Fréttablaðið - 08.05.2013, Page 48
8. maí 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 36
Snípurinn er magnað fyrir-bæri en afskaplega vanmetið. Hann hefur um átta þúsund
taugaenda sem hafa þann eina til-
gang að veita píkunni unað. Hann
leynir á sér því undir yfirborði
litlu perlunnar leynast taugar sem
liggja niður meðfram börmunum
og inn eftir leggöngunum. Hann er
fóstur fræðilega skyldur kónginum
og rís hold þegar hann verður
graður. Þegar kemur að kynlífi
þá er snípurinn stjarnan. Rann-
sóknir á fullnægingu kvenna sýna
að mikill meirihluti, um 70-85%,
þarf örvun á sníp til að fá fullnæg-
ingu. Þessi örvun getur farið fram
áður en samfarir eru stundaðar, á
meðan eða á eftir. Eða bara á öllum
þessum tímapunktum.
Þetta er fyrsti fræðslumolinn
minn í píkufræðslu unglinga. Ég
sýni þeim risavaxna mynd af sníp
og útskýri að þessi fer ekki á flakk
heldur trónir alltaf á toppnum,
pollslakur og til í að láta kitla
sig. Ég er orðin hundleið á því að
stelpur láti „putta sig í leggöng“
og skilja svo ekkert af hverju tak-
markaður unaður hljótist af því.
Þeir sem stunda kynlíf þurfa að
skilja hvernig líffærið virkar og
það að vanrækja snípinn er eins
og að rúnka karlmanni í naflann,
það bara virkar ekki. Þetta myndu
margar stúlkur skilja og vita ef
þær hefðu stundað sjálfsfróun.
Snípurinn gersamlega æpir á við-
komandi að veita sér örvun og þá er
um að gera að svara kallinu. Þessi
vitundarvakning um snípinn fer
skemmtilega saman við þá stað-
reynd að maí er mánuður sjálfsfró-
unar.
Marga þyrstir í fróðleik um
„bestu“ stellingarnar sem hámarka
unað en staðreyndin er sú að ef
þú stundar samfarir með píku þá
hentar hvaða stelling sem er. Svo
lengi sem hendur eru frjálsar til
að örva snípinn má hafa gaman af
þessu. Þó ber að nefna að snípur-
inn smyr sig ekki sjálfur og því
er mikilvægt að ná sér í bleytu úr
píkunni, með munnvatni eða sleipi-
efni. Hann er, jú svo næmur, þessi
elska. Gleymum því samt ekki að
það er stutt síðan snípurinn þótti
hallærislegur, jafnvel barnalegur
og ekki minni menn en Freud fuss-
uðu og sveiuðu yfir honum. Í sögu-
bókum læknisfræðinnar hefur
honum verið sleppt og ekki talin
ástæða til að fjalla sérstaklega um
hann né rannsaka, enda tengdur
unaði sem gjarnan átti að hemja
eða ekki þótti ástæða til að fjalla
sérstaklega um. Sumir kunna að
telja þennan fróðleik afskaplega
takmarkaðan og yfirborðskenndan
en ef litið er til annarra menningar-
samfélaga og málið skoðað í alþjóð-
legu samhengi þá skiptir snípur-
inn og tilgangur hans miklu máli,
fyrir okkur öll. Ekki minni maður
en Warren Buffet sagði að virkja
þyrfti kvenmenn til að koma heim-
inum í rétt horf og var hann örugg-
lega að skírskota í öll grundvallar-
mannréttindi, eins og það að mega
upplifa kynferðislegan unað. Það
er því einkar ánægjulegt þegar
píkunni er hampað og fólk fræðist
um gildi hennar og gleði. Er það
ekki markmið okkar allra að lifa
sem unaðslegustu lífi og vita meira
í dag en í gær?
Gleymdi snípurinn
KYNLÍF TAKTU ÞÁTT!
Sendu Siggu Dögg póst og
segðu henni frá vandamáli
úr bólinu. Lausnin gæti
birst í Fréttablaðinu.
kynlif@frettabladid.is
2150
POTTURINN STEFNIR Í
Fyrsti vinningur stefnir í 110 milljónir og Ofurpotturinn stefnir í 2.040 milljónir.
Ekki gleyma að vera með, fáðu þér miða fyrir klukkan fjögur í dag á
næsta sölustað eða á lotto.is
110.000.000
+2.040.000.000
ALLTAF Á MIÐVIKUDÖGUM!
MIÐINN GILDIR 8. MAÍ 2013A. 12 14 17 21 41 48
B. 05 16 23 36 37 38
C. 07 09 13 22 34 38
D. 03 06 19 24 25 31
E. 11 19 21 25 38 42
F. 01 25 35 36 39 46
G. 18 19 20 23 28 46
H. 22 27 29 39 40 42
82310000183296
SUMAROPNUN, SÖLU LÝKUR KL. 16
➜ Standa fyrir fjölbreyttum viðburðum fyrir grænmetisætur og
stuðla að auknum tengslum grænmetisæta.
➜ Standa fyrir virkri fræðslu og upplýsingagjöf til grænmetisæta
og annarra.
➜ Gefa út hnitmiðað fræðsluefni fyrir matvælaframleiðendur,
veitingastaði og matreiðslumenn og koma því markvisst á
framfæri.
➜ Stunda virka hagsmunagæslu og aðhald.
➜ Finna leiðir til að aðstoða fólk við að gerast grænmetisætur.
➜ Leita leiða til að bæta og auka grænmetis- og vegan-merkingar
neysluvara og matseðla.
MARKMIÐ SAMTAKA GRÆNMETISÆTA:
„Okkur þótti tímabært að reyna
að tryggja að grænmetisætur á
Íslandi geti lifað hamingjusömu
lífi án þess að neyta kjöts. Okkur
langar til dæmis að reyna að
bæta úrvalið af réttum á veitinga-
stöðum og upplýsa fólk um að hér
búi mikill fjöldi fólks sem borðar
ekki hinn hefðbundna, íslenska
mat. Okkur langar að geta farið
á veitingastað og pantað græn-
metissúpu sem er ekki með kjöt-
krafti í, eins og er svo víða,“ segir
Sigvaldi Ástríðarson, formaður
nýstofnaðra Samtaka grænmetis-
æta á Íslandi.
Samtök grænmetisæta eru til
víða um heim og standa þau meðal
annars að fræðslu og ýmsum við-
burðum fyrir grænmetisætur. Að
sögn Sigvalda þótti þörf á slíkum
samtökum hér á landi því græn-
metisætur mæta gjarnan skiln-
ingsleysi og fordómum. „Við
viljum sýna fólki að grænmetis-
ætur eru ekki táningar að ganga
í gengum tímabil. Við erum allt
frá því að vera stórir, skeggjaðir
karlmenn yfir í venjulegt fólk sem
sumt hefur verið grænmetisætur
allt sitt líf.“
Sigvaldi starfar sem útvarps-
maður á Rás 2 og innan tölvugeir-
ans. Hann og kona hans gerðust
grænmetisætur árið 1999 en Sig-
valdi gekk svo skrefi lengra og
gerðist vegan fyrir sjö árum. Fólk
sem aðhyllist veganisma neytir
hvorki dýraafurða né gengur í
fatnaði unnum úr dýraafurðum.
„Upphaflega gerðumst við
grænmetisætur vegna þess að við
höfðum ekki efni á kjöti og erum
bæði miklir dýravinir. Svo bætt-
ust fleiri ástæður við; heilsufars-
legar, mengunarvarnir og annað.
Ég ákvað svo að gerast vegan
fyrir sjö árum og það var mun
auðveldara en ég hafði búist við,“
segir Sigvaldi að lokum. Finna
má samtökin á Facebook undir
nafninu Samtök grænmetisæta á
Íslandi. sara@frettabladid.is
Stofnuðu Samtök
grænmetisæta
Sigvaldi Ástríðarson er formaður nýstofnaðra Samtaka grænmetisæta á Íslandi.
Sambærileg samtök fi nnast víða um heim og stuðla meðal annars að fræðslu.
FER FYRIR GRÆNMETISÆTUM Útvarpsmaðurinn Sigvaldi Ástríðarson er formaður
Samtaka grænmetisæta á Íslandi. Samtökin ætla að stuðla að fræðslu.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR