Fréttablaðið - 16.05.2013, Side 64

Fréttablaðið - 16.05.2013, Side 64
16. maí 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 44 TÓNNINN GEFINN Kjartan Guðmundsson Skýringar Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is. Þátttakendur í Lagalistanum Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, K100,5, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum Skífan, Hagkaup, Penninn/ Eymundsson, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elko, tonlist.is. 9.5.2013 ➜ 15.5.2013 LAGALISTINN TÓNLISTINN Sæti Flytjandi Lag 1 Daft Punk / Pharrell Get Lucky 2 Justin Timberlake Mirrors 3 Valdimar Beðið eftir skömminni 4 Pink / Nate Ruess Just Give Me a Reason 5 Robin Thicke Blurred Lines 6 Retro Stefson She Said 7 John Grant GMF 8 Christina Aguilera/Pitbull Feel This Moment 9 Phillip Phillips Gone, Gone, Gone 10 Christina Aguil./Blake Shelton Just a Fool Sæti Flytjandi Plata 1 Bubbi Morthens Stormurinn 2 Ýmsir Eurovision Song Contest 2013: Malmö 3 Ýmsir Pottþétt 59 4 Dimma Myrkraverk 5 Ásgeir Trausti Dýrð í dauðaþögn 6 Of Monsters and Men My Head Is an Animal 7 Ýmsir Tíminn flýgur áfram 8 Retro Stefson Retro Stefson 9 John Grant Pale Green Ghosts 10 Raggi Bjarna Dúettar Sjötta plata bandarísku hljóm- sveitar innar The National, Trouble Will Find Me, kemur út eftir helgi á vegum 4AD. Þrjú ár eru liðin síðan High Violet kom út, sem margir töldu eina af plötum ársins. Í viðtali tímaritsins Uncut lýsir söngvar- inn Matt Berninger mörgum lögum á Trouble Will Find Me sem „skemmtilegum lögum um dauðann“ og bætir við að þau séu beinskeyttari og tilfinningaríkari en fyrri verk hljómsveitarinnar. Í sama viðtali segir gítarleikarinn Aaron Dessner lagið Pink Rabbits vera eins konar blöndu af The Band og frönsku hljómsveitinni Air. The National var stofnuð í Ohio árið 1999 af Matt Berninger, bræðrunum Aaron og Bryce Dessner, og öðrum bræðrum, Scott og Bryan Devendorf. Hljómsveitin vakti almenna athygli með fjórðu plötu sinni Boxer árið 2007 sem seldist þrefalt meira en Alligator sem kom út tveimur árum áður. High Violet sló svo rækilega í gegn og seldist í yfir 600 þúsund eintök- um. Eftir 22 mánaða tónleikaferð til að fylgja eftir High Violet sneru meðlimir The National heim til sín í Brooklyn í New York. Fljótlega byrjaði Dessner að vinna að nýjum lögum og hreif félaga sína með sér. „Eftir að við vorum búnir að fylgja High Violet eftir fannst mér eins og við værum loksins komnir þangað sem við vildum vera. Núna gátum við slakað á, ekki á metnaði Skemmtileg lög um tilfi nningar og dauða Sjötta plata The National kemur út eft ir helgi. Melankólían enn í aðalhlutverki. MEÐ NÝJA PLÖTU Söngvarinn Matt Berninger og bassaleikarinn Scott Devendorf úr The National eru mættir með nýja plötu í farteskinu. NORDICPHOTOS/GETTY ■ The National tók þátt í gjörningi listamannsins Ragnars Kjartanssonar í New York í byrjun maí þegar hún spilaði lag sitt Sorrow af plötunni High Violet í sex klukkustundir. Alls spilaði hún lagið 105 sinnum. Ragnar lét liðsmenn sveitarinnar fá vatn, súkkulaði og brennivín upp á svið til að halda þeim gangandi og gekk gjörningurinn eins og í sögu. Spiluðu Sorrow í sex klukkustundir okkar, heldur vegna þess að við þurftum ekki að sanna okkur leng- ur,“ sagði Berninger. Til að hita upp fyrir plötuna var heimildarmyndin Mistaken For Strangers frumsýnd á kvik- myndahátíðinni Tribeca 17. apríl síðastliðinn. Tom Berninger, yngri bróðir söngvarans Matts, leik- stýrði henni. Þar er hljómsveit- inni fylgt eftir á stærstu tónleika- ferð sinni til þessa og á sama tíma varpað ljósi á samband bræðranna fjögurra. Trouble Will Find Me hefur feng- ið flotta dóma, eða 9 af 10 mögu- legum hjá Clash og fjórar stjörnur í tímaritunum Mojo og Uncut. Hið síðastnefnda segir The National enn og aftur leita að upplyftingu í melankólíunni. Tímaritið Q er ekki eins hrifið og gefur henni þrjár af fimm mögulegum og segir að þrátt fyrir að syngja um tilfinningar hljómi stór hluti plötunnar eins og hún sé á sjálfsstýringu. The National ætlar í tónleikaferð um heiminn til að fylgja plötunni eftir. Fyrstu tónleikarnir verða í New York í kvöld. Í sumar spilar hún á fjölda tónlistarhátíða, þar á meðal á Bonnaroo, Rock Werchter, á Hróarskeldu og á Lollapalooza. freyr@frettabladid.is Jæja, það fer víst ekki framhjá neinum að í dag er haldinn hátíðlegur alþjóðlegur Eurovision-dagur um víða veröld og ósköp fátt sem flest okkar geta gert í því. Sjálfur hef ég farið í gegnum hin sígildu fimm stig sorgarinnar þegar kemur að Söngvakeppninni; að fylgjast með af gríðar- legum, óbeisluðum og einlægum áhuga sem krakki, þykjast ekki horfa en gera það samt í laumi sem táningur (rétt eins og með Dallas, eins og Sverrir Stormsker benti á hér um árið), þykja þetta allt saman óskaplega flippað og fyndið á kaldhæðinn hátt sem menntaskólanemi, vera gjör- samlega formyrkvaður og skítsama sem nýlega fullorðinn og að lokum klárað hringinn og orðið áhugasamur á ný í gegnum unga dóttur sem veit fátt skemmtilegra en hamaganginn í kringum Eurovision. Blaðamaður Guardian hrakti í vikunni algengar goðsagnir um keppnina eins og þær horfa við honum úti í Bretlandi, þar sem tortryggin viðhorf í garð hennar hafa viðgeng- ist lengur en elstu menn muna. Helstu mýturnar telur blaðamaðurinn meðal annars þær að Austur-Evrópa hafi rænt Eurovision (og bendir á að á síðustu árum hafa sigurvegararnir komið frá Svíþjóð, Þýskalandi, Rússlandi, Grikklandi, Noregi og Úkraínu, svo dæmi séu tekin), að nágrannar kjósi alltaf hverjir aðra (sameiginleg menning en ekki blind hollusta), að alls kyns barbabrellur skipti meiru máli en sjálf tónlistin þegar kemur að líklegum sigurvegurum (hvort atriðið byggði fremur á trixum á síðasta ári, Loreen sem vann eða rússnesku ömmurnar sem unnu ekki?) og að ALLIR fyrirlíti Bretland (bull). Þá halda ótalmargir því fram að öll lögin sem hljómað hafa í Eurovision í tæplega sextíu ára sögu keppninnar séu léleg. Með fullri virðingu fyrir persónulegum skoðunum smekk hvers og eins, þá verður að segjast að slíkar ályktanir anga nánast af þröngsýni og þrjósku. Ég skora hér með á hverja sem er að vaða í gegnum þær þúsundir laga sem keppnin hefur alið af sér og segja svo, í fullri einlægni, að ekkert þeirri hreyfi hið minnsta við þeim. Sá sem getur það verður svo krýndur „Nagli ársins“ við hátíðlega athöfn í Eldborgarsal Hörpu. Júróvísa Daft Punk - Random Access Memories Vampire Weekend - Modern Vampires of the City Eurovision Song Contest 2013 - We Are One Í spilaranum *P re nt m ið la kö nn un C ap ac en t o kt ób er –d es em be r 2 01 2 – hö fu ðb or ga rs væ ði 2 5- 54 á ra Innskot í Fréttablaðið skilar árangri! MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið með glæsilegt forskot á keppinautana. Meðallestur Fréttablaðsins í aldurshópnum 25-54 ára er 73% á höfuðborgarsvæðinu.* Við bendum auglýsendum á að notfæra sér forskotið þegar þeir velja dreifingarleið fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex daga vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins. Hafðu fjölpóstinn þinn inni í Fréttablaðinu. Það er áhrifarík leið til að koma skilaboðum um vöru eða þjónustu beint inn á heimilin. Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448 eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN Í FRÉTTABLAÐINU

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.