Fréttablaðið - 16.05.2013, Blaðsíða 42
Eurovision FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 20132
KYNNING − AUGLÝSING
Það má svo sannarlega segja að kexið frá Frón komið við sögu Íslendinga á hverjum degi. Árið
1926 var fyrir tækið stofnað
árið 1926 og
er fyrir löngu
orðið heimilis-
vinur íslenskra
fjölskyldna.
Undanfarin ár
hefur fyrirtæk-
ið staðið f yrir
m i k i l l v ör u-
þróun og er ein
a f u r ð he n n-
a r O s t a k e x-
ið sem kom ný-
lega á markað.
Ostakexið hefur sleg-
ið algjörlega í gegn að sögn
Jóhannesar Baldurssonar, fram-
leiðslustjóra Fróns, og fæst núna
í tveimur bragðtegundum, með
chili- og hvítlauksbragði. „Við
hjá Fróni erum miklir áhugamenn
um Eurovision enda maula landsmenn
mikið af kexi frá okkur í Eurovision-
partíum. Ostakexið okkar hentar þar
frábærlega vel enda hægt að nýta á fjöl-
breyttan hátt með ýmsu áleggi. Ég læt
hér fylgja nokkrar einfaldar uppástung-
ur en möguleikarnir eru endalausir og
takmarkast í raun bara við smekk hvers
og eins. Þetta skýrir sig nokkurn veginn
sjálft. Ef það eru ostar, pestó eða sýrð-
ur rjómi fer hráefnið beint á kexið og
svo annað álegg þar ofan á. Fólk getur
notað báðar tegundirnar af kexinu að
vild.“ Tillögur Jóhannesar má sjá í box-
inu hér til hliðar.
Frón heldur úti lauf léttum
Eurovision-leik á Facebook-síðu
sinni, bæði fyrir undankeppn-
ina og aðalkeppnina. „Við ætlum
að gefa veglega gjafakörfu sem er
hlaðin Ostakexinu
ok kar, sult-
u m, ost u m
o g ý m s u
fleira góðgæti
sem er alveg
dæmigert nasl
í góðu partíi.
Það er hægt
að taka þátt
á Fac ebook
og þeir sem
verða dregn-
ir úr í undan-
keppninni fá
þá ostakörfu í
tæka tíð fyrir
aðalkeppnina sem
er náttúrulega snilld. Ég hvet alla til að
taka þátt í leiknum.“
Hann bendir einnig á vef fyrirtækis-
ins, www.fronkex.is, þar sem finna má
ýmsan skemmtilegan fróðleik og upp-
skriftir. „Þar má finna mikið af upp-
skriftum, til dæmis hvernig hægt er
að búa til gómsætan ostakökubotn úr
hafrakexinu okkar.“
Ekta Eurovision-partí með Ostakexi
Kexin frá Frón eru fyrir löngu orðin heimilisvinur íslenskra fjölskyldna. Nýlega setti fyrirtækið á markað Ostakex sem hentar
sérstaklega vel sem létt snakk. Hægt er að setja mikið úrval af áleggi ofan á það.
Jóhannes Baldursson, framleiðslustjóri Fróns, heldur hér á ljúffengum bakka með ostakexi. MYND/GVA
1. Mygluostur og pepperóní
2. Rjómaostur, graflax og sítrónupipar
3. Kastali, St. Dalfour-sulta að eigin vali
og vínber
4. Tómatar, laukur, basilíka, ólífuolía og
parmesanostur
5. Sýrður rjómi 18% og rækjur sem eru
marineraðar í tamarísósu
6. Súkkulaði, þeyttur rjómi og jarðarber.
Passar vel með Chili Ostakexinu
7. Ora rautt pestó og kjúklingaskinka
8. Mascarpone, parmaskinka og ólífur
Tillögur að áleggi
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512-5432 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Fimmtudagurinn 16. maí í lífi Eyþórs Inga
Eurovision-stjörnu í Malmö, Svíþjóð
● Ég fer á fætur upp úr níu til að ná morg-
unmatnum á hótelinu. Eftir morgun-
mat fer ég yfir dagskrá dagsins með Valla
umboðsmanni og því næst upp á her-
bergi til að gera mig kláran fyrir daginn
og myndatökur.
● Dagurinn í dag verður frábrugðinn þeim
sem á undan eru gengnir og fá ef nokkur
viðtöl sem annars hafa verið stanslaust frá
klukkan 11 til 14. Eftir viðtölin hefur mér
þótt gott að nærast og melta hvað ég var
að segja.
● Í gær voru tvær generalprufur með áhorf-
endum og dómnefndin notaði seinni um-
ferðina til að gefa sínar einkunnir. Í dag
verða einnig tvær generalprufur með
áhorfendum og svo seinni undanúrslit í
kvöld. Dagurinn fer því meira og minna í
æfingar á sviði, bið, hvíld og enn meiri æf-
ingar og bið, inn og út af sviðinu.
● Hvíld og kvöldmatur verður frá klukkan
17.15 til 19.45, að sænskum tíma. Þá þykir
mér gott að leggjast út af með heyrnartól,
hlusta á tónlist og einhverja aðra en sjálf-
an mig.
● Klukkan 21 að sænskum tíma hefst
söngvakeppnin í Malmö Arena og ég verð
áttundi í röðinni á svið. Eftir flutninginn
förum við í Græna herbergið til að bíða
og sjá hvort Ísland verði eitt af tíu löndum
sem komast áfram í aðalkeppnina á laug-
ardag. Ef Ég á líf kemst áfram verður lagið
tekið í Euro-klúbbnum á eftir en svo fer ég
í háttinn, rotaður eftir daginn.
Stór dagur í lífi Eyþórs og þjóðar
Í kvöld kemur í ljós hvort Eyþór Ingi syngur sig inn í hjörtu Evrópubúa og áfram í aðalkeppnina á laugardag með hjartnæmu
framlagi Íslands í Malmö. Að baki eru skemmtilegir dagar, þrotlausar æfingar og dagskrá en dagurinn í dag verður öðruvísi.
Eyþór Ingi að syngja Ég á líf í gleðskap Norðurlandanna í Malmö. MYNDIR/VALGEIR MAGNÚSSON
„Ég hef talsverða trú á því að Ísland komist áfram,
miðað við viðbrögðin hér og sölu lagsins á iTunes,“
segir Valgeir Magnússon, umboðsmaður Eyþórs Inga.
„Við erum nú í mun líklegri stöðu en áður þegar veð-
bankar og íslenskir fjölmiðlar voru neikvæðir. Það
hefur nú breyst og í augnablikinu finnum við meðbyr,“
segir Valgeir sem fylgir Eyþóri Inga hvert fótmál í
Malmö.
„Eyþór Ingi vekur hvarvetna athygli enda heimsklassa-
söngvari og raddlega séð einn af sterkustu keppend-
um söngvakeppninnar. Útlitslega er hann auðþekkjan-
legur og fólk tengir sig hratt við hann því margir kepp-
enda líta eins út. Eyþór Ingi er einstakur og hefur sitt
eigið vörumerki og kvenfólk fær í hnén þegar það sér
hann. Þá er lagið með mjög grípandi melódíu, Eyþór
Ingi syngur það vel og allt leggst þetta á eitt.“
Valgeir segir að á tímabili hafi verið í tísku meðal Ís-
lendinga að segja íslenska lagið leiðinlegt.
„Það hefur snúist hjá ansi mörgum og meira að segja
hörðustu andstæðingum. Ef það gengur svo ekki vel
í kvöld munu þeir eftir sem áður segja: „Já, hvað sagði
ég ekki.““
Að sögn Valgeirs mun Eyþór Ingi undirbúa sig í góðu
næði áður en hann stígur á svið frammi fyrir Evrópu
og löndum sínum heima.
„Þá fer Eyþór Ingi inn í sjálfan sig eins og flestir
listamenn gera; þeir verða eins og dofnir því líkami og
hugur undirbýr átökin. Þetta eru líffræðileg viðbrögð
þegar líkaminn lokar sig inni og hugurinn til að hugsa
um aðeins eitt en eftir það mun stjarna hans skína.“
Eyþór Ingi og Valgeir Magnússon umboðsmaður, honum á vinstri hönd, á blaðamannafundi.
Fjölmiðlar ytra hafa sýnt Eyþóri Inga mikinn áhuga í Malmö.
KVENFÓLK FÆR Í HNÉN