Fréttablaðið - 16.05.2013, Blaðsíða 80

Fréttablaðið - 16.05.2013, Blaðsíða 80
16. maí 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 60 Fáðu þér áskrift | 512 5100 | stod2.is FH–ÍBV Í KVÖLD PEPSI-DEILDIN HEFUR ALDREI VERIÐ STERKARI Íslandsmeistarar FH taka á móti Hermanni Hreiðarssyni og félögum í kvöld í Kaplakrika. Bæði liðin hafa byrjað mótið af krafti og ætla að vera með í toppbaráttunni í sumar. Fylgstu með í leiftrandi háskerpu! FYLGSTU MEÐ Á STÖÐ 2 SPORT Í kvöld kl. 19:45 FH–ÍBV Í kvöld kl. 22:00 Pepsi-mörkin F ÍT O N / S ÍA F I0 14 8 8 1 FÓTBOLTI Að loknum fyrstu tveimur umferðunum í Pepsi-deild karla eru báðir nýliðar deildarinnar enn án stiga. Er það í fyrsta sinn sem það gerist í hálfa öld, eða síðan Keflavík var í sömu stöðu árið 1963. Keflvíkingar voru þá einu nýliðarnir í efstu deild það árið. Þór frá Akureyri og Víkingur frá Ólafsvík komu bæði upp úr 1. deildinni í fyrra og óskuðu sér sjálfsagt betri byrjunar. Sér í lagi Ólsarar, sem eru nú í efstu deild í fyrsta sinn. Sungu enn þrátt fyrir tap „Það er auðvitað stefna að vinna okkar fyrsta stig í leiknum gegn Keflavík á morgun [í kvöld]. Sérstaklega þar sem við erum að spila á heimavelli,“ sagði Guðmundur Steinn Hafsteinsson, fyrirliði Víkings. „En við erum samt ekki farnir að örvænta enn og langt í frá. Fáir leikmenn okkar hafa spilað í efstu deild áður og við erum rólegir enn,“ segir hann og er ánægður með stuðninginn sem liðið hefur fengið. „Menn voru enn að kalla og syngja eftir síðasta leik þrátt fyrir tapið og okkur strákunum þótti vænt um það.“ Guðmundur Steinn segir líklegast að það hafi verið smá skrekkur í leikmönnum í fyrstu leikjum tímabilsins. „Við spiluðum alls ekki nógu vel í þessum leikjum, sérstaklega í upphafi leikjanna. Við getum enn bætt okkur á fjölmörgum sviðum.“ Ingi Freyr Hilmarsson, leikmaður Þórs, missir af leik liðsins gegn KR á morgun vegna meiðsla en hann segir engan bilbug á sínum mönnum. 8-0 tap í síðasta leik gegn KR „Við spiluðum við FH og Breiðablik í fyrstu tveimur umferðunum og mætum KR-ingum núna. Þetta eru allt alvöru lið,“ segir Ingi Freyr en Þórsarar eiga þar að auki slæmar minningar frá leik liðsins gegn KR á undirbúningstímabilinu. „Þá töpuðum við 8-0,“ segir hann en Þór hefur fengið á sig sjö mörk í fyrstu tveimur leikjum tímabilsins. „Varnarlínan hefur vissu- lega verið viðkvæm en hún á eftir að spila sig betur saman. Þetta er auðvitað allt of mikið en þegar hún nær sér á strik þá getum við hugsan- lega gert eitthvað í deildinni.“ Ingi Freyr tognaði aftan í læri í leik liðsins gegn FH í síðustu umferð og fór af velli eftir aðeins fimm mínútur. „Ég verð frá í um þrjár vikur. Það er auðvitað svekkjandi að missa úr leiki en það verður að hafa það.“ Hann segir góða stemningu í herbúðum félagsins þrátt fyrir slæma byrjun. „Það er ekkert stress í okkur. Við erum með mikið breytt lið frá því að við vorum síðast í efstu deild og við ætlum okkur auðvitað að gera betur en í síðustu leikjum.“ Þess má geta að lið Keflavíkur, sem var einnig stigalaust eftir fyrstu tvær umferðir Íslandsmótsins fyrir hálfri öld, hélt sér samt í deildinni og gerði sér lítið fyrir og varð Íslandsmeistari næsta ár á eftir. - esá, óój Versta byrjun nýliða í 50 ár Nýliðar Þórs og Víkings frá Ólafsvík eru enn stigalausir að loknum fyrstu tveimur umferðunum í Pepsi-deild karla en það er í fyrsta sinn síðan 1963 sem það gerist í efstu deild. Þriðja umferðin fer öll fram í kvöld. Stig nýliða í efstu deild karla að loknum tveimur umferðum efstu deildar karla í knatt- spyrnu frá árinu 1963: 0 stig 2013 (Þór Ak. 0 og Víkingur Ó. 0) 0 stig 1963 (Keflavík 0) 1 stig 1994 (Breiðablik 0 og Stjarnan 1) 1 stig 1982 (Keflavík 0 og ÍBÍ 1) 1 stig 1976 (Breiðablik 1 og Þróttur 0) 1 stig 1974 (Víkingur 1) 1 stig 1973 (ÍBA 1) 1 stig 1972 (Víkingur 1) Fæst stiga nýliða í fyrstu tveimur umferðunum ÓHRÆDDIR Guðmundur Steinn og Ingi Freyr í leik með liðum sínum í upphafi tímabilsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI/VILHELM ➜ ➜ FÓTBOLTI Valsmenn eru með sex stig (fullt hús) í Pepsi-deild karla og það þrátt fyrir að hafa einir liða í deildinni ekki spilað heimaleik í fyrstu tveimur umferðunum. Þetta er þriðja sumarið í röð þar sem Valsmenn eru með fullt hús á þessum tíma en í hin tvö skiptin hefur liðið ekki náð að fylgja þessum sigrum eftir og tapað leikjum sínum í 3. og 4. umferð. Nú er að sjá hvort Valsmenn nái að brjótast út úr þessari hefð þegar þeir fá Framara í heimsókn á Vodafone- völlinn klukkan 19.15 í kvöld. Valsmenn töpuðu 0-1 á heimavelli á móti Val í 3. umferð 2011 og 0-1 á útivelli á móti Breiðablik í 3. umferð 2012. Þetta er í fyrsta sinn síðan 1995 sem Valsmenn fá ekki heimaleik í fyrstu tveimur umferðunum en mikill munur er á árangri liðsins nú miðað við fyrir átján árum. Þá var Valur með ekkert stig og markatöluna 2-10 eftir þessa tvo leiki en nú eru stigin sex og markatalan 5-2. - óój Breytir Valur hefðinni? HAUKUR PÁLL SIGURÐSSON Búinn að skora í tveimur fyrstu leikjum Vals í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.