Fréttablaðið - 16.05.2013, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 16.05.2013, Blaðsíða 24
16. maí 2013 FIMMTUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 Þórey Vilhjálmsdóttir, framkvæmda- stjóri borgarstjórnarflokks Sjálfstæðis- flokksins, skrifar drengilega grein í Fréttablaðið þar sem hún rekur jákvæð- ar einkunnir sem borgarstjórn fær í nýrri úttektarskýrslu um stjórnsýslu Reykjavíkurborgar. Það er rétt og mikils vert. Til viðbótar þeim dæmum sem Þórey nefnir þótti mér sérstak- lega vænt um tvennt. Annars vegar dregur nefndin fram að kostnaður við miðlæga stjórnsýslu, öðru nafni ráð- húsið, hefur lækkað ár frá ári síðan 2008, úr um tveimur milljörðum í um 1,6 milljarða, eða um hálfan milljarð króna. Þetta hefur verið aðalsmerki núverandi meirihluta. Að standa vörð um grunn- þjónustuna en spara í yfirstjórn. Í öðru lagi er ein meginniðurstaða úttektarnefndarinnar að borgarráð hafi „sinnt vel því hlutverki sem snýr að fjár- málum og framkvæmd fjárhagsáætlunar innan ársins, einkum á seinni hluta þess tímabils sem til skoðunar er“. Þetta er mjög mikilvæg niðurstaða. Stærstu og mikilvægustu verkefnin á sviði fjármála- stjórnar hafa verið björgunar aðgerðir vegna alvarlegrar stöðu Orku veitunnar og það risaverkefni að tryggja góða og örugga þjónustu við borgarbúa þrátt fyrir minni tekjur en áður. Hversu mikið minni eru tekjurnar? Skatttekjur borgar- innar 2012 voru tæplega 7 milljörðum lægri að raunvirði en borgin naut árið 2008. Það eru 9%. Alls eru útgjöld borg- arinnar um 9,3 milljörðum lægri (13%) að raunvirði á síðasta ári en árið 2008. Fyrir mismuninum hefur þurft að spara. Ýmsu fleiru er hrósað en annað í niðurstöðum úttektarnefndarinnar er ekki eins jákvætt. Í skýrslunni er fjöldi ábendinga um atriði sem betur mega fara og þarf nú að ræða skipulega og nýta til umbóta. Til þess var líka ráðist í úttektina. Við þurfum að bæta um betur í skipulagsmálum, utanumhaldi um fyrir- tæki borgarinnar og eftirfylgni í stjórn- sýslunni, svo nokkuð sé nefnt. Líkt og fram kemur í úttektinni hrundi traust á borgarstjórn á síðasta kjörtímabili. Stóra verkefni borgarstjórnar er því ekki eitt- hvað eitt, heldur nákvæmlega það, að endurvinna traust og trúnað við borgar- búa. Borgarstjórn hrósað STJÓRNSÝSLA Dagur B. Eggertsson formaður borgarráðs ➜ Stóra verkefni borgarstjórnar er því ekki eitthvað eitt, heldur nákvæmlega það, að endurvinna traust og trúnað við borgarbúa. Halla Hrund Pétursdóttir, landslagsarkitekt FILA, hjálpar þér við að skipuleggja draumagarðinn þinn. Hringhellu 2 221 Hafnarfjörður Hrísmýri 8 800 Selfoss Malarhöfða 10 110 Reykjavík Berghólabraut 9 230 Reykjanesbær Sími 4 400 400 www.steypustodin.is Hafðu samband og láttu sérfræðinga okkar aðstoða þig við að finna réttu lausnina. T alið er að tólf hundruð íslenskar konur beri með sér BRCA 2 genastökkbreytingu eins og Angelina Jolie. Hún komst í heimsfréttirnar í fyrradag þegar hún sagði frá því að hún hefði látið fjarlægja bæði brjóst sín. Með því minnkaði hún líkurnar á að hún fengi brjóstakrabbamein úr 87 prósentum í fimm. Í Fréttablaðinu í dag segir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, um sjö þúsund Íslendinga bera með sér stökkbreytt krabbameinsgen sem auki líkurnar á krabbameini um 80 prósent. Upplýsingar um hverjir þessir einstaklingar eru liggja í dulkóðuðum gagnagrunni fyrir- tækisins. Kári segir miður að hann hafi enga heimild til að veita fólki þessar upplýsingar. Hann hefur gengið á milli ráðamanna og stungið upp á lausnum svo að almenningur geti fengið aðgang að upplýsingunum en honum hefur verið tekið fálega. „Það er ekki fyrr en einhver snoppufríð og fræg leikkona úti í heimi kemur fram, þá er allt í einu hægt að fá fólk til að ræða þetta,“ segir Kári. Í október í fyrra birti Frétta- blaðið viðtal við Valdísi Kon- ráðsdóttur, sem fór í svipaða aðgerð og leikkonan fræga. Valdís sá ekki eftir að taka málin í sínar hendur eftir að blóðprufa sýndi að hún bæri stökkbreytt gen. Móðir hennar hafði þá fengið brjóstakrabbamein tvisvar sinnum. Við ættum öll að hafa rétt á að vita hvort við berum stökk- breytt krabbameinsgen eða ekki. Í dag er ekki hægt að hringja í Íslenska erfðagreiningu og óska eftir þessum upp- lýsingum úr gagnagrunninum þeirra. Þar er vísað á Land- spítalann og þar var brjálað að gera í gær að sögn Vigdísar Stefánsdóttur hjá erfðaráðgjöf spítalans. Þar er hægt að fá ráðgjöf og komast í erfðarannsóknir en starfsmennirnir hafa ekki aðgang að gagnagrunni Íslenskrar erfðagreiningar. Hér er á ferðinni einstakt tækifæri til að bjarga fjölmörg- um mannslífum. Við ættum að hafa rétt á að vita hvað gæti verið í vændum. Kári Stefánsson segir að við þurfum einungis að ýta á einn takka og þá eru upplýsingarnar aðgengilegar. Fyrir þremur árum komst hópur á vegum Landlæknis að þeirri niðurstöðu að ekki væru forsendur til að senda fólki bréf með upplýsingum um líkur á krabbameini. Geir Gunnlaugs son landlæknir segir samt að þar á bæ sé fólk opið fyrir því að skoða hvernig hægt væri að bjóða einstaklingum upp á þessa vitneskju. Hér er um að ræða flókið álitamál og umdeilt meðal þjóðar- innar. Mikið var deilt um gagnagrunn Íslenskrar erfðagrein- ingar á sínum tíma. Það verður samt erfitt að réttlæta það út frá persónuverndarsjónarmiðum að fólk fái ekki að vita hvort það beri með sér banvænt krabbameinsgen eða ekki. Við megum ekki sætta okkur við að fá í sífellu staðlað svar kerfisins: „The computer says no.“ Það er kominn tími á já. Sjö þúsund með banvænt krabbameinsgen: Staðlað svar: „The computer says no“ Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Ofstæki eða frekja? Brynjar Níelsson er umdeildur maður, eins og áður hefur verið rætt á þessum stað. Hann er beinskeyttur í skoðunum og setur þær fram á tæpitungulausan hátt. Það stuðar eðlilega marga. Það er hins vegar eitt að vera móðgaður eða ósam- mála og annað hvernig því er komið á framfæri. Á þetta bendir Brynjar í nýjasta pistli sínum á Pressunni þar sem hann segir viðbrögð margra þeirra sem hann hefur gagnrýnt einkennast af mikilli reiði og jafnvel hatri. „Getur verið að ég sé að glíma við ofstækis- fullt trúarfólk eða er þetta fólk bara stíflað af frekju?“ spyr Brynjar og vonar að skýringin sé frekja. Rétt er að taka undir með Brynjari, þótt hann tali ekki mjög skýrt um það við hverja hann á. Það að vera ósammála einhverjum gefur manni hins vegar ekki rétt til að úthúða þeim. Oft er gott það er gamlir kveða Fátt fólk er leiðinlegra en það sem stráir um sig tilvitnunum og allra verst er þó það sem gerir það á frummálinu. Íslensk umræðuhefð kveikir þó hugrenningatengsl við tilvitnun, sem oft er ranglega eignuð Voltaire, en er í raun eftir Evelyn Beatrice Hall: „Ég er ósammála því sem þú segir, en ég mun fram í rauðan dauðann verja rétt þinn til þess að halda skoðun þinni fram.“ Hefði átt að hlusta Mikið hefur verið rætt og ritað um þau orð Sigmundar Davíðs Gunn- laugssonar að staða ríkisfjármála hafi verið fegruð fyrir kosningar. Sigmundi hefði verið nær að hlusta á Tryggva Þór Herbertsson í umræðum um fjárlög á þingi í desember í fyrra. Þar sagði Tryggvi Þór nákvæmlega það sama, að ríkisstjórnin væri að fegra stöðu ríkisfjármála. Sjálfur hefur Sigmundur ekki alltaf gefið fráfarandi ríkisstjórn hæstu einkunn í bókhaldsmálum. Einhver gæti því sagt að hann hefði betur látið kanna stöðuna sjálfur, áður en Framsókn fór í loforð um ríkisútgjöld, nú eða bara hlustað á Tryggva. kolbeinn@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.