sem litu dagsins ljós
í nýjum 911 og Boxter.
Örlítið stækkað og bara batnað
Nýr Cayman hefur örlítið stækkað og fjarlægð
milli hjóla aukist. Hann hefur þó lækkað örlít-
ið og notkun léttari efna við smíði hans hefur
létt hann um 30 kíló. Ástæðulaust er að fara
mörgum orðum um aksturseiginleika Caym-
an, en bíll sem kosinn er sportbíll ársins er nátt-
úrulega frábær akstursbíll og gæðin umfram
verð. Margur bílablaðamaðurinn hefur fullyrt
að kosta þurfi meira en tvöföldu fé til að finna
betri akstursbíl. Fjölmargir gestir sáu Benedikt
Eyjólfsson, forstjóra Bílabúðar Benna, svipta
hulunni af þessum fallega bíl, en hann var af S-
gerð og því með stærri og öflugri vélinni.
Ótrúlegur akstursbíll
Blaðamaður bílablaðsins fékk tækifæri til að kynn-
ast mögnuðum aksturseiginleikum þessa bíls í gær og
það skal viðurkennast að gæsahúðin er enn til stað-
ar. Afl, rásfesta, veggrip og þægindi í akstri kölluðu
fram allan tilfinningaskalann og skemmtunin ómæld
fyrir vikið. Samanburðurinn við aðrar gerðir Porsche-
bíla varð alls ekki til að minnka álitið á Cayman. Þar
er sannarlega kominn bíll sem stóri bróðirinn 911 þarf
að passa sig á, þó svo að hlutirnir séu teknir enn þá
lengra með honum. Enda er verð hans hátt í helmingi
hærra. Erfitt er að ímynda sér að þörf sé fyrir meira
afl en í Porsche Cayman S. Þar draga 325 hestöfl ekki
nema ríflega þrettán hundruð kílóa bíl og áður en
hendi er veifað sjást dónalegar hraðatölur og ökumað-
ur þrýstist með miklu afli í sætið. PDK-sjálfskipting-
in er sem fyrr eins og draumur og hún heldur bílnum
á miklum snúningi þótt slegið sé af, eingöngu til þess
að vélin sé áfram tilbúin til átaka ef ökumaður þorir
að halda áfram skemmtuninni. Sú skemmtun hélt
lengi áfram og þeir verða öfundaðir sem efni hafa á að
láta þennan bíl standa fyrir utan hjá sér og enn meira
þegar hann gerir það ekki.
LEGUR OG PAKKDÓSIR
VAGNHÖFÐI 7 – SÍMI 5 17 5 000
VERÐLAUN
Sportbíll ársins í
heiminum 2013
ÞRIÐJA KYNSLÓÐ
Kom fyrst fyrir 8
árum
LÉTTARI
Stækkað en lést
AFL
275 eða 325 hestöfl
PORSCHE
CAYMAN