Fréttablaðið - 16.05.2013, Page 70
16. maí 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 50
þess að partí endist svo lengi, það
var ótrúlegt.“
Fyrsta platan í sjö ár
Nýja platan, Now What?!, er sú nítj-
ánda úr herbúðum Deep Purple og
sú fyrsta í sjö ár. „Við ætluðum ekk-
ert að gera plötu strax því það var
svo gaman hjá okkur á tónleika-
ferðalögunum. En í Kanada í febrú-
ar í fyrra hittum við upptökustjór-
ann okkar Bob Ezrin og hann hvatti
okkur til dáða. Málið er að Deep
Purple er eiginlega „instrumental“-
hljómsveit. Vissulega er ég söngvar-
inn en öll lögin okkar verða til þegar
við djömmum saman. Ekkert er
samið eftir að hljómsveitin kemur
í hljóðver. Hann benti okkur á þetta
og sagði okkur að hafa ekki áhyggj-
ur af því að semja þriggja eða fjög-
urra mínútna lög, heldur leyfa tón-
listinni að þróast áfram á eðlilegan
hátt,“ segir Gillan. „Við fórum í
hljóðver og þá hjálpuðu okkur öll
þessi ár á milli hljómplatna. Við
náum allir mjög vel saman og okkur
gekk vel að semja strax frá byrjun.“
Tileinkuð minningu Jons Lord
Now What?! er tileinkuð stofn-
meðlimi Deep Purple, hammond-
leikaranum Jon Lord, sem lést í
fyrra úr krabbameini á meðan
á upptökunum stóð. „Við bjugg-
umst við þessu en það var samt
mikið áfall þegar það gerðist. Ég
man að þögn sló á hljóðverið í ein-
hvern tíma en eftir það fórum við að
segja fyndnar sögur af Jon,“ segir
Gillan. „Þetta var svipað og þegar
pabbi minn dó. Líkaminn var far-
inn í burtu en skyndilega var ég
uppfullur af andanum. Við fundum
fyrir mikilli nærveru Jon í herberg-
inu, sem var magnað. Á þessum
tíma samdi ég setninguna
„Souls having touched are
forever entwined“ [Sálir sem
hafa snerst eru samtvinn-
aðar að eilífu]. Ég las hana í
jarðarförinni hans [Lords] en
setti hana svo í lag sem var
nánast tilbúð sem heit-
ir Above and Beyond.
Ég vissi að lagið væri
um aðskilnað og þegar
ég setti þessi orð um
Jon inn pössuðu þau
mjög vel. Þetta var
í raun Jon að syngja
fyrir okkur. Andi hans
sveimaði yfir okkur
við gerð plötunnar
og að sjálfsögðu er
hún tileinkuð minn-
ingu Jons Lord.“
Heitir eftir Vincent Price
Lokalag plötunnar heitir Vincent
Price og er nefnt eftir hryllings-
myndaleikaranum sáluga. „Við
þekktum hann allir og unnum með
honum á einhverjum tímapunktum.
Við gáfum þessu lagi vinnutitilinn
Vincent Price því þegar við vorum
að djamma hljómaði það eins og tón-
list í hryllingsmynd. Þetta virtist
góður titill.“
Sjúkrabörurnar aldrei fjarri
Gillan verður 68 ára gamall í ágúst
og ljóst að meðlimir Deep Purple
eru ekkert að yngjast með árun-
um. Aðspurður um formið á þeim
félögum segir hann: „Af og til
heyri ég eitthvað detta á gangstétt-
inni fyrir aftan mig og ég tek eftir
því að eitthvað nýtt hefur hrunið af
mér. En nei, nei, þetta er allt í lagi,
sjúkrabörurnar og sjúkrabíllinn eru
aldrei langt undan,“ segir hann og
hlær.
Rokk og ról í fjórum hlutum
Hvernig tónleikum mega Íslend-
ingar búast við í Nýju Laugardals-
höllinni 12. júlí? „Þrátt fyrir að tón-
leikarnir séu alltaf ferskir vegna
þess að við spilum af fingrum fram
verðum við núna enn ferskari með
þrjú til fimm lög af nýju plötunni.
Annars er alltaf sama uppbygg-
ingin hjá okkur sem breytist aldrei.
Tónleikarnir skiptast í fjóra hluta.
Fyrst spilum við vel þekkt lög eins
og Smoke on the Water, Black Night
og Strange Kind of Woman. Svo spil-
um við minna þekkt lög sem voru
aldrei spiluð í útvarpi en okkur
finnst gaman að spila eins og Maybe
I´m a Leo, Mary Long og No One
Came. Þriðji hlutinn er með
nýju efni og í þeim fjórða
og síðasta spilum við
af fingrum fram þar
sem þú veist aldrei
við hverju þú átt að
búast. Þetta verður
bara mjög gaman,“
segir Gillan.
Deep Purple stígur á svið í Nýju
Laugardalshöllinni 12. júlí. Þetta
verður í fjórða sinn sem þessi
heimsfræga enska rokkhljómsveit
kemur til Íslands. Fyrst spilaði hún
árið 1971 í Laugardalshöllinni og
svo aftur 2004 og 2007, bæði skiptin
í Höllinni. Samanlagt hefur sveitin
selt um þrjátíu þúsund miða hér á
landi, sem mun vera met í miðasölu
hérlendis þegar um erlenda sveit
er að ræða. Árið 2007 hélt Deep
Purple tvenna tónleika í Höllinni
og seldist upp á þá á örskömmum
tíma.
„Bandið hefur verið í smá fríi
núna þannig að við erum stút-
fullir af orku og með nýja plötu í
farteskinu. Já, við hlökkum mikið
til,“ segir söngvarinn Ian Gillan.
„Ég man fyrst þegar við komum til
Íslands. Við sváfum ekki neitt, það
var algjör klikkun. Þetta var eitt
stórt partí. Ég hef aldrei vitað til
Svefnleysi og
algjör klikkun
á Íslandi
Enska rokkhljómsveitin Deep Purple er
á leiðinni hingað í fj órða sinn. Söngvarinn Ian
Gillan ræddi við Fréttablaðið um Ísland,
Vincent Price og látinn vin.
DEEP PURPLE Frá vinstri: Steve Morse, Ian Paice, Ian Gillan, Roger Glover og Don Airey úr rokksveitinni Deep Purple. NORDICPHOTOS/GETTY
FJÓRÐA PLATAN Deep Purple in Rock
kom út 1970 með laginu Child in Time.
■ 1968 Stofnuð í Hertford
á Englandi.
■ 1970 Fjórða platan, Deep Purple
In Rock með laginu Child in Time,
slær í gegn.
■ 1972 Hið vinsæla lag Smoke
on the Water kemur út á plötunni
Machine Head.
■ 1976 Deep Purple hættir störfum.
■ 1984 Hljómsveitin byrjar aftur og
gefur út plötuna Perfect Strangers.
■ 1989 Ian Gillan er rekinn og Joe
Lynn Turner ráðinn í hans stað.
■ 1992 Ian Gillan snýr aftur.
■ 2013 Gefur út sína nítjándu
plötu, Now What?!.
Helstu ártöl í sögu Deep Purple
Byrjaðu strax að spara. Skráðu kortin ykkar
núna á www.stod2.is/vild
Sækja þarf um Olís
greiðslulykil til að fá afs
látt
25% afsláttur af matseðli
hjá Rizzo Pizzeria.
AFSLÁTTUR-7KR.AFSLÁTTUR
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA