Fréttablaðið - 16.05.2013, Side 62

Fréttablaðið - 16.05.2013, Side 62
16. maí 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 42 Nýstárlegur bókmenntaviðburður verður haldinn á Dollý á föstudagskvöldið. Þar er um að ræða Literary Death Match, eða Hanaslag á bókmenntasviðinu eins og það útleggst á íslensku, sem er alþjóðleg lestrar- röð sem á rætur að rekja til Bandaríkjanna, nánar tiltekið í hugskot Adrians Todd Zuniga, sem stóð fyrir fyrsta slagnum árið 2006. „Hugmyndin er að brjóta upp hefðbundið upplestrarform og gera það skemmtilegra, til dæmis með því að sækja í umgjörð þátta á borð við Idol, án þess þó að fórna listrænu gildi,“ að sögn Atla Bollasonar, eins skipuleggjanda keppninnar hérlendis. „Þetta er þó gjörólíkt Idol að því leyti að þátttakendur eru alltaf viðurkennd skáld og skemmtanagildið er meira metið en það að sigra.“ Hanaslagurinn fer þannig fram að fjórir rithöf- undar fá sjö mínútur til að flytja spennandi texta frammi fyrir áhorfendum og þremur sérvöldum dómurum. Einn dómarinn tekur sérstaklega fyrir bókmenntalegt gildi, annar rýnir í flutninginn sem slíkan og sá þriðji dæmir „hið ónefnanlega“ þ.e.a.s. heildarupplifunina; hughrifin sem verða til á milli línanna. Dómararnir velja síðan í sameiningu tvo les- ara sem komast áfram í lokaumferðina þar sem þeir heyja baráttu upp á líf og dauða um LDM-krúnuna. Þátttakendur verða Andri Snær Magna- son, Auður Jóns- dóttir, Kári Tulinius og Kristín Eiríksdóttir en dómarar þau Bergur Ebbi Benediktsson, Hugleikur Dagsson og Kristín Ómarsdóttir. Adrian Todd Zuniga mætir sjálfur til landsins og verður kynnir kvöldsins, en Reykjavík verður 48. borgin í röðinni sem stendur fyrir LDM- kvöldi. - fsb Hanaslagur skáldanna Fjögur skáld munu á föstudagskvöld heyja keppni í alþjóðlegu lestrarröðinni Literary Death Match. Þrír dómarar meta frammistöðu þeirra og velja sigurvegara. FÁÐU GÓÐ RÁÐ VIÐ OFNÆMI NEUTRAL.IS Astma- og ofnæmisfélagið á Íslandi mælir með vörum fráDönsku astma- og ofnæmissamtökin ÍS LE N SK A S IA .I S N AT 6 27 19 0 1. 20 13 SKEMMTANAGILDIÐ Í FYRSTA SÆTI Atli Bollason segir að þótt umgjörðin sé sótt í þætti eins og Idol sé LDM fyrst og fremst hugsað sem aðferð til að setja upplestur fram með nýjum hætti. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL AUÐUR JÓNSDÓTTIR ANDRI SNÆR MAGNASON KRISTÍN EIRÍKSDÓTTIR KÁRI TÚLINÍUS HVAÐ? HVENÆR? HVAR? FIMMTUDAGUR 16. MAÍ 2013 Tónleikar 20.00 Útskriftartónleikar Ragnars Jóns- sonar í Fella- og Hólakirkju. Ragnar útskrifast með diplómagráðu í sellóleik frá tónlistardeild Listaháskólans í vor. Á efnisskrá eru meðal annars verk eftir Schumann, Bach og Prokofiev. Allir velkomnir. 21.00 Hljómsveitin VOR heldur tón- leika á Café Rosenberg 16. maí. 22.00 Magnús Einarsson og félagar halda tónleika á Ob-La-Dí Ob-La-Da, Frakkastíg 8. Sýningar 16.30 Árleg útskriftarsýning Margmiðl- unarskólans í Bíó Paradís, Hverfisgötu 54. Málþing Hugarflug, ráðstefna um snertifleti list- sköpunar og rannsókna verður haldin 16. og 17. maí. Um 80 listamenn, hönn- uðir, sjálfstætt starfandi fræðimenn, háskólakennarar og framhaldsnemar kynna rannsóknarverkefni sín. Ráð- stefnan fer fram í húsnæði hönnunar- og arkitektúrdeildar LHÍ að Þverholti 11. Aðgangur er ókeypis. Nánari upp- lýsingar á lhi.is. Allir velkomnir. Tónlist 22.00 DJ Elvar spilar á Faktorý. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@ frettabladid.is. Caput hópurinn heldur tónleika í þremur borgum, Peking, Tian Jin og Xi‘an á tónleikaferðalagi sínu um Kína sem hefst stendur frá 18. til 24. maí. Hópinn skipa átta hljóð- færaleikarar undir stjórn Guðna Franzsonar. Caput leikur á nútímatónlistar- hátíðinni í Peking, á Maíhátíðinni í Tian Jin og loks mun hópurinn leika í tónlistarháskólanum í Xi’an þann 23. maí. Sérstök áhersla verður lögð á tónverk norrænna höfunda á tón- leikum hópsins en tvö íslensk tónverk voru pöntuð sérstaklega fyrir ferðina og verða frumflutt í Peking 20. maí. Þetta eru verk- in Ásýnd eftir Hauk Tómasson og Ró eftir Önnu Þorvaldsdóttur. Auk þess verða flutt verk eftir Kaiju Saariaho frá Finnlandi, Rolf Wall- in frá Noregi og Bent Sørensen frá Danmörku en tónskáldin eiga það sameiginlegt að hafa fengið tón- listarverðlaun Norðurlandaráðs. Jafnframt verða leikin einleiks- verk og kammerverk eftir Jón Leifs. Þá verður frumflutt nýtt verk eftir ungan kínverskan höfund, Chen Dan Bu. Caput í Kína Hópurinn leikur norræna tónlist á tónleikaferð sinni. CAPUT-HÓPURINN Verða á ferð um Kína í næstu viku.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.