Fréttablaðið - 16.05.2013, Page 1
FRÉTTIR
50 ÁRA AFMÆLI DÚMBÓ OG STEINA
Hljómsveitin Dúmbó sextett heldur upp á 50 ára söngafmæli
Steina, Sigursteins Hákonarsonar, og sömuleiðis 50 ára afmæli
Dúmbó sextetts með tónleikum í Bíóhöllinni á Akranesi annað
kvöld kl. 21. Hljómsveitin hefur alla tíð notið mikilla vinsælda.
É g sýni flíkurnar fyrst opin-berlega núna en ég stofnaði Black Sand í vetur,“ segir Ásdís Loftsdóttir fatahönnuður. Frá því Ásdís lauk námi í fata-hönnun árið 1986 hefur hún unn-ið ullarvörur undir merkinu Diza og hannað munstur fyrir hand-prjón. Í nýju línunni hannar hún munstur og lætur prenta fyrir sig á náttúruleg efni og sækir inn-blástur til íslenskrar náttúru. „Ég geri föt fyrir konur á öllum aldri og hef að leiðarljósi að föt-in séu þægileg og að konum líði vel í þeim. Fötin eiga jafnframt að vera þægileg í umhirðu og úr góðum efnum og ég nota mikið náttúruleg efni, jersey, hör, bóm-ull og silki,“ útskýrir Ásdís. „Ég þrykki bæði sjálf og læt prenta stafrænt fyrir mig munstur með biðukollum og myndir af álfa-steinum og fleiru. Þá þrykki ég á boli sem ég hanna og sauma sjálf,“ segir Ásdís e f
BIÐUKOLLUR OG ÁLFASTEINARFATAHÖNNUN Ásdís Loftsdóttir sýnir nýtt merki, Black Sand, á sýningu Hand-
verks og hönnunar í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. Munstrin sækir hún í íslenska
náttúru, blóm og steina. Sýningin verður opnuð klukkan 16 í dag.
BÍÐUR SPENNT Ásdís Loftsdóttir fatahönnuður er spennt að sjá hvernig viðtökur nýja línan fær. Sýningin verður opnuð klukkan 16 í dag í Ráðhúsinu og stendur fram á mánudag.
OPNUN
Í DAG
Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955
TÆKIFÆRISGJAFIR
www.tk.is
NÝTT
MUNNBLÁSIÐ - HANDUNNIÐFæst eingöngu hjá
IV
V
ha
nd
un
ni
ð
fr
á
Íta
líu
Teg 23451 - mjúkur í 80-95 C,D,E skálum á kr. 5.800,- buxur við á kr. 1.995,-
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366Þú mætir - við mælum og aðstoðumwww.misty.isOpið frá 10-18 virka daga.Laugardaga frá kl. 10-14
GLÆSILEGUR !
afsláttur
af öllum skóm
FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2013
E ROVISION
KRAKKAR
FIMMTUDAGUR 16
. MAÍ 2013
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Fimmtudagur
24
3 SÉRBLÖÐ
Eurovision | Krakkar | Fólk
Sími: 512 5000
16. maí 2013
114. tölublað 13. árgangur
Tileinka sér heilbrigði
Krakkar í efstu bekkjum Rimaskóla
hafa lært að tileinka sér heilbrigðan
lífsstíl að undanförnu. Krakkarnir
spreyta sig á eldamennsku, læra um
mikilvægi slökunar og svefns auk
þess að reyna sig í íþróttum. 10
Stefna á toppinn Ingólfur Gissurar-
son og Leifur Örn Svavarsson stefna
báðir á tind Everest á næstu vikum. 2
Óttast um báta barna Siglingafélög
segja hættu á að börn í siglinga-
klúbbum rekist á stólpa áformaðrar
brúar yfir Fossvog. 8
Sjöþúsund með krabbameinsgen
7.000 Íslendingar á skrá Íslenskrar
erfðagreiningar eru í 80% hættu á að
fá banvænt krabbamein. 18
MENNING Ragnheiður Eiríksdóttir
er ásamt dr. Gunna á leið í stúdíó að
taka upp plötu fyrir lífsglatt fólk. 66
SPORT Alfreð Gíslason er búinn að
vinna tíu stóra titla á fimm tímabilum
sínum með Kiel. 62
Áfram
Ísland
Opið til
21
Nýtt kortatímabil
KRINGLUKAST
20–50% AFSLÁTTUR
OPIÐ TIL 21
NÝR MATSEÐILL FYLGIR
BLAÐINU Í DAG.
IÐNAÐUR Verði tafir á framleiðslu-
aukningu í álveri Rio Tinto Alcan
í Straumsvík um einhvern tíma
mun orkan úr Búðarhálsvirkjun
geta nýst í önnur verkefni. Það
gæti leyst úr orkuþörf álvers
Norðuráls í Helguvík.
Fregnir bárust af því í apríl að
Rio Tinto, móðurfélag álversins í
Straumsvík, væri að endurskoða
fjárhagsáætlun og tímaramma
þriggja stækkunarverkefna, þar
á meðal í Straumsvík. Wall Street
Journal sagði það hluta af stefnu
nýs forstjóra, Sams Walsh, um
að draga úr kostnaði og einblína
frekar á námastarfsemi, sem
væri arðbærasti hluti starfsem-
innar.
Ólafur Teitur Guðnason, upp-
lýsingafulltrúi Rio Tinto Alcan á
Íslandi, segir að ekki hafi verið
hætt við verkefnið. „Ég get lítið
sagt um þetta í dag en ég get sagt
eitthvað um það á morgun,“ sagði
hann í samtali við Fréttablaðið
í gær. Í samtali við fréttastofu
Ríkis útvarpsins í apríl sagði hann
ljóst að verkefnið yrði dýrara en
að hefði verið stefnt.
Heimildir Fréttablaðsins
herma að tæknilegir örðugleikar
hafi komið upp við verkefnið, þó
að það sé að einhverju leyti komið
til framkvæmda. Auka átti fram-
leiðslugetu fyrirtækisins um 40
þúsund tonn; úr 190 í 230 þúsund.
Framkvæmdir við Búðarháls-
virkjun eru í fullum gangi og
stefnt er að því að hægt verði að
afhenda orku úr henni fyrir ára-
mót. Áætlað afl hennar er um 95
megavött. Hörður Arnarson, for-
stjóri Landsvirkjunar, segir að
það sé ekki hans að svara fyrir
hvað verði um orkuna, fari hún
ekki strax í Straumsvík, og vísar
til forsvarsmanna Rio Tinto.
„Við vitum alveg að það verður
seinkun á verkefninu en það er
algjörlega á þeirra hendi að tjá
sig um stöðu þess.“
Óvissa hefur ríkt um orkuöflun
vegna álvers í Helguvík og voru
virkjanakostir í neðrihluta Þjórs-
ár, sem nýta átti í verkefnið, sett-
ir í biðflokk í rammaáætlun. Þá
hefur Bjarni Bjarnason, forstjóri
OR, sagt að fyrirtækið muni ekki
reisa fleiri virkjanir fyrr en ljóst
sé hvernig það getur uppfyllt
strangari mengunarkröfur, en
orka úr Hverahlíðarvirkjun var
hugsuð fyrir álver í Helguvík.
Ragnar Guðmundsson, for-
stjóri Norðuráls, segir fyrirtækið
vera tilbúið í verkefnið. „Það sem
okkur vantar er að klára orku-
myndina.“ - kóp
Helguvík gæti
fengið orku
frá Búðarhálsi
Tafir á framleiðsluaukningu álvers Rio Tinto í
Straumsvík gætu þýtt að orkan sem þar átti að nýta
fari í önnur verkefni. Álver í Helguvík er þar líklegast.
Norðurál segir ekkert vanta nema að klára orkuöflun.
SKOÐUN Ómar Þ. Ragnarsson sjón-
varpsmaður skrifar um hernað gegn
undrum Mývatnssveitar. 26
■ Álver í Helguvík eykur hagvöxt
um 2,3 prósent á fjögurra ára
tímabili samkvæmt spá hag-
deildar ASÍ frá árinu 2010.
■ 2.000 störf sem tengjast
álverinu og rekstri þess verða til.
■ 4.000 störf þarf við byggingu
álversins samkvæmt áætlun.
■ 600 störf eru ráðgerð í
álverinu á rekstrartíma þess.
Áhrif framkvæmda
í Helguvík
Bolungarvík 2° NA 7
Akureyri 3° NV 9
Egilsstaðir 3° NV 6
Kirkjubæjarkl. 9° N 8
Reykjavík 10° NA 7
Bjart syðst Í dag eru horfur á
norðlægum áttum, víða 8-15 m/s.
Bjartviðri sunnanlands en annars skýjað
og rigning eða slydda NA-til. 4
LÖGREGLUMÁL Tíu ára stúlka úr
Vestur bænum vísaði á þriðjudag lög-
reglu á slóð manns sem grunaður er
um að hafa neytt hana með valdi upp
í bíl sinn og brotið á henni kynferðis-
lega.
„Stúlkan var á heimleið úr skóla
á þriðja tímanum eftir hádegi þegar
ókunnugur maður tók hana með valdi
og setti í aftursæti bifreiðar sem
hann var á. Ekið var með stúlkuna á
afvikinn stað í útjaðri höfuðborgar-
svæðisins, en þar er maðurinn talinn
hafa brotið gegn stúlkunni,“ segir í
frétt lögreglunnar.
Maðurinn, sem er á fertugsaldri,
var handtekinn eftir að stúlkan gaf
lögreglu upp bílnúmer hans og aðrar
lýsingar á atburðarásinni. Hann var
úrskurðaður í tveggja vikna gæslu-
varðhald í gær. Björgvin Björgvins-
son, yfirmaður kynferðisbrota-
deildar lögreglunnar, kveðst ekki
geta tjáð sig um hvort maðurinn hafi
játað eða neitað sök.
„Eitt af því sem gert hefur verið í
fræðslu til barna um viðbrögð í slík-
um tilvikum er að benda þeim á að
taka vel eftir öllu og reyna til dæmis
að muna bílnúmer eða taka eftir
öðrum auðkennum,“ segir lögreglan,
sem hvetur foreldra til að ræða yfir-
vegað við börn sín um slík mál.
„Auðvitað á að ræða þetta við börn
en þau geta orðið ofsahrædd og varla
treyst sér til að ganga eðlilega heldur
hreinlega hlaupa í og úr skólanum,“
segir Dalla Jóhannsdóttir, segir for-
maður foreldrafélags Vesturbæjar-
skóla. - gar, - hó / sjá síðu 4
Karlmaður í gæsluvarðhaldi eftir að hafa rænt tíu ára stúlku úti á götu:
Lítil hetja gat bent á gerandann
TEK ÞETTA Á ÆÐRULEYSINU Eyþór Ingi Gunnlaugsson, fulltrúi Íslands í
Eurovision-söngvakeppninni, ræddi í gær við fjölmiðlamenn og aðdáendur í Malmö.
Seinni undankeppni Eurovision fer fram í kvöld og verður Eyþór sá áttundi á svið,
með lagið Ég á líf. „Ég ætla að taka þetta á æðruleysinu, gera mitt besta og skemmta
mér vel. Allt annað er bara bónus,“ segir Eyþór. Sjá síðu 66 MYND/ÖRLYGUR SMÁRI
➜ Lögreglan segir að
benda eigi börnum á
að taka vel eftir öllu
og reyna til dæmis að
muna bílnúmer eða
taka eftir öðrum auð-
kennum hjá gerand-
anum, verði þau fyrir
því að brotið sé gegn
þeim.