Fréttablaðið - 16.05.2013, Síða 44
Eurovision FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 20134
„Ég man fyrst eftir mér horfa á
keppnina heima hjá vinkonu
minni á Hólmavík árið 1984.
Hún á stóran systkinahóp og þar
á meðal eldri systur sem var þá
með kassettutæki fyrir framan
sjónvarpið að taka keppnina upp.
Þetta var árið sem Svíþjóð fór með
sigur af hólmi með laginu Digg-
elo Diggeley og við sem sátum í
sófanum máttum ekki segja orð
á meðan á keppninni stóð. Eftir
þetta tók ég keppnirnar alltaf upp
á myndband og horfði á þær aftur
og aftur.“
Gunnhildur segir að margir
hafi farið leynt með Eurovision-
áhuga sinn á þessum árum og
gert grín að hennar. „Þetta finnst
mér hafa breyst síðustu ár og hafa
f lestir orðið einhvern áhuga á
keppninni og vita heilmikið um
hana.“ En hvað er það sem heillar
þig svona við þessa keppni? „Það
er stemningin, tískustraumarn-
ir, ólík tungumál og menning sem
við fáum smjörþefinn af í gegnum
keppnina.“
En hefur þú skapað þér ein-
hverjar hefðir í kringum keppn-
ina? „Áður fyrr fór ég í partí en
hin síðari ár hef ég verið að byggja
upp Eurovision-hefðir heima
með börnunum og er að sjálf-
sögðu búin að ala þau upp í mikl-
um Eruovision-anda. Við veljum
okkar uppáhaldslög og höfum
eitthvað gott að maula.“
En hvaða lag er í uppáhaldi í ár?
„Það er án efa sænska lagið. Mér
finnst söngvarinn Robin Stjern-
berg flottur og laglínan grípandi.“
Gunnhildur segist þó ekki endi-
lega halda með Norðurlandaþjóð-
unum. „Ég kíki alltaf eftir Aser-
baídsjan og Rúmeníu sem eru
yfirleitt með mjög góð lög, þótt
svo sé reyndar ekki í ár. Þá fylgist
ég alltaf með baltnesku löndun-
um, sem duttu út í fyrri forkeppn-
inni á þriðjudag. Eins finnst mér
fyrrverandi austantjaldsþjóðirn-
ar yfirleitt gera mjög vel. Núna
finnst mér úkraínska lagið virki-
lega fallegt og Hvít-Rússar hafa
aldrei sent betra lag í keppnina.
Þvílíkt Euro-stuð.“ Gunnhildur
viðurkennir þó að hún hafi oftast
mjög gaman af Svíunum. „Þeir
taka þetta náttúrulega alla leið.
Ég er hins vegar ekki jafn hrifin
af Dönunum og margir Íslending-
ar og lagið í ár höfðar ekki til mín.
Því er spáð góðu gengi en ég verð
illa svikin ef það vinnur. Mætti
ég þá frekar biðja um Anouk frá
Hollandi eða Bonnie frá Bretland.
Það væri frábært fyrir keppnina.“
En hvað með íslenska lagið?
„Ég hef trú á því að það komist
áfram. Ég er viss um að það verði
vel sungið hjá Eyþóri. Við kusum
lagið og eigum að vera stolt af því
og fylgja því alla leið. Eins hefur
verið komið til móts við f lest-
ar óskir okkar. Margir vildu sjá
Eyþór fara upp á hærri tóna og
var laginu breytt til samræmis
við það. Þá var bakröddum, sem
ekki voru hluti af atriðinu í upp-
hafi, bætt við. Ef marka má æfing-
arnar sem ég hef horft á á netinu
þá lítur atriðið bara mjög vel út.“
Eigum að fylgja
laginu alla leið
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans, er yfirlýst
Eurovision-nörd og lengi vel tók hún allar keppnirnar upp á spólu. Í ár heldur
hún mest upp á sænska lagið og hefur mikla trú á því að Eyþór komist áfram.
Gunnhildur elur börn sín upp í miklum Eurovision-anda. MYND/VALLI
Ýmislegt getur komið upp á í jafn stórri og fjölmennri keppni
og Eurovision er. Í raun er ótrúlegt að mistökin séu ekki fleiri en
þau reynast vera. Hér fyrir neðan er að finna nokkrar skondnar
uppákomur úr sögu keppninnar.
PILSIÐ BURT
Eurovision 1985
Sænski kynnirinn Lill Lindfors vakti
óskipta athygli áhorfenda þegar hún
steig á pilsið sitt á leið upp á sviðið
og hún stóð eftir á nærklæðunum.
Eftir augnabliks hik kom í ljós að
um grín var að ræða og annar kjóll
leyndist undir bolnum. Þegar Lill
kom að hljóðnemanum sagði hún
glaðlega að hún hefði með þessu
ætlað að vekja áhorfendur.
GLEYPTI FJÖÐUR
Eurovision 2012
Sænska söngkonan Loreen sigraði í keppninni
í fyrra. Atriði hennar tókst fullkomlega á aðal-
kvöldinu en ekki jafn vel á generalprufunni
kvöldið áður. Í miðju lagi þeyttust fjaðrir
um söngkonuna og ekki vildi betur til en
að ein þeirra flaug upp í Loreen sem varð
að hósta henni upp áður en hún gat sungið
almennilega á ný. Þó að þessi uppákoma hafi
ekki komið í veg fyrir sigur hennar hefði hún
vel getað gert það enda dæma dómnefndir
allra landa út frá generalprufunni.
ÞÖGN Á SVIÐI
Eurovision 2012
Elena, söngkona hljómsveitarinnar Mandinga frá Rúmeníu, gleymdi
textanum í lagi sínu og þagnaði í eina til tvær sekúndur á sviðinu.
GEGNUM GLERIÐ
Eurovision 2011
Í upphafi á atriði Svíþjóðar þetta árið
stóð Eric Saade í glerkassa. Hluti af
atriðinu fólst í því að Eric braut glerið
og kom út úr kassanum. Á general-
prufunni mistókst þessi íburðarmikla
sýning og Saade varð að opna dyrnar á
búrinu hæversklega til að komast út.
VANDRÆÐALEGT!
DATT Á BOSSANN
Eurovision 1999
Dana International frá Ísrael var
sigurvegari keppninnar árið 1998.
Ári síðar var hún
mætt á ný til
að
koma fram og til að
afhenda nýjum sigur-
vegara verðlaunin.
Þegar Charlotte
Nilsson frá Svíþjóð
kom á sviðið greip
Dana verðlaunagrip-
inn sem var óvenju
fyrirferðarmikill það
árið. Ekki vildi betur
til en svo að fætur
Dönu létu undan
og hún pompaði á
bossann.
FRAKKAVANDI
Eurovision 2009
Hjartaknúsarinn rússneski Dima
Bilan varð í öðru sæti í Eurovision
2006 en mætti á ný tveimur árum
síðar og sigraði. Ári síðar kom hann
fram í keppninni, nú sem skemmti-
atriði. Mikið var í lagt. Bilan sveif á
línu yfir salinn og lenti á sviðinu þar
sem hann reif sig úr frakkanum og
kastaði frá sér. Frakkinn flæktist í
línunni sem enn stóð aftan úr Bilán.
Söngvarinn var lengi vel að kljást
við frakkaófétið sem ekki vildi fara.
Það tókst þó að lokum.
ÓVELKOMINN GESTUR
Eurovision 2010
Jaume Marquet Cot eða Jimmy
Jump, olli nokkrum usla í keppn-
inni þegar hann stökk á svið
meðan Spánn var að flytja sitt
atriði. Hann skók sig allan með
hljómsveitinni en stökk af sviði
áður en öryggisverðir náðu til hans.
Þó að fæstir áhorfendur yrðu hans
varir fengu Spánverjarnir að flytja
atriði sitt á ný í lok keppninnar.
P I
P A
R
\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
31
12
1
Nú eR djæf gæðaíSinn KominN í nýJar uMbúðIr. hvEr er þInn uPpáHalds Djæf?
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
31
12
1