Fréttablaðið - 16.05.2013, Síða 6

Fréttablaðið - 16.05.2013, Síða 6
16. maí 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6 UTANRÍKISMÁL Samningur um gagnkvæma aðstoð norðurskautsríkjanna vegna olíumengunar í hafi var undirritaður á ráðherrafundi Norðurskauts- ráðsins. Fundurinn var haldinn í Kiruna í Norður- Svíþjóð í gær. Í sameiginlegri yfirlýsingu um framtíðaráherslur ráðsins segir að gríðarmikil tækifæri felist í efnahagslegri þróun norðurslóða og samstarf á því sviði verði forgangsmál í störf- um ráðsins. Í því ljósi verður samstarf ríkjanna styrkt á sviði umhverfismála og borgaralegs öryggis og segir þar að loftslagsbreytingar séu mikið áhyggjuefni og ríkin muni vinna saman að því að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda. Á fundinum var samþykkt að veita Indlandi, Ítalíu, Japan, Kína, Singapúr og Suður-Kóreu áheyrnaraðild að ráðinu. Tekin var ákvörðun um að ESB fái áheyrnaraðild þegar niðurstaða hefur fengist varðandi útfærslu á undanþágum fyrir frumbyggja á banni á sölu á selaafurðum til ESB. Í ávarpi Íslands var fagnað þeim árangri sem Norðurskautsráðið hefur áorkað frá stofnun þess og ráðið hafi eflst á sviði vísinda, sem og varð- andi stefnumarkandi umfjöllun um málefni norðurslóða. Þar ber hæst samninga um leit og björgun og um viðbrögð gegn olíumengun. - shá Norðurskautsráðið veitti sex ríkjum áheyrnaraðild á ráðherrafundi í Kiruna: Samningur gegn mengun í hafi UNDIRRITUN Hermann Örn Ingólfsson, sviðsstjóri utanríkis- ráðuneytisins, fór fyrir sendinefnd Íslands á fundinum. MYND/UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ STJÓRNSÝSLA Umboðsmaður Al- þingis telur LÍN hafi ekki hafa farið að lögum þegar stofnunin synjaði konu um námslán, sjötta árið hennar til BA-náms. Synjunin var byggð á því að hún hafi verið búin að fá lán í sex ár til grunnnáms. Henni hafi þegar verið veitt undanþága fyrir fimmta árinu og engin heimild væri til að veita frekari undanþágur. Synjun- in leiddi til þess að hún neyddist til að hverfa frá námi en hún átti eftir eina önn til þess að ljúka gráðu. Konan leitaði til umboðsmanns Alþingis og kvartaði yfir úrskurði málskotsnefndar LÍN. Hún hafði verið við nám við háskóla í Eng- landi þegar hún veiktist. Hún náði bata og staðfest var að hún myndi ljúka náminu ytra á tilsettum tíma. Umboðsmaður leit til laga um LÍN þar sem veitt er heimild til þess að veita aukalán ef veikindi tefja nám. Mælst er til þess að mál- skotsnefnd taki mál konunnar upp að nýju komi fram ósk um það. - hó Umboðsmaður Alþingis ályktar að úrskurður LÍN hafi ekki verið réttmætur: Vildu ekki lána fyrir sjötta árinu LÍN SETTUR UMBOÐSMAÐUR Alþingis mælist til þess að LÍN taki mál konunn- ar til meðferðar að nýju. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI LÖGREGLUMÁL Uppi varð fótur og fit í Lönguhlíð á sjötta tímanum í gær þegar tveir bræður eltu mann sem flúði undan þeim inn í Sunnu- búð og faldi sig þar. Sjónar vottur segir að þegar maðurinn hafi komið út úr versluninni aftur hafi hann verið vopnaður hnúajárni. Til stympinga kom þar á búðar- hlaðinu sem lítil börn sem efnt höfðu til tombólu við verslunina fylgdust með uns lögregla sem kölluð var til mætti með fjölmennt lið og skakkaði leikinn. - gar Slagsmál í Lönguhlíð: Með hnúajárn við Sunnubúð VEISTU SVARIÐ? STJÓRNMÁL Málefnavinnu er að mestu lokið í viðræðum Sig- mundar Davíðs Gunnlaugs sonar, formanns Framsóknarflokks- ins, og Bjarna Benedikts- s o n a r, for - manns Sjálfstæðis- flokksins. Síð- ustu tvo daga hafa þeir farið yfir reynsluna af sameiningu ráðuneyta. Heimildir Fréttablaðsins herma að ráðherrum verði fjölgað um tvo og verkefnum ráðuneyta skipt upp á ný. Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðar maður Sigmundar Davíðs, segir að á þriðjudag hafi viðræð- urnar að mestu snúist um reynsl- una af sameiningu ráðuneyta og því hafi verið haldið áfram í gær. Verið sé að skoða hvað sé fýsilegt varðandi uppskiptingu verkefna og fjölgun ráðherra. „Það er verið að skoða hvort það sé skynsamlegt og hvernig verk- efnin hafa unnist eftir samein- inguna. Verið er að skoða reynsl- una í þessum stóru ráðuneytum sem hafa verið sameinuð.“ Ekki hefur verið tekin ákvörðun um uppskiptingu, en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er nán- ast öruggt að verkefnum velferð- arráðuneytisins verði skipt á milli tveggja ráðherra. Þá yrði heil- brigðisráðherra og ráðherra ann- arra málefna, hver svo sem titill hans verður, innan sama ráðu- neytisins. Atvinnuvegaráðuneytið er hitt stóra ráðuneytið sem verið er að skoða, þegar kemur að fjölgun ráðherra, en einnig innanríkis- ráðuneytið. Jóhannes segir að ekki sé byrj- að að ræða skiptingu ráðuneyta á milli flokka. Formennirnir hafa kallað til sín embættismenn og fengið upp- lýsingar um stöðu mála. Tvenn- um sögum fer af því hvort þeir hafa þegar rætt við einhverja úr atvinnulífinu, en það mun vera á dagskrá. kolbeinn@frettabladid.is Skipting ráðuneyta eftir en málefnin frá Formenn Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks fara nú yfir reynsluna af sameiningu ráðuneyta. Nánast öruggt að verkefnum tveggja verður skipt upp og ráðherrum fjölgað. Málefnavinnu er lokið. Formennirnir halda spilunum mjög þétt að sér. GENGUR VEL Sigmundur og Bjarni voru ánægðir við upphaf viðræðnanna. Líklegast er að þeim ljúki um eða eftir helgi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM JÓHANNES ÞÓR SKÚLASON Þegar náðst hefur saman um stjórnarsáttmála þurfa formennirnir að velja ráðherra. Venjan hefur verið sú að formaður ræði við alla þingmenn síns flokks áður en valið er. Valdið er þó hans. Flokksstofnanir þurfa síðan að samþykkja stjórnarsamstarfið, byggt á fyrirliggjandi stjórnarsáttmála. Í tilviki Framsóknarflokks er það miðstjórnin sem hefur valdið en flokksráð í tilfelli Sjálfstæðisflokks. Eftirtektarvert er að varaformenn flokkanna hafa ekki verið með í viðræðunum hingað til. Formennirnir tveir halda spilunum þétt að sér, þó að þeir hafi kallað sérfræðinga til sín. Ekki er búist við því að flokks- stofnunum verði kynntur sáttmálinn fyrr en um eða eftir helgi. Miðstjórn og flokksráð ráða www.jonogoskar.is Sími 5524910 Laugavegi 61 Kringlan Smáralind Útskriftarstjarnan er komin. Glæsileg útskriftargjöf. Okkar hönnun og smíði Cross hybrid 6, 2 89.995 kr. Herra og dömustell 24 gírar Dempari að framan Dempun í sæti 1. Hrotur hvers munu hljóma í hljóð- skúlptúr eftir Finnboga Pétursson myndlistarmann á laugardag? 2. Hversu mörg eintök af bókum sínum hefur Arnaldur Indriðason selt í Frakklandi? 3. Hvað átti fjórða mynd Sveppa, Sverr- is Þórs Sverrissonar, að heita sem ekki hlaut styrk frá Kvikmyndasjóði Íslands? SVÖR 1. Jóns Gnarr. 2. Tvær milljónir. 3. Al- gjör Sveppi og Gói bjarga málunum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.