Fréttablaðið - 30.04.2013, Síða 36
30. apríl 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 24MENNING
Furðulegt háttalag hunds um nótt,
leikrit byggt á samnefndri metsölu-
bók, verður sett upp á Stóra sviði
Borgarleikhússins næsta vetur.
„Okkur leist svo vel á þetta leik-
rit að við keyptum réttinn síðast-
liðið haust, áður en það var frum-
sýnt í London,“ segir Magnús Geir
Þórðarson, leikhússtjóri Borgar-
leikhússins.
„Leikritið var strax sett í þýð-
ingu Guðrúnar Vilmundardótt-
ur og það verður Hilmar Jónsson
sem leikstýrir verkinu. Með honum
vinnur að uppfærslunni sami hópur
og setti á svið eftirminnileg leik-
rit í Hafnarfjarðarleikhúsinu á
gullaldarárum þess, Finnur Arnar
leikmyndahönnuður, Þórunn María
búningahönnuður og Björn Guð-
mundsson ljósahönnuður.“
Leikritið The Curious Incident
of the Dog in the Night-Time, eða
Furðulegt háttalag hunds um nótt,
var ausið lofi gagnrýnenda þegar
það var frum-
sýnt síðastliðið
haust. Áhorfend-
ur tóku því líka
opnum örmum
og það var fært
af minnsta sviði
Þjóðleikhússins
breska yfir á
West End. Leik-
ritið fékk sjö
verðlaun þegar
Olivier-verðlaunin voru afhent
í fyrrakvöld. Hinn 28 ára Luke
Treadaway hlaut verðlaun fyrir
bestan leik í aðalhlutverki en hann
fer með hlutverk hins 15 ára Krist-
ófers Boone. Treadaway skaut þar
meðal annars Rupert Everett og
James McAvoy ref fyrir rass.
„Það verður spennandi að sjá
þetta verk á íslensku sviði,“ segir
Magnús Geir að lokum en ekki
hefur verið skipað í hlutverkin hér
á landi. - sbt
Hafnarfj arðarklíka í Borgarleikhúsið
Leikritið Furðulegt háttalag hunds um nótt verður sett upp í Borgarleikhúsinu næsta vetur í leikstjórn Hilmars Jónssonar. Félagar hans
úr Hafnarfj arðarleikhúsinu koma við sögu. Leikritið sópaði að sér verðlaunum þegar hin virtu Olivier-verðlaun voru afh ent í London.
HARPA
Skarar fram
úr að mati
sérfróðra um
byggingarlist.
■ Mies van der Rohe-verðlaunin eru veitt annað hvert ár og eru einhver
virtustu verðlaun á þessu sviði í heiminum.
■ Verðlaunin voru sett á stofn árið 1987 af Evrópusambandinu og Stofnun
Mies van der Rohe í Barcelona.
■ Þeim er ætlað að vekja athygli á því sem best er gert í evrópskri bygg-
ingarlist og koma allar byggingar sem lokið var við á árunum tveimur fyrir
afhendinguna til greina. Í ár voru 350 byggingar frá 37 Evrópulöndum til-
nefndar til verðlaunanna sem nema alls 60 þúsund evrum.
■ Fimm þessara verka voru valin á úrslitalista. Þau voru ráðhúsið í Gent í
Belgíu, almenningsgarðurinn Superkilen í Kaupmannahöfn, heimili eldra fólks
í Alcacer do Sal í Portúgal, Metropol Parasol-garðurinn í Sevilla á Spáni auk
Hörpu.
■ Að undanförnu hefur þessi dómnefnd heimsótt alla þessa staði og tekið út
verkin. Það var niðurstaða hennar að verðlauna Hörpu, en aðeins ein norræn
bygging hefur áður hlotið þessi verðlaun, en það var óperuhúsið í Ósló.
350 byggingar tilnefndar
„Þessi verðlaun eru fagnaðar-
efni fyrir alla Íslendinga,“ segir
Halldór Guðmundsson, forstjóri
Hörpu, en tilkynnt var í gær að
byggingin hlyti Mies van der
Rohe-verðlaunin sem munu vera
ein virtustu byggingarlistarverð-
laun heims. „Við erum óskaplega
glöð hér í húsinu og auðvitað er
þetta mikill heiður fyrir þá sem
hönnuðu húsið.“ Harpa er verk
arkitektastofu Hennings Larsen
í Danmörku, í samvinnu við Batt-
eríið á Íslandi og Stúdíó Ólafs
Elías sonar í Berlín.
Halldór er sannfærður
um að verðlaunin muni auka
fjölda ferðalanga sem gerir
sér ferð til að skoða Hörpu.
„Ég er ekki í nokkrum vafa
um að verðlaunin munu
hafa bein áhrif
á fjölda heim-
sókna í húsið.
Í m e ð a l -
viku fáum
við á bilinu
20-25.000
g e s t i í
húsið. Þar
af er ríflega helmingur sem er
kominn til þess að skoða bygg-
inguna, er sem sagt ekki á leið á
neinn viðburð. Þeim heimsókn-
um mun örugglega fjölga,“ segir
Halldór og bætir við að það stytt-
ist óðum í að gestafjöldi Hörpu
nái tveimur milljónum.
Í rökstuðningi formanns dóm-
nefndar, Wiel Arets, fyrir valinu
á Hörpu var einkum lögð áhersla
á þrennt: þá ákvörðun að ljúka
við byggingu Hörpu þrátt fyrir
kreppuna, einstaka tengingu
byggingarinnar við höfnina
og umhverfi Reykjavíkur
og merkilega samvinnu
við Ólaf Elíasson um gler-
hjúpinn utan um húsið.
„ Þ að va r ei nk a r
ánægjulegt að sjá rök-
stuðninginn. Hann renn-
ir stoðum undir það
að það hafi verið
rétt ákvörðun að
ljúka verkinu og
hafa Hörpu á þessum
stað,“ segir Halldór.
sigridur@frettabladid.is
Harpa verðlaunuð
Harpa hlaut í gær ein virtustu byggingarlistar-
verðlaun heims, Mies van der Rohe-verðlaunin.
➜ Furðulegt háttalag hunds um
nótt eftir Mark Haddon kom út
í Bretlandi 2003 og á Íslandi ári
síðar.
➜ Hún segir frá einhverfum
dreng, Kristófer Boone, með
stærðfræðisnilligáfu sem rekst á
hund nágranna síns rekinn í gegn
með garðkvísl, ákveður að finna
morðingja hans og skrifa leynilög-
reglusögu um leitina. Verkefnið
vindur upp á sig og á endanum af-
hjúpar Kristófer allt aðra og miklu
stærri gátu en hann ætlaði sér.
➜ Leikgerð skáldsögunnar er eftir
Simon Stephens.
➜ Leikritið hlaut verðlaun sem
besta verkið, fyrir leikstjórn, besta
leik í aðalhlutverki og aukahlut-
verki, leikmynd, hljóð og lýsingu
þegar Olivier-verðlaunin voru
afhent á sunnudagskvöld.
Bók verður leikrit
VERÐLAUNASÝNING Luke Treadaway í hlutverki sínu sem Kristófer Boone í
leikritinu Furðulegt háttalag hunds um nótt. Ekki hefur verið skipað í hlutverk í
sýningu Borgarleikhússins sem sett verður upp í janúar.
HILMAR JÓNSSON
HALLDÓR
GUÐMUNDSSON
í 1. maí gönguna
Hittumst á bílaplani ofan við Hlemm kl. 13.00.
Mætum öll
Ekkert um okkur án okkar
til batnaðar á einfaldan og öfgalausan hátt?
INGA KRISTJÁNSDÓTTIR næringarþerapisti D.E.T. kennir ykkur
hve einfalt það getur verið að bæta mataræðið og hvaða ráð hún hefur til þess.
ÞETTA ER EKKI FLÓKIÐ! Inga er búin að halda yfir
40 fyrirlestra um mataræði. Nálgunin er einföld, skýr og
hentar öllum sem áhuga hafa á breyttum lífsháttum.
Staður og stund: Heilsuhúsið Lágmúla 5, kl.18:30 - 21:00
Innifalið er mappa með
uppskriftum og fróðleik.
Verð: 4.900 kr. Nánari
upplýsingar og skráning í síma
8995020 eða á inga@inga.is
www.heilsuhusid.is
FARIÐ VERÐUR MEÐ EINFÖLDUM HÆTTI YFIR:
• Hverju er hægt að skipta út og hvað kemur þá í staðinn
• Hvernig hægt er að þekkja muninn á hollri og skaðlegri fitu
• Hvernig þú getur haldið fullri orku allan daginn og losnað
við sykurþörf og þreytuköst
Þriðjudaginn 7. maí