Fréttablaðið - 08.05.2013, Blaðsíða 29
STÓR ELDHÚS
MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 2013 Kynningarblað Eldunartæki, borðbúnaður, matvæli og hreinsiefni.
Markmið okkar í Olís eru heildarlausnir fyrir ýmis fyrirtæki og stofnanir, þar
með talið í rekstri eldhúsa, mötu-
neyta og veitingastaða því við viljum
auðvelda viðskipta vinum okkar í
hvívetna að ná fram hagræðingu
í rekstri,“ segir Eggert Bjarnason,
sölu- og þjónusturáðgjafi heildsölu-
og rekstrarvörudeildar Olís.
Á allra næstu dögum opnar
Olís nýja og glæsilega verslun þar
sem eldhúsverk verða meðal ann-
ars í brennidepli og hvers kyns
búnaður til þeirra í hávegum
hafður. Þar mun lipurt þjónustu-
fólk aðstoða viðskiptavini með til-
liti til þarfa hvers og eins.
„Enn hvílir leynd yfir nafni
verslunarinnar og verður ekki gefið
upp fyrr en búðin verður opnuð
með pompi og prakt,“ útskýrir
Eggert leyndardómsfullur á svip.
„Í versluninni verður meðal
annars á boðstólum allt sem stór
eldhús, mötuneyti og veitinga-
staðir þarfnast og mikið um gagn-
legar nýjungar. Þar má nefna Solid,
nýtt Svansvottað þvottaefni í upp-
þvottavélar, sem kemur í fimm kíló-
gramma umbúðum og er sett í sjálf-
virkan sápuskammtara sem Olís
setur upp fyrir viðskiptavini sína.
Þá bjóðum við nýtt sótthreinsi-
efni fyrir veitingahús sem ætlað er
til hreinsunar og sótthreinsunar á
borðum í eldhúsi og veitingasal og
er afar handhægt og drjúgt.“
Eggert bætir við að í verslun
Olís fáist heildarlína hreinsiefna
með Svansvottun og ýmsar aðrar
umhverfisvottaðar vörur.
„Sífellt f leiri kjósa umhverfis-
vænan rekstur í stóreldhúsum og
við mætum þeim með grænum
lausnum á öllum sviðum.“
Eggert segir allt sem eitt eldhús
þarfnast fást í ríkulegu úrvali, af-
bragðs gæðum og á góðu verði í
nýju Olís-búðinni.
„Í samstarfi við erlenda birgja
vinnum við markvisst að því að
bæta vöruúrvalið. Við mætum því
þörfum markaðarins með nýjum
vörum frá traustum birgjum og
þrautreyndum vörumerkjum. Þar
má nefna glæsilegar servíettur og
kerti, matarfilmur- og pappír, ein-
nota borðbúnað, einnota hlífðar-
fatnað og hreinsiefni af öllu tagi.“
Eggert leggur áherslu á að allir
séu velkomnir í nýju Olís-búðina.
„Verslunin höfðar til allra, ein-
staklinga jafnt sem fulltrúa stofn-
ana og fyrirtækja og þeirra sem sjá
um innkaup heimilisins.“
Allt til hagkvæmra eldhúsverka
Á næstu dögum opnar ný og glæsileg Olís-verslun með vörur til hvers kyns eldhúsreksturs auk annarra rekstrarvara. Olís vinnur
markvisst að því að bjóða viðskiptavinum sínum hagkvæmar lausnir og frábærar vörur frá traustum birgjum, á samkeppnishæfu verði.
Bökunarpappír, plastfilmur, bakkar, form
og einnota borðbúnaður eru meðal þess
sem mun fást í nýju Olís-búðinni.
MYND/STEFÁN
Eggert Bjarnason, sölu- og þjónusturáðgjafi, með nýja Svansvottaða Solid-uppþvotta-
efnið og nýtt, öflugt sótthreinsiefni fyrir borð af öllu tagi í eldhús- og veitingarekstri.
MYND/STEFÁN
Servíettur, kerti og borðdúkar í stíl og
öllum regnbogans litum fást í nýrri eld-
húsverslun Olís. MYND/STEFÁN
HVAÐ SEGJA
VIÐSKIPTAVINIR?
Við höfum notað Solid-
sápuna frá því hún kom
fyrst á markað og hún
hefur sparað okkur mikla
fjármuni. Solid er miklum
mun drýgri en sápan sem
var fyrir og notum við einn
dunk á hálfum mánuði í
stað tveggja á viku áður.
Solid þrífur líka mjög vel og
jafnvel betur en hin. Þá er
þjónusta Olís til fyrirmyndar.
Elva Hjörleifsdóttir, veitinga-
stjóri á Caruso.
Nýja þvottaefnið er algjör
bylting og þrífur miklu betur
en það gamla. Oft fengum
við diska með matarleifum á
úr uppþvottavélinni en með
Solid kemur leirtauið glans-
andi hreint úr vélinni. Við
finnum líka mikinn mun á
því þegar vélin er opnuð að
gufan fer ekki í vitin á okkur
eins og með gamla efninu.
Þá er algjör snilld að þurfa
ekki lengur að skammta
þvottaefnið í vélina því með
Solid er það sjálfvirkt. Það
allra besta við Solid er þó að
sápan er græn og umverfis-
væn. Hún er það besta sem
við höfum notað.
Kristín Hjaltadóttir og Sigríður
Jósepsdóttir, matráðar í Frysti-
húsi Samherja Ísland á Dalvík.
PI
PA
R\
TB
W
A
-
SÍ
A
-
13
14
75
Rekstrarvörudeild Olís býður mikið úrval rekstrarvara
fyrir matvælavinnslu og veitingahús. Vörurnar eru
þaulreyndar við íslenskar aðstæður og þeir sem þekkja
þær vita að þeir geta stólað á gæðin.
· Kvoðuhreinsiefni· Sótthreinsiefni· Hreingerningaefni á gólf, veggi og aðra harða fleti· Handsápur, -sótthreinsir og -áburður· Uppþvottalögur og -gljái· Hreinlætispappír· Hreingerningaáhöld og -tæki· Einnota hlífðarfatnaður· Plastpokar· Vinnufatnaður
Ítrustu kröfur
um hreinlæti
REKSTRARVÖRUR
Sími 515 1100 | pontun@olis.is | olis.is
Nánari
upplýsingar
á olis.is,
í síma 515 1100
eða hjá næsta
útibúi Olís.