Fréttablaðið - 30.04.2013, Blaðsíða 40
30. apríl 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 28
Íslenska raftónlistarhátíðin
Extreme Chill Festival – Undir
jökli verður haldin í fjórða sinn
helgina 12.-14. júlí á Hellissandi
við rætur Snæfellsjökuls. Í ár
koma um tuttugu íslenskir tón-
listarmenn fram, auk fjögurra
erlendra tónlistarmanna.
Extreme Chill Festival hefur
tvö ár í röð fengið úthlutað úr
menningarsjóði Kraums. Breska
dagblaðið The Guardian kaus
hátíðina „eina af þeim fimmtán
athyglisverðustu í Evrópu 2012
sökum staðsetningar og umhverf-
is“. Miðasala á hátíðina hefst á
miðvikudaginn á Midi.is.
Extreme Chill
í fj órða sinn
SAMARIS Hljómsveitin Samaris spilar á
Extreme Chill Festival. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Tíu ára ósætti Madonnu og Eltons
John virðist nú loksins vera lokið
en tónlistarfólkið hefur eldað grátt
silfur í gegnum tíðina. Bakgrunnur
rifrildisins er gagnrýni Madonnu á
Lady Gaga, sem fór fyrir brjóstið á
Elton John þar sem hún er góð vin-
kona hans og guðmóðir sonar hans.
Í fyrrasumar lét söngvarinn góð-
kunni hafa eftir sér að tónleika-
ferðalag Madonnu hefði verið ömur-
legt. „Fyrirgefðu, en ferill hennar
er búinn,“ sagði John en Madonna
var snögg að svara kappanum á
tónleikum sínum í haust. „Ég fyr-
irgef honum því ég veit að hann er
aðdáandi minn.“
Í nýlegu viðtali við Huffington
Post greindi Elton John frá því
að hann hefði fyrir tilviljun hitt
Madonnu á veitingastað í Frakk-
landi. „Hún kom inn og ég sendi
henni skilaboð með afsökunarbeiðni
vegna þess sem ég sagði í
viðtalinu í fyrra. Svo
borgaði ég fyrir mat-
inn hennar. Þessu
er lokið núna og
við erum vinir.“
Vináttan endurvakin
Madonna og Elton John hafa eldað grátt silfur í
gegnum tíðina en sættust á dögunum.
BAÐST AFSÖKUNAR
Elton John baðst
afsökunar á
ummælum sínum
um Madonnu í
fyrrasumar þar sem
hann sagði að ferill
söngkonunnar væri
búinn. Þau eru því
orðnir vinir á nýjan
leik.
„Við erum að þessu til að hafa
gaman af þessu, njóta þess
að vera saman og út af for-
vitni,“ segir tónlistarmað-
urinn Magnús Kjartansson.
Fyrrverandi meðlimir Trúbrots,
Mána, Náttúru og Pelican hafa
stofnað ofurgrúppu sem mun
hita upp fyrir Deep Purple á
tónleikum í Laugardalshöll 12.
júlí. Hljómsveitina skipa Magn-
ús Kjartansson, Gunnar Þórðar-
son, Ragnar Sigurjónsson, Smári
Kristjánsson, Björgvin Gíslason
og Ásgeir Óskarsson, auk þess
sem reynt verður að fá söngkon-
una Shady Owens með í för. „Við
erum að pæla í að reyna við hana
einu sinni enn,“ segir Magnús,
sem gerði garðinn frægan með
Trúbroti.
Ofurgrúppan, sem hefur enn
ekki fengið nafn, hélt fund í
hljóðveri Magnúsar á sunnudag
þar sem lagðar voru línurnar
fyrir framhaldið. „Þetta kom til
vegna hvatningar frá þeim sem
standa fyrir Purple-tónleikunum
og aðdáendum þessa tímabils í
íslensku tónlistarsögunni,“ segir
Magnús. Draumurinn var að gera
grúppu úr liprustu og frískustu
aðilum þeirra hljómsveita sem
voru vinsælar upp úr 1970 á pro-
gressive-tónlistartímabilinu eins
og það var oft kallað.
Þarna eru menn sem náðu aldrei
saman á þessum tíma vegna þess
að þeir tilheyrðu sinni klíku og
sínum hópi,“ segir hann og lofar
flottum tónleikum. „Við ætlum
ekki að veigra okkur við að fara
í erfiðasta „stöffið“ enda allt
saman menn í ágætis formi.“
Aðspurður segir hann það koma til
greina að hljómsveitin haldi áfram
störfum eftir tónleikana. „Þetta er
eins og með landsliðið í fótbolta,
það er bara tekinn einn leikur í
einu. Þetta er næsti leikur og hann
verður spilaður alveg til blóðs. En
það svíkst enginn undan kallinu ef
það skyldi koma, því þetta er svo-
lítið skemmtilegur „katalóg“ sem
er að opnast.“
freyr@frettabladid.is
Stofna ofurgrúppu
Meðlimir Trúbrots, Mána, Náttúru og Pelican hafa snúið bökum saman
og stofnað ofurgrúppu fyrir tónleika Deep Purple í Laugardalshöll í júlí.
NÝ OFURGRÚPPA Meðlimir nýju ofurgrúppunnar sem hitar upp fyrir Deep Purple í
Laugardalshöll í júlí. MYND/ALMA GEIRDAL
Magnús kveðst vera mikill aðdáandi Deep Purple eins og flestir frá
progressive-tímanum. „Efnið sem eftir þá hljómsveit liggur er ódauðlegt.
Þetta er eitt af stóru nöfnunum ásamt Led Zeppelin, Jethro Tull og fleiri
sveitum.“
Mikill aðdáandi Deep Purple
IRON MAN 3 3D 5.20, 8, 10.10, 10.40(P)
LATIBÆR 6
G.I. JOE 2 3D 8
OBLIVION 5.30, 8
SCARY MOVIE 5 10.30
þriðjudagstilboð
þriðjudagstilboð
þriðjudagstilboð
þriðjudagstilboð
þriðjudagstilboð
Empire Hollywood reporter
T.K. - Kvikmyndir.is H.V.A - FBL
5%
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
AKUREYRI
H.S. - MBL
WALL STREET JOURNAL
TIME
T.K., KVIKMYNDIR.IS
H.V.A. FRÉTTABLAÐIÐ
EMPIRE
FRÉTTABLAÐIÐ
HOLLYWOOD REPORTER
-H.S., MBL
G.H.J., RÚV
NÝ ÍSLENSK SPENNUMYND
BYGGÐ Á SAMNEFNDRI
METSÖLUBÓK. MYND SEM
ENGIN MÁ MISSA AF!
-H.V.A., FBL
“FÍNASTI FUGL”
- T.K., KVIKMYNDIR.IS - H.V.A. FRÉTTABLAÐIÐ
FRÁBÆR SPENNUMYND MEÐ HALLE
BERRY Í AÐALHLUTVERKI
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐIN
GILDA EKKI Í BORGARBÍÓ
- H.S.S., MBL
FALSKUR FUGL KL. 6 14
OBLIVION KL. 10 12 / THE CALL KL. 8 - 10 16
SCARY MOVIE 5 KL. 8 14
LATIBÆR KL. 6 L
PASSION KL. 5.45 - 8 - 10.15 16
THE CALL KL. 8 - 10.10 16
FALSKUR FUGL KL. 8 - 10 14
OBLIVION KL. 9 12
KAPRINGEN KL. 5.45 12
THE CALL KL. 5.45 - 8 - 10.15 16
THE CALL LÚXUS KL. 5.45 - 8 - 10.15 16
LATIBÆR KL. 4 L
FALSKUR FUGL KL. 6 - 8 14
SCARY MOVIE 5 KL. 6 - 8 - 10 14
OBLIVION KL. 8 - 10.40 12
G.I JOE RETALATION 3D KL. 10 12
THE CROODS 3D ÍSL. TAL KL. 3.30 - 5.45 L
THE CROODS 2D ÍSL.TAL KL. 3.30 L
FLÓTTINN FRÁ JÖRÐU 2D KL. 3.30 L
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ON THE ROAD (16) 20:00, 22:20
IN MEMORIAM (L) 18:00
HANNAH ARENDT (12) 17:50, 20:00
THE HUNT (JAGTEN) (12) 17:50, 20:00, 22:10
DÁVALDURINN (16) 22:10
SLÓ Í GEGNA Á ÞÝSKUM
KVIKMYNDADÖGUM
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ: 950 KR MIÐINN
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS
Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
NEMAR, ÖRYRKJAR, ELDRI BORGARAR: 25% AFSLÁTTUR GEGN FRAMVÍSUN SKÍRTEINIS!
BÍÓ PARADÍS KLÚBBURINN: bioparadis.is/klubburinn