Fréttablaðið - 08.05.2013, Qupperneq 36
KYNNING − AUGLÝSINGStór eldhús MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 20138
STÓRFRAMLEIÐENDUR MATVÆLA
Tíu stærstu matvælaframleiðendur heims framleiða stóran hluta þeirra mat-
væla sem við neytum á hverjum degi. Allt frá morgunverði til hádegis- og
kvöldverðar auk flestra millibita þar á milli. Fyrirtækin stóru sem um ræðir eru
Coca Cola, Pepsico, Mars, Johnson & Johnson, General Mills, Nestlé, Kraft, P &
G, Kellogg‘s og Unilever. Við byrjum daginn á því að fara í sturtu og raka okkur
með vörum frá þessum fyrirtækjum. Stór hluti morgunkorns sem við neytum
er einnig frá þeim. Kaffisopinn í vinnunni gæti verið framleiddur hjá þeim og
ef við skreppum út í hádegismat og kaupum skyndibita er líklegt að máltíðin
eigi rætur að rekja til þeirra. Millibiti dagsins, til dæmis kornstöng, súkkulaði,
svaladrykkur eða kex, gæti verið framleiddur hjá risunum. Eftir vinnu skellum
við okkur í ræktina og súpum á orkudrykk sem líklegast kemur frá sömu fyrir-
tækjum. Þegar við eldum kvöldmat notum við oft hráefni frá þeim auk þess
sem sum gæludýr heimilisins fá bita úr framleiðslu þeirra. Við endum síðan
daginn á því að bursta tennurnar, oftast með tannkremi frá þeim.
ÝTT UNDIR HEILSUSAM
LEGRA FÆÐUVAL
Smarter lunchrooms er hreyfing
sem var stofnuð af landbúnaðar-
ráðuneyti Bandaríkjanna árið 2009
með það að markmiði að hvetja
til skólamötuneytisreksturs sem
ýtir undir það að nemendur velji
heilsusamlegri kost. Markmiðið er
að rekstraraðilar mötuneyta fái í
hendurnar vitneskju um aðferðir
til að bæta fæðuval barna og er
allt kapp lagt á að sú vitneskja
byggi á vísindalegri þekkingu um
atferli manna.
Það að bjóða hollari kost tryggir
ekki endilega að börnin velji að
borða hann og þarf oft meira
til. Rannsóknir hafa til að mynda
sýnt að með því að segja börnum
að teiknimyndahetjur eða aðrar
mikilvægar fyrirmyndir í lífi þeirra
borði ávexti og hafa jafnvel mynd
af þeim við ávaxtastandinn aukast
líkurnar á að þau velji ávexti fram
yfir til að mynda franskar. Þá
virðist það hafa jákvæð áhrif að
gefa matnum skemmtileg nöfn.
Bragðeiginleikar og hentugleiki
hafa sömuleiðis mikil áhrif á fæðu-
val en lengi vel hefur aðgengi
að óhollum mat sem fljótlegt er
að kippa með sér verið meira en
að hollum mat og heilsusam-
legu millimáli. Ef aðgengi að
hollustu er gott eru
meiri líkur á að
hún verði fyrir
valinu og því
er mikilvægt
að hafa gott
úrval heilsusam-
legra matvæla á
boðstólum og stilla
þeim þannig upp að
aðgengi sé með besta móti.
Nánari upplýsingar má finna á:
smarterlunchrooms.org
KVIKMYNDAELDHÚS
Ýmsar klassískar kvikmyndir
innihalda ógleymanleg atriði sem
gerast í eldhúsi. Í Jurassic Park
eftir Steven Spielberg gerist eitt
eftirminnilegasta atriði myndar-
innar í stóru eldhúsi í garðinum.
Börnin tvö, Tim og Lex, eru föst
þar inni á meðan smávaxnar en
afar svangar og ógnvekjandi
risaeðlur reyna að finna þau.
Börnin nýta sér aðstæðurnar
vel og bjargast að lokum. Eitt af
mörgum frábærum atriðum Kill
Bill-seríunnar eftir Quentin Tarant-
ino gerist meðal annars í eldhúsi
í rólegu úthverfi í Bandaríkjunum.
Þangað heimsækir Brúðurin,
leikin af Umu Thurman, Vernitu
Green sem er svo óheppin að
vera efst á dauðalistanum. Eftir
slagsmál hitar Vernita sér kaffi í
eldhúsinu og íhugar næstu skref,
vitandi að byssan hennar er í
morgunkornspakkanum. Woody
Allen leikur gjarnan veiklundaða
karlmenn sem hræðast margt. Í
Annie Hall frá 1977 berst hann
við lifandi humra í eldhúsinu með
misjöfnum árangri. Þeir sleppa
undan og hann reynir að lokka
einn þeirra undan ísskápnum
með smjörsósu og hnetubrjót en
án árangurs. Rauða
gerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.
Okkar þekking nýtist þér
Kæli- & frystiklefar, kæli &
frystikerfi, hurðir & öryggis-
búnaður
Afgreiðslu- & kökukælar
Stálborð, vaskar, hillur og
skápar
Klakavélar
Loftkæling
Vitamix blandarar
Hraðkælar & frystar Kæli- & frystitæki fyrir
veitingamarkaðinn
HillukælarPlaststrimlar í kæli- & frystiklefa
Vínkælar Hillur í kæli- & frystiklefa
Jurassic Park