Fréttablaðið - 08.05.2013, Side 2

Fréttablaðið - 08.05.2013, Side 2
8. maí 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 2 Við erum að vinna við að greina þessar upplýsingar og við munum á næstu vikum taka ákvarðanir hvort að við þurfum að fá frekari upplýsingar… Róbert Spanó, lögmaður og settur umboðsmaður Alþingis SAMKEPPNISMÁL Fyrirstaða við Jökulsárlón Samkeppniseftirlitið vill að sveitar- félag Hornafjarðar útskýri hvað standi í vegi fyrir því að heimila Must Visit Iceland ehf. áframhaldandi rekstur við Jökulsárlón og hvernig til standi að haga skipulagi svæðisins til frambúðar. FERÐAÞJÓNUSTA Fjölgun gistinótta Gistinætur á hótelum í mars voru 163.200 í marsmánuði og fjölgaði um 22 prósent frá í fyrra. Gistinætur erlendra gesta voru um 79 prósent af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum og fjölgaði þeim um 26% frá sama tíma í fyrra. Jafnframt fjölgaði gisti- nóttum Íslendinga um tíu prósent. MEXÍKÓ, AP Minnst nítján létust og tæplega fjörutíu slösuðust þegar gasflutningabíll sprakk í loft upp skammt norðan Mexíkóborgar í Mexíkó snemma í gærmorgun. Mikill eldur blossaði upp þegar sprengingin varð og barst hann í nærliggjandi bíla og hús. Alls brunnu um fimmtán bílar og eldur kviknaði í 27 húsum. Lögreglumenn sögðu í gær ekki útilokað að tala látinna gæti hækkað. Enn var verið að leita í rústum húsa og flökum bíla. Bíllinn lenti í árekstri, sem varð til þess að hann sprakk. Slysið vakti athygli á tveimur öryggisvandamálum í Mexíkóborg, miklum þungaflutningum bíla, sem lenda reglulega í alvarlegum slysum, og byggingu húsa alveg við stórar hraðbrautir. - þeb Vekur athygli á öryggisvandamálum í Mexíkóborg: Nítján látnir eftir gassprengingu ALELDA Fjöldi bíla á hraðbrautinni brann í slysinu, sem varð fyrir dagrenningu í Mexíkó. NORDICPHOTOS/AFP SPURNING DAGSINS PATREKSFJÖRÐUR „Þetta var hlut- verkalaust hús í anddyri þorpsins og hafði ekki verið notað síðan rétt fyrir aldamót,“ segir Ólafur Sæmundsson húsasmíðameistari, sem leggur nú lokahönd á nýtt 40 herbergja, þriggja stjörnu hótel við Aðalstræti 100 á Patreks- firði sem verður opnað í lok mán- aðarins. Húsið sem um ræðir var byggt á árunum 1938-39 og þá sem frysti- hús. Árið 1961 var frystigeymsla byggð við húsið en 1981 var frysti- húsinu sjálfu breytt í sláturhús. Húsið stóð sem fyrr segir autt til lengri tíma en nú hefur það fengið nýtt hlutverk. Ólafur starfar sem byggingarstjóri en rekstur hótels- ins verður í höndum Fosshótela. „Það var ekkert hótel á Pat- reksfirði fyrir, aðeins gistiheim- ili,“ segir Ólafur. „Hér eru mikil náttúrundur og mikil náttúra til að sýna en það hefur háð sunnan- verðum Vestfjörðum að það hefur ekki verið neitt hótel sem hefur getað tekið á móti stórum hópum. Hér fá allir prívatherbergi með baði og svo verður boðið upp á fínan dinner.“ Þegar Ólafur, sem rekur verk- takafyrirtækið TVT í félagi við Guðmund Kjartansson húsasmíða- meistara, tók við húsinu var það stórt, gluggalaust verksmiðjuhús. Fyrsta verk var því að saga út glugga. Byggingavinnan hefur nú staðið yfir í tæpt ár. Hótelið á að opna 20. maí og það er fullbókað 24. maí. Þetta er ekki fyrsta verkið sem Ólafur kemur að á Patreksfirði. Hann breytti gamla stúkuhúsinu í kaffihús sem hóf rekstur í fyrra. „Hnignunartímabilið hér hófst í kringum árið 1989 en ég hef verið svo heppinn að fá að taka þátt í þessum viðsnúningi. Nú eru tvö laxeldisfyrirtæki sem starfa hér svo það er mikil jákvæðni og gróska í gangi sem á eftir að skapa ný störf og veita fólki atvinnutæki- færi.“ Ólafur segir að þegar hrunið hafi orðið á Íslandi hafi fyrirtæki hans ekki horft til Noregs heldur landsbyggðarinnar. „Það er fullt af tækifærum og atvinnuuppbygg- ingu um land allt og við erum bara að sinna því,“ segir hann. Og Ólafur er stoltur Patreksfirð- ingur. „Hér er ég fæddur og uppal- inn og stoltur af því. Ég hef aldrei farið þó að ég hafi haft viðveru annars staðar. Ég hef komið hingað á hverju ári í verk og viðhald á húsum. Þetta er þorpið mitt, það ól mig upp og fyrir vikið skulda ég því mikið.“ kristjan@frettabladid.is Breytir sláturhúsi í þriggja stjörnu hótel Húsasmíðameistari leggur nú lokahönd á nýtt hótel sem verður opnað í gamla sláturhúsinu á Patreksfirði. Hann gerði einnig upp gamla stúkuhúsið í bænum sem nú er starfrækt sem kaffihús. Þorpið ól mig upp og ég skulda því, segir hann. NÝJA HÓTELIÐ Ólafur Sæmundsson stendur hér við nýja hótelið. Framkvæmdir við það hófust 1. júlí í fyrra en hótelið verður opnað í lok mánaðarins. MYND/ÚR EINKASAFNI Hér eru mikil náttúru- undur og mikil náttúra til að sýna en það hefur háð sunnanverðum Vest- fjörðum að það hefur ekki verið neitt hótel sem hefur getað tekið á móti stórum hópum. Ólafur Sæmundsson húsasmíðameistari Finnur, er þetta ekki að sækja vatnið yfir lækin? „Nó komment… “ Finnur Friðriksson, dósent við HA, rann- sakaði muninn á hegðun kynjanna út frá ummælum þeirra á Facebook. Til leigu verslunarhúsnæði við Fjarðargötu 19 í miðbæ Hafnarfjarðar. Hægt er að leigja húsnæði á bilinu 130 til 364,2 fermetrar. Góð bílastæði, gott aðgengi og stórir gluggar. Húsnæðið er laust. Uppl. veita Úlfar Þór Davíðson s: 897-9030 og Gunnar Skúli Guðjónsson 696-7008 Til leigu verslunarhúsnæði á besta stað í miðbæ Hafnarfjarðar TIL LEI GU STJÓRNSÝSLA „Við erum að vinna við að greina þessar upplýs ingar og við munum á næstu vikum taka ákvarðanir um hvort að við þurfum að fá frekari upplýs- ingar um þessi atriði sem ég er að skoða,“ segir Róbert Spanó, settur umboðsmaður Alþingis, um heim- sókn sína á Litla-Hraun. Róbert fundaði með starfsfólki fangelsisins, heilbrigðisstarfs- fólki sem sinnir heilbrigðisþjón- ustu í fangelsinu, fulltrúum frá Fangelsismálastofnun og innan- ríkis ráðuneytinu og Afstöðu, félagi fanga. Tilgangur heimsóknarinnar er að leggja mat á hvort aðstæður í fangelsinu, aðbúnaður fanga og verklag við ákvörðunartöku um réttarstöðu þeirra samrýmist ákvæðum stjórnarskrárinnar, Mannréttindasáttmála Evrópu, laga og reglugerða um fullnustu refsinga auk meginreglna stjórn- sýsluréttar. Hann hafði til hlið- sjónar skýrslu CPT- nefndarinnar (Evrópunefndar um varnir gegn pyntingum og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refs- ingu) sem gerð verður opinber á næstu vikum. Róbert hitti einnig að máli fanga sem óskuðu eftir samtali. Hann segist vera að íhuga hvort tilefni sé til að eiga frekari fundi. „Þá með fulltrúum fangelsisyfir- valda og þá hugsanlega innan- ríkis ráðuneytisins og velferðar- ráðuneytisins og þá sérstaklega hvað varðar heilbrigðismálefni fanga.“ - hó Umboðsmaður Alþingis metur aðstæður á Litla-Hrauni í kjölfar skýrslu CPT-nefndar Evrópuráðs: Vinnur úr viðtölum við starfsfólk og fanga STJÓRNMÁL Formennirnir Bjarni Benediktsson og Sig- mundur Davíð Gunnlaugsson segja að ráðherra skipan eða breytingar varðandi ráðherrafjölda hafi ekki enn komið alvarlega til tals í viðræðum um myndun ríkis- stjórnar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Hingað til hafi viðræðurnar gengið vel, og búast þeir við að línur gætu farið að skýrast öðru hvorum megin við helgina. Formlegar viðræður hófust á sunnudag. „Hingað til höfum verið að ræða stóra samhengið þar sem efnahagsmálin eru fyrirferðar- mikil,“ segir Bjarni. „Þar erum við meðal annars að ræða ríkis fjármálin, skattamál og hvernig megi örva atvinnulífið og koma hagvexti aftur af stað.“ Varðandi hugsanlega ráðuneytaskipan segir Bjarni að það hafi ekki verið rætt í þaula. „Ég hef tjáð þá skoðun mína að koma aftur á sérstökum heilbrigðis- ráðherra, en að öðru leyti hefur stjórnarráðið verið mjög lítið rætt. Skipting ráðuneyta og slíkt er einfald- lega ekki komið á dagskrá hjá okkur.“ Sigmundur segir að skuldamál og verðtrygging séu næst á dagskrá viðræðnanna. „Við höfum farið frekar vítt yfir sviðið og ekki sökkt okkur djúpt í neina málaflokka. Ég á von á því að við höldum því áfram og höfum mörg mál undir samtímis.“ Varðandi tímaramma fyrir viðræðurnar segir Bjarni að eftir helgi ætti að liggja fyrir hvort flokk- arnir hafi náð saman um einstaka þætti og Sigmundur tekur í sama streng. - þj Formenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks um stjórnarmyndun: Ráðherraskipan ekki rædd enn FUNDAÐ Í GÆR Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segja að stjórnarmyndunarviðræður gangi vel og ættu að skýrast um eða eftir næstu helgi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM MENNINGARMÁL Fyrsta tillaga fyrir tækisins CCP að styttu sem gefa á Reykjavíkurborg gerði ráð fyrir að nöfn allra 400 þúsund notenda Eve-Online tölvuleiksins yrðu letruð á skjöld á styttunni. Sjálf átti styttan að vera tæplega sex metra há á stöpli sem borgin átti að leggja til. Safnstjóri Listasafns Reykja- víkur sagði nöfnin mundu tak- marka merkingu listaverksins og koma í veg fyrir að það stæði óháð hagsmunum einkafyrirtækis. - gar CCP-stytta sem var hafnað: Vildu nöfn allra viðskiptavina

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.