Fréttablaðið - 16.05.2013, Qupperneq 10
16. maí 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Erum með frábær eintök
af bílum í öllum stærðum og gerðum.
Kletthálsi 11 og Breiðhöfða -110 Reykjavík
Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is
www.bilaland.is
www.facebook.com/bilaland.is
NISSAN X-TRAIL SE
Nýskr. 01/11, ekinn 67 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 4.690 þús.
VW POLO COMFORTLINE
Nýskr. 05/11, ekinn 24 þús. km,
bensín, beinskiptur.
VERÐ kr. 2.080 þús.
SUBARU LEGACY WAGON
Nýskr. 01/12, ekinn 25 þús. km,
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 4.480 þús.
PEUGEOT 208
Nýskr. 11/12, ekinn 8 þús. km,
bensín, beinskiptur.
VERÐ kr. 2.690 þús.
HYUNDAI i10
Nýskr. 05/11, ekinn 24 þús. km,
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 1.550 þús.
NISSAN QASHQAI+2 SE
Nýskr. 07/12, ekinn 5 þús. km,
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 5.190 þús.
KIA CEED EX
Nýskr. 12/12, ekinn 2 þús. km,
dísil, sjálfskiptur. VERÐ kr. 4.580 þús.
Rnr. 280524
Rnr. 151926
Rnr. 170330
Rnr. 200914
Rnr. 130544
Rnr. 120180
Rnr. 280549
VIÐ EIGUM BÍLINN HANDA ÞÉR!
MENNTUN „Þetta hefur verið
alveg frábært, og það er svo
gaman að sjá hvað krakkarnir
taka vel í þetta,“ segir Áslaug
Traustadóttir, kennari í Rima-
skóla. Gleðin var við völd á upp-
skeruhátíð skólans sem haldin
var í Gufunesbæ í Grafarvogi í
gær.
Lífsstíl sem valgrein í Rima-
skóla er skipt í fjóra hluta sem
eru næringarfræði, svefnvenj-
ur og slökun, heilsumatreiðsla
og hreyfing. Áslaug er annar
umsjónarmaður átaksins og
segir það hafa gefið góða raun.
Á uppskeruhátíðinni kenndi
ýmissa grasa, meðal annars fór
fram klifurkennsla í turni, FOLF,
íslenska frisbígolffélagið leið-
beindi nemendum í frisbígolfi og
taekwondo-deild ÍR sýndi bar-
dagalistir og braut spýtur.
Námskeiðinu er ætlað að
stemma stigu við síversnandi
heilsu íslenskra ungmenna.
Umræða um heilsufar og líkams-
ástand íslenskra ungmenna hefur
verið áberandi undanfarin ár. Æ
fleiri eiga við heilsufarsvanda að
stríða og yfirþyngd íslensku þjóð-
arinnar mælist vaxandi, ekki ein-
göngu meðal ungmenna.
Nemendur fá að spreyta sig á
eldamennsku eftir uppskrifta-
bók sem umsjónarmenn hafa
útbúið með heilsusamlegum
réttum. Þeir fá líka að prófa sem
flestar íþróttagreinar, nokkuð
sem vakti mikla lukku og flest-
ir fundu eitthvað við sitt hæfi.
„Það kom fljótlega í ljós að mörg
barnanna höfðu aldrei haft tæki-
færi til að prófa þessar íþróttir
og finna þannig hreyfingu við sitt
hæfi,“ segir Áslaug og bætir við
að íþróttaiðkun barna sé kostnað-
arsöm og því ekki hægt um vik
fyrir barna fjölskyldur að prófa
sig áfram þar til rétt íþróttagrein
eða form hreyfingar sé fundin
fyrir börnin.
„Það var einnig gaman að sjá
hvað nemendurnir voru áhuga-
samir um djúpslökun og svefn-
venjur, en þessi hugmynd okkar
Eyrúnar Ragnarsdóttur spratt út
frá því hversu algengt brottfall
úr íþróttum er meðal unglinga.“
Þetta segir Áslaug meðal annars
stafa af því að margir unglingar
Börnin áhugasöm
um slökun og svefn
Efri bekkjum Rimaskóla er kennt að tileinka sér heilbrigðan lífsstíl. Uppskeruhátíð
lífsstílshópa var í gær. Umsjónarmenn námskeiðsins eru hæstánægðir með árangur-
inn og telja hann mikilvægan lið í því að stuðla að almennu heilbrigði á Íslandi.
HÁTT UPPI Markmið kennslunnar er að allir nemendur finni hreyfingu sem hentar hverjum og einum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Hráefni
250 grömm döðlur
¾ dl kalt vatn
4 dl kókosmjöl
3 tsk. kakó
110 grömm af smjöri
við stofuhita
4 dl haframjöl
Aðferð
Setjið döðlur og
vatn í pott og látið
suðuna koma upp.
Látið malla við vægan
hita þar til vatnið er
næstum allt gufað
upp. Setjið döðlurnar
í matvinnsluvél og
maukið þær vel. Setjið
maukið í skál og látið
mesta hitann rjúka
úr því. Blandið hinu
hráefninu saman
við döðlumaukið og
hnoðið vel saman.
Búið til fallegar litlar
kúlur og veltið upp úr
kókosmjöli. Geymið í
vel lokuðu boxi í kæli.
Geymist í um það bil
mánuð.
UPPSKRIFT KÓKOS- OG DÖÐLUKONFEKTKÚLUR
séu í tölvum langt fram á nætur.
„Með því að segja þeim hvaða
áhrif ónægur svefn og hvíld hafa
vonum við að þau tileinki sér
heilbrigðari svefnvenjur.“
Umsjónarmenn átaksins, þær
Áslaug og Eyrún, hafa útbúið
námsbók, kennsluáætlun, ítar-
efni, uppskriftir og vinnubækur
fyrir nemendur og vona þær að
með því að vekja athygli á þessu
muni fleiri grunnskólar fylgja á
eftir. Átakið er styrkt af Land-
læknisembættinu. olof@frettabladid.is
GRJÓTHARÐIR Taekwondo-deild ÍR sýndi spýtubrot með handafli.
LIÐUG Dans-fitness vakti mikla lukku meðal þessara krakka.