Fréttablaðið - 16.05.2013, Side 26
16. maí 2013 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 26
Árið 1992 undirrituðu
Íslendingar Ríó-sáttmál-
ann um að sjálfbær þróun
yrði höfð í hávegum, rán-
yrkja lögð af og náttúran
látin njóta vafans. Undir-
ritun okkar hefur reynst
marklaus og ekki papp-
írsins virði, og er saga
gufuaflsvirkjananna eitt
versta dæmið um það.
Í stað sjálfbærrar þró-
unar er aðeins gert ráð
fyrir því í forsendum
virkjananna að orkuforði
þeirra endist í skitin 50
ár, helst skemur, eins og ætlun-
in er með Eldvarpavirkjun, en
samt er gumað af því um heim
allan að um „endurnýjanlega og
hreina orku“ sé að ræða. Saga
virkjananna er saga slæmra mis-
taka, rányrkju og loforða, sem
stóðust ekki. Fyrir áratug var
gefið grænt ljós á tvær gufuafls-
virkjanir, Hellisheiðarvirkjun og
Bjarnarflagsvirkjun, á grund-
velli mats á umhverfisáhrifum
og lofað pottþéttum lausnum
varðandi loftmengun og affalls-
vatn. Hellisheiðarvirkjun reis
og nú er ljóst að ekki hefur verið
orð að marka af loforðunum um
lausnir á þessum vandamálum
þar, heldur er uppgjöfin alger.
Stækkun hefur verið frestað að
minnsta kosti fram yfir 2020 og
beðið um frest til jafn langs tíma
til þess að rannsaka, hvort hægt
sé að leysa þessi vandamál! Ofan
á þetta hafa bæst ónefnd vanda-
mál við niðurdælingu: manngerð-
ir jarðskjálftar.
Viðurkennt opinberlega
Nú mætti ætla að í ljósi þess-
ara ófara myndu menn fara að
með gát við Mývatn, sem býr
yfir einstæðu og heimsfrægu
samspili lífríkis og jarðmynd-
ana, ekki hvað síst vegna þess
að Bjarnarflags virkjun verð-
ur fimm sinnum nær byggð en
Hellisheiðar virkjun. Aðeins 2,8
kílómetrar eru frá virkjuninni í
grunnskólann í næstu byggð og
tæpir fjórir kílómetrar frá virkj-
uninni til vatnsins eftir hallandi
landi. Ég varaði við þessu í blaða-
grein fyrir hálfu öðru ári og á
bloggsíðu minni undanfarin ár
og hef birt loftmyndir af affalls-
vatni, sem rennur í átt að vatninu
úr þrjátíu sinnum minni virkjun
en ætlun in er að reisa og
loftmyndir af sístækk-
andi vatni í 10 kílómetra
fjarlægð frá Kröfluvirkj-
un.
Á íbúafundi í fyrra
var samt sagt að vanda-
málið hefði þegar verið
leyst! Svipað svar fékkst
þegar ég birti myndir af
affallsvatni virkjana hér
syðra og lét fylgja með
að grafa yrði skurð fyrir
1,5 milljarða króna frá
Svartsengi til sjávar til
að leysa það vandamál.
Sagt var að þetta væri forkast-
anlegur þvættingur og upplogn-
ar ásakanir. Ári síðar var viður-
kennt opinberlega að svona væri
í pottinn búið.
Með ólíkindum
Nýlega sá ég vandaða og ítar-
lega vísindalega umfjöllun um
hið viðkvæma og flókna neð-
anjarðarstreymi vatns fyrir
austan Mývatn, sem er forsenda
líf ríkisins í vatninu. Í mati á
umhverfis áhrifum Bjarnarflags-
virkjunar blasir við stórkost legur
vafi á því hvaða áhrif gufuafls-
virkjun þarna muni hafa á þessa
forsendu frægðar Mývatns, sem
dregur að sér sívaxandi fjölda
ferðamanna. Samt á að drífa í að
virkja – sjálft Mývatn fær ekki að
njóta vafans. Ástæðan er einföld:
Það er hægt að byrja fyrr á að
afhenda orkuna þaðan til Bakka
en frá Þeistareykjum. Þeir sem
hafa efasemdir eða andæfa eru
kallaðir öfgamenn en hinir sem
vilja virkja allt talsmenn skyn-
semi og hófsemdar.
Í umhverfismatinu koma fram
þrír möguleikar áhrifa virkjun-
arinnar á Hveraröndina – eina
hverasvæðið af sínu tagi sem er
alveg við hringveginn: 1. Engin
áhrif verða á hverasvæðið. 2.
Hverirnir munu minnka eða
hverfa. 3. Hveravirknin mun
aukast. Það er með ólíkindum
að jafnvel þótt svona gríðarleg
óvissa komi fram skuli virkjun-
in eiga að njóta vafans en Mývatn
ekki, enda búið að afnema
lögin um friðlýsingu Laxár og
Mývatns.
Engir lærdómar dregnir
Nú er lofað að rannsaka jafn óðum
hvaða áhrif virkjunin hafi og að
bregðast þá við. Svona loforð
hafa verið gefin áður, ekki bara
á Hellisheiði, heldur var reynt að
rannsaka hvaða áhrif Kísiliðjan
hefði á Mývatn, en yfirleitt taka
svona rannsóknir áratugi og þá
er það oftast of seint. Sams konar
loforðalisti er nú settur fram við
Bjarnarflagsvirkjun og við virkj-
anir syðra. Hvers vegna ætti
hann að verða marktækari en
loforðin hér syðra? Hvers vegna
má ekki að minnsta kosti bíða og
sjá hvernig gengur að vinna úr
vanda málunum hér syðra áður
en menn æða af stað fyrir norðan?
Blekkingum beitt
Fyrir 43 árum átti að virkja við
Laxá og Mývatn og Nóbelskáld-
ið reit greinina „Hernaðurinn
gegn landinu“. Hún er enn í fullu
gildi. Fyrir dyrum standa virkj-
anaframkvæmdir við Kröflu sem
munu eyðileggja ásýnd hins ein-
stæða svæðis „Leirhnjúkur-Gjá-
stykki“. Í mati á umhverfisáhrif-
um er beitt blekkingum. Auk þess
liggja helstu náttúruperlur nyrðra
og um allt land undir skemmdum
vegna hinnar íslensku blöndu af
nísku, græðgi og sérhagsmunum.
Engir lærdómar eru dregnir af
meira en 100 ára reynslu í „landi
frelsisins“, Bandaríkjunum, sem
ég sýndi í sjónvarpi fyrir fjórtán
árum.
Mývatn er komið á válista
vegna hnignunar lífríkisins.
Vatnið var ekki látið njóta vaf-
ans þegar kísil nám stóð þar yfir.
Þingvallavatn er að falla úr a-
flokki í b-flokk vegna mengun-
ar. Við bæði þessi einstæðu vötn
gerist þetta vegna kæruleysis,
græðgi og rányrkju á kostnað
komandi kynslóða. Ætlum við
að halda svona áfram endalaust,
þjóðin, sem á að vera vörslumenn
einhverra einstæðustu náttúru-
verðmæta heimsins fyrir kom-
andi kynslóðir og mannkyn allt?
Hernaðurinn gegn undrum
Mývatnssveitar
Nú er í kynningu nýtt
deiliskipulag á dýrmæt-
um reit í hjarta borgar-
innar, Landsímareitnum
í Kvosinni. Ég skora á
fólk að kynna sér það vel
og senda inn athugasemd-
ir á skipulag@reykja-
vik.is fyrir 23.maí. Það
telst annars samþykkt,
þótt það hafi mótmælt
áformum um hótelrekst-
ur á þessum reit á www.
ekkihotel.is ásamt 17.000
öðrum.
F ra mtíð dý rmæt-
ustu almennings svæða
Reykjavíkur er í húfi. Eiga hags-
munir lóðar eiganda sem þarna
hefur keypt upp eignir að vega
þyngra en hags munir almenn-
ings? Er borgin ekki fyrir okkur
borgarbúa? Almennings svæðin
þrjú, Austur völlur, Ingólfs torg
og Fógeta garður eru mikið sótt
af mismunandi hópum fólks. Það
mun verða fyrir truflun meðan á
fyrir huguðum framkvæmdum og
fornleifa greftri stendur. Einnig
mun verslun á þessu svæði rask-
ast.
Með mikla sögu
Á Landsímareitnum eru mörg
gömul hús með mikla sögu, þar
á meðal Nasa, gamla Sjálfstæðis-
húsið og Landsímahúsið eftir
Guðjón Samúelsson. Við Vallar-
stræti eru tvö önnur gömul hús,
Brynjólfs búð og Hótel Vík.
Skipulagstillögur á svæðinu
hafa tekið ýmsum breytingum. Í
stað þess að rífa húsin í Vallar-
strætinu átti að flytja þau á
Ingólfs torgið. Því var mótmælt
harðlega. Síðan átti borgin að
byggja menningarhús á Ingólfs-
torgi, sem var hætt við. Það stóð
kannski aldrei til?
Yfirgnæfa friðuð hús
Nýja deiliskipulagið gerir ráð
fyrir háum byggingum á milli
gömlu húsanna við Vallarstræti.
Þótt hæð þeirra hafi verið lækk-
uð um eina hæð, munu þær samt
yfirgnæfa friðuð hús og bera þau
ofurliði. Í stað þess að draga fram
sérstöðu þeirra og sögulegt gildi.
Mér finnst Landsímahúsinu,
byggingu Guðjóns Samúelsson-
ar, sýnd mikil vanvirðing með
því að reisa enn aðra viðbygg-
ingu við það og bæta að auki
ofan á það. Þetta mun algjörlega
breyta ásýnd hússins og auka
skuggavarp inn á Austur völl.
Vart telst það að standa vörð um
hagsmuni almennings sem hlýt-
ur að vera frumskylda borgar-
yfirvalda. Viðbyggingin verður
reist á bíla planinu, alveg út við
Kirkjustrætið. Hún mun þrengja
mjög að gömlu uppgerðu húsun-
um hinum megin götunnar, sem
og Alþingi. Hótel- eða gistihúsa-
rekstri fylgir mikil umferð. Ekki
bara rútur, heldur einnig leigubíl-
ar, jeppar, sorpbílar og sendibíl-
ar að koma með birgðir af ýmsum
toga. Hvar á eiginlega sú aðkoma
að vera?
Það eina góða sem kemur út úr
nýju deiliskipulagi er að Fógeta-
garðurinn, elsti kirkjugarður
Reykvíkinga, fær svokallaða
hverfisvernd.
Sýnum borginni virðingu
Annað gildir um hinn lif-
andi og sögufræga sal í gamla
Sjálfstæðis húsinu, Nasa, þar
sem tónlistarmenn hafa lengi átt
athvarf. Hann verður rifinn og
endurgerður sem fjölnota salur
innan veggja hótels með útgang út
í þröngt Vallarstrætið. Af hverju
er Nasasalurinn ekki verndaður,
eins og húsafriðunar nefnd hafði
lagt til á sínum tíma?
Kæfum ekki hjarta bæjarins.
Miðbærinn iðar af lífi og sál í
þessari fallegu og hlýju borg sem
við eigum. Glötum ekki þeim
sjarma sem fylgir gömlum húsum
og gömlum götumyndum. Leyfum
þeim að njóta sín.
Sýnum borginni okkar virð-
ingu og verndum okkar sögulegu
byggð. Það er komið nóg af hót-
elum á þessum litla reit sem við
eigum öll.
Kæfum ekki hjarta
miðbæjarins
NÁTTÚRU-
VERND
Ómar Þ.
Ragnarsson
formaður Íslands -
hreyfi ngarinnar
– lifandi lands
➜ Í mati á umhverfi s-
áhrifum er beitt blekking-
um. Auk þess liggja helstu
náttúruperlur nyrðra og um
allt land undir skemmdum
vegna hinnar íslensku
blöndu af nísku, græðgi og
sérhagsmunum.
➜ Framtíð dýr-
mætustu almennings-
svæða Reykjavíkur
er í húfi . Eiga hags-
munir lóðareiganda
sem þarna hefur
keypt upp eignir að
vega þyngra en hags-
munir almennings?
Er borgin ekki fyrir
okkur borgarbúa?
Til viðbótar við ríkulegan staðalbúnað
í Volkswagen Passat Comfortline Plus
er nú fullkomið leiðsögukerfi með
Íslandskorti ásamt bakkmyndavél.
www.volkswagen.is
Rúmgóður og
sparneytinn
fjölskyldubíll
Volkswagen Passat dísil
Passat Comfortline Plus 1.6 TDI
dísil beinskiptur kostar aðeins
4.550.000 kr.
Komdu og reynsluaktu Volkswagen Passat
Passat dísil
eyðir frá 4,3 l/100 km
SKIPULAG
Þóra Andrésdóttir
íbúi í miðbæ
Reykjavíkur