Fréttablaðið - 08.05.2013, Blaðsíða 52
8. maí 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 40
„Þetta var rosalega skemmtilegt ævin-
týri. Ég hef aldrei farið á svona stað áður,“
segir grafíski hönnuðurinn og áhugaljós-
myndarinn Oscar Bjarnason.
Hann náði öðru sæti í ljósmyndasam-
keppninni HIPA sem krónprinsinn af
Dubai, Sheikh Hamdan Bin Mohammed
Bin Rashid Al Maktoum, hélt í annað sinn.
Oscar frétti af samkeppninni í gegnum
vin sinn og ákvað að senda inn norður-
ljósamynd sem hann tók í Straumsvík.
Eftir að hafa fengið tölvupóst þar sem
hann var beðinn um að vera viðstaddur
verðlaunaafhendinguna fór hann með
flugvél út til Dubai á fyrsta farrými. Þar
tók einkabílstjóri á móti honum í glæsibif-
reið og ók með hann á lúxushótel þar sem
hann dvaldi í heila viku án þess að þurfa
að borga nokkurn skapaðan hlut. „Þetta
var aðeins of mikið og eiginlega nett
óþægilegt. Það eina sem ég borgaði voru
leigubílar sem kostuðu ekki neitt en það
var algjört ævintýri að prófa þetta,“ segir
Oscar sem fékk í verðlaun sextán þúsund
dali, eða tæpar tvær milljónir króna.
Peningaverðlaunin í HIPA-keppninni
munu vera þau hæstu sem veitt eru í nokk-
urri ljósmyndasamkeppni í heimi. Veitt
voru verðlaun í fjórum flokkum og hlaut
Oscar önnur verðlaun í aðal flokknum. Ein
heildarverðlaun yfir alla keppnina voru
veitt og hlaut vinningshafinn 120 þús-
und dali, eða um fjórtán milljónir króna.
Hægt er að skoða myndabanka Oscars á
slóðinni Oscarbjarna.photoshelter.com.
- fb
Fékk ljósmyndaverðlaun í Dubai
Oscar Bjarnason vann til verðlauna fyrir norðurljósamynd frá Straumsvík.
ÖNNUR VERÐLAUN
Oscar tekur við
verðlaununum fyrir
ljósmynd sína úr
höndum Sheikh Ham-
dan Bin Mohammed
Bin Rashid Al Maktoum
í Dubai.
➜ Fimm ljósmyndir Oscars voru
einnig verðlaunaðar af One Eyeland
sem er vefsíða fyrir áhugaljósmyndara.
Söngkonan Lauryn Hill var á
dögunum dæmd í þriggja mán-
aða fangelsi fyrir að hafa svikið
undan skatti. Hill játaði að hafa
vísvitandi ekki borgað skatt af
um 250 milljónum króna sem
hún vann sér inn á árunum 2005-
2009. Auk fangelsisvistarinnar
þarf Hill að borga upphæðina til
baka auk vaxta og sektar. Einnig
verður Hill á skilorði í eitt ár
eftir afplánun ásamt því að vera í
stofufangelsi í einn mánuð.
Hill er sex barna móðir og
hefur unnið fimm Grammy-verð-
laun á ferli sínum.
Dæmd í
þriggja mán-
aða fangelsi
Blátt M&M-sælgæti með hnetu-
fyllingu varð Liam Gallagher
næstum að aldurtila fyrir
skemmstu. Söngvarinn borðaði
sælgætið á hótelherberginu sínu
á tónleikaferðalagi og fékk bráða-
hnetuofnæmi í kjölfarið, en slíkt
hafði aldrei hent þann óstýriláta
áður.
„Ég hef gert ýmislegt um
ævina, en mig grunaði aldrei að
eitt andskotans M&M-nammi
myndi geta drepið mig,“ sagði
Gallagher í viðtali við The Sun.
Í sama viðtali greindi söngv-
arinn einnig frá því að ef hann
hefði fengið að ráða hefði nýjasta
plata hljómsveitar hans, Beady
Eye, verið látin heita „Universal
Gleam“.
Næstum dáinn
eft ir nammiát
JÁTAÐI Lauryn Hill játaði brot sitt fyrir
dómara í vikunni. NORDICPHOTOS/GETTY
LIAM GALLAGHER Slapp vel frá
bráðaofnæminu.