Fréttablaðið - 16.05.2013, Side 34
16. maí 2013 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 34TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
„Við ætlum að rifja upp sögu sveitar-
innar í tónum og taka vinsælustu lögin
hjá okkur á árunum frá 1963 til 1968,
meðal annars Angeliu og einnig nokkur
Bítlalög,“ segir Sigursteinn Hákonar-
son rafvirki um tónleika Skagahljóm-
sveitarinnar Dúmbó og Steina annað
kvöld. Hann var á sínum tíma þekkt-
ur sem söngvarinn Steini með þeirri
hljómsveit og átti sinn þátt í miklum
vinsældum hennar. Nú eru fimmtíu ár
frá því hann steig á svið með sveitinni
og líka fimmtíu ár frá því Dúmbó var
endurvakin eftir nokkurra vikna svefn
og þá sem sextett, en áður hafði hún
verið kvartett. Upp á það skal haldið
í Bíóhöllinni.
Sigursteinn var bara fimmtán ára
þegar hann hóf söngferilinn með
Dúmbó og hafði því ekki aldur til
að vera á böllunum sem hann var að
syngja á, heldur þurfti leyfi frá lögg-
unni fyrsta árið. „Við vorum tveir á
sama aldri í sveitinni, bara fimmtán
ára unglingar,“ rifjar hann upp og
segir strax hafa verið fullt að gera.
„Hljómsveitin var ráðin til að spila á
böllum í Borgarfirðinum og á Snæfells-
nesinu allt sumarið 1963 og fljótlega
komumst við inn í Glaumbæ sem varð
vinsæll unglingastaður á þeim tíma.
Næstu sumur lékum við og sungum á
sveitaböllum vítt um landið og leystum
Hljómsveit Svavars Gests af í Súlnasal
Hótel Sögu í einn mánuð, það var fín-
asta veitingahús landsins á þeim tíma.
Við vorum með þannig hljóðfæraskip-
an að við gátum spilað dinnermúsík
undir borðhaldi og svo danstónlist á
eftir. Við kappkostuðum líka að vera
vel klæddir og létum sauma á okkur
hljómsveitarbúninga.“
Árið 1967 kom út fjögurra laga plata
með Dúmbó og Steina sem seldist fljótt
upp, lagið Angelia sló í gegn og var á
vinsældarlistunum vikum saman. Þótt
Steini hafi hætt að koma fram með
Dúmbó á sjöunda áratugnum kveðst
hann hafa haldið söngnum við í kórum
gegnum tíðina og hafa sungið bæði
með Kirkjukór Akraness og ýmsum
söngsveitum.
Færri komast að en vilja á tónleikana
annað kvöld í Bíóhöllinni en þeir verða
endurteknir 24. þessa mánaðar og enn
eru nokkrir miðar lausir á þá þegar
þetta er ritað. gun@frettabladid.is
Söng á sveitaböllum
með leyfi löggunnar
Sigursteinn Hákonarson, eða Steini í Dúmbó, heldur upp á 50 ára söngafmæli sitt og
Dúmbó sextett upp á 50 ára afmæli með tónleikum í Bíóhöllinni á Akranesi á morgun.
SÖNGVARINN „Við ætlum að rifja upp sögu sveitarinnar í tónum og taka vinsælustu lögin hjá
okkur á árunum frá 1963 til 1968,“ segir Steini. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ARNDÍS SIGURÐARDÓTTIR
Brunnum 11, Patreksfirði,
lést 10. maí á Hjúkrunarheimilinu Ísafold
í Garðabæ. Útför hennar fer fram frá
Patreksfjarðarkirkju laugardaginn 18. maí
klukkan 14. Þeim sem vildu minnast hennar
er bent á Slysavarnadeildina Unni Patreksfirði.
Bjarni Valur Ólafsson Anna Sigmarsdóttir
Sigurður Ólafsson Gróa Lárusdóttir
Ólafur Örn Ólafsson María Beatriz Fernandes
Sigurveig J. Ólafsdóttir Árni Long
Páll Ólafsson Nili Ben-Ezra
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
HELGA TRYGGVADÓTTIR
lést á dvalarheimilinu Grund mánudaginn
13. maí. Útför hennar fer fram frá
Háteigskirkju föstudaginn 24. maí kl. 13.00.
Ragnheiður Bragadóttir
Guðmundur Bragason Auður Gróa Kristjánsdóttir
Dagur Bragason
Unnur Bragadóttir
Ingvar Stefánsson Guðrún Björk Bjarnadóttir
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda hlýju og
vinarhug við andlát og útför
SKAFTA ÞÓRODDSSONAR
frá Sigtúni, Fáskrúðsfirði.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Dvalar- og
hjúkrunarheimilisins Uppsala fyrir að annast
hann af einstakri umhyggju og hlýju síðustu
ár.
Fyrir hönd aðstandenda,
systkinin frá Sigtúni.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi
og langalangafi,
GUNNAR SKAGFJÖRÐ
SÆMUNDSSON
Hlíðarhúsum 7, 112 Reykjavík,
sem lést föstudaginn 10. maí verður
jarðsunginn frá Árbæjarkirkju föstudaginn
17. maí klukkan 15.00.
William S. Gunnarsson Sigrún G. Jónsdóttir
Sæmundur S. Gunnarsson Inga Ásgeirsdóttir
Margrét Gunnarsdóttir Halldór Kjartansson
Gunnar Skagfjörð Gunnarsson Guðrún Jóhanna Rafnsdóttir
Anna Skagfjörð Gunnarsdóttir Sigurður Daníel Gunnarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Bálför elskulegrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
HULDU INGVARSDÓTTUR
Bræðratungu 22, Kópavogi,
sem andaðist á hjúkrunarheimilinu
Sunnuhlíð miðvikudaginn 8. maí, verður í
Hjallakirkju föstudaginn 17. maí kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en
þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningargjafarsjóð
Sunnuhlíðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kristbjörg Sigurnýasdóttir Jóhannes R. Jóhannesson
Frímann Sigurnýasson
Hrefna S. Sigurnýasdóttir Ásgeir Torfason
Birgir Páll Hjartarson Sylwia Lichy
Elskuleg móðir okkar, dóttir, tengdamóðir,
systir og amma,
INGIBJÖRG ÓLÖF ANDRÉSDÓTTIR
(INGA LÓA)
hjúkrunarfræðingur,
Birkiási 13, Garðabæ,
verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju
miðvikudaginn 22. maí kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kristín Logadóttir Hallgrímur Þór Sigurðsson
Andrés Már Logason
Kristín Magnúsdóttir
Örn Andrésson
Guðbjörg Erla Andrésdóttir
Magnús Andrésson
Hrafn, Lóa og Már Hallgrímsbörn.
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir, afi og langafi,
RÚDÓLF SÆVAR INGÓLFSSON
varð bráðkvaddur á heimili sínu 12. maí sl.
Útförin verður auglýst síðar.
Ruth Jóhanna Arelíusdóttir
Annadís Greta Rúdólfsdóttir
Sandra Björk Rúdólfsdóttir
Daniel Ari Maksimov og Gabriel Rúdólf Maksimov.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð,
hlýhug og vináttu við andlát og útför
okkar ástkæru eiginkonu, dóttur, móður,
tengdamóður og ömmu,
MARGRÉTAR BJÖRNSDÓTTUR
sérkennara,
Logafold 65.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki kvennadeildar
Landspítalans, Heimahlynningar og líknardeildar Landspítalans.
Brynjúlfur Erlingsson
Ársól Margrét Árnadóttir
Björn Brynjúlfsson Hildur Björk Kristjánsdóttir
Erlingur Brynjúlfsson Anna Lilja Oddsdóttir
Árni Brynjúlfsson
barnabörn og aðrir ættingjar.
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
amma og langamma,
STEFANÍA RUNÓLFSDÓTTIR
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 8. maí
síðastliðinn. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni
í dag, fimmtudaginn 16. maí, kl. 15.00.
Símon Hallsson Anna Eyjólfsdóttir
Valgarður Ómar Hallsson Lori Hallsson
Hallur Hallsson
Ásta Hallsdóttir Benedikt Ólafsson
Heba Hallsdóttir
Hulda Guðrún Hallsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Fjölbreytt úrval legsteina
Frí áletrun og uppsetning
Sjá nánar á granithollin.is sími 555 38 88
Bæjarhrauni 26 (á móti Fjarðarkaupum)
Bæjarhrauni 26 - 220 Hafnarfirði
www.granithollin.is
Sími 555 38 88
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
PÁLÍNA JÓHANNESDÓTTIR
lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum
mánudaginn 13. maí sl. Útförin fer fram
frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 22. maí
kl. 13.00.
Jón Haukur Sigurðsson
Benedikt T. Sigurðsson Ásta Níelsdóttir
Elín Stella Sigurðardóttir Helgi Hauksson
Jóhannes Ómar Sigurðsson Soffía Kristjánsdóttir
Sölvi Ellert Sigurðsson Sigurveig Guðmundsdóttir
Þorgrímur Óli Sigurðsson
Helgi G. Sigurðsson
Einar Már Sigurðsson Ellen Baer
Guðrún Fanney Sigurðardóttir Laurent Nicolas Bonthonneau
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.