Fréttablaðið - 16.05.2013, Side 86

Fréttablaðið - 16.05.2013, Side 86
16. maí 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 66 Tökur eiga að hefjast í sumar á fjölskyldumynd sem ber vinnu- heitið Sumarbörn. Myndin er komin langt í undirbúningi og hefur þegar fengið framleiðslu- styrk frá Kvikmyndasjóði Íslands upp á níutíu milljónir króna. Frumsýning verður líklega á næsta ári. Handritið er byggt á atvikum sem áttu sér stað á barnaheimilinu Silungapolli sem Reykjavík starf- rækti hér árum áður. „Þessi mynd er búin að vera rosalega lengi í gangi. Það eru tíu ár síðan fyrsti handritastyrkurinn kom í þetta verkefni,“ segir leikstjórinn Guð- rún Ragnarsdóttir. Myndin gekk áður undir vinnu- heitinu Silungapollur en ákveðið var að breyta því. „Barna heimilið var lagt niður í kringum 1960 og þá var þetta meðferðarheimili í mörg ár. Það er mikið af fólki sem þekkir ekki Silunga- pol l ö ðr u - vísi.“ Aðal- leikararnir eru börn en umfjöllunar- efnið er á alvarlegri nót- unum. Frétta blaðið greindi frá því í gær að barnamyndin Algjör Sveppi 4 hefði ekki fengið styrk í ár og yrði því ekki framleidd. Í reglugerð Kvikmyndasjóðs Íslands er stefnt að því að barna- eða fjöl- skyldumyndir verði framleiddar að minnsta kosti annað hvert ár og fellur Sumarbörn því í þann flokk. „Krökkunum finnst mjög gaman að þessum Sveppamyndum en það er kannski allt í lagi að þau bíði einu sinni,“ segir Guðrún. - fb Tökur á Sumarbörnum að hefj ast Tökur á fj ölskyldumyndinni Sumarbörn hefj ast í sumar eft ir tíu ára undirbúning. „Ég ætla að taka þetta á æðru- leysinu, gera mitt besta og skemmta mér vel. Allt annað er bara bónus,“ segir Eurovision- farinn Eyþór Ingi Gunnlaugsson. Eins og flestum er kunnugt stígur Eyþór á Eurovision-sviðið í Malmö í kvöld og flytur framlag okkar Íslendinga, Ég á líf, fyrir alla Evrópu. Ísland er áttunda atriðið á svið þegar sautján lög keppa um tíu laus pláss í úrslitun- um á laugardaginn. „Þetta er búið að vera ótrúlega skemmtilegt og ég er með strengi í maganum því við erum búin að hlæja svo mikið. Þetta er ekki leiðinlegasti hópurinn til að ferðast með,“ segir Eyþór en með honum úti eru meðal annars lagahöfundarnir Örlygur Smári, Pétur Örn Guðmundsson (Jesú) og umboðsmaðurinn hans Valgeir Magnússon. Að sögn Eyþórs er atriðið allt að smella saman og meðal annars hefur verið unnin grafík til að hafa í bakgrunninum á sviðinu. „Þeir eru búnir að búa til hálfgerða eftir- líkingu af Dalvík. Það kemur mjög skemmtilega út og yljar manni að ímynda sér heimabæinn þarna á sviðinu,“ segir hann. Eyþór segir enn óákveðið hverju hann klæðist á sviðinu en valið standi á milli tveggja jakka sem báðir eru frá NTC. Á opnunarhátíð Eurovision á sunnudaginn klædd- ist hann þó rauðteinóttum fötum úr smiðju Guðmundar Jörundssonar og vöktu þau gríðarlega athygli. „Það voru ótrúlega margir sem spurðu út í fötin og eins hringana sem ég bar, en þeir eru sérhann- aðir af Hansínu Jensdóttur,“ segir Eyþór. Eyþór segist ekki enn hafa sigt- að út sinn helsta keppinaut eða það lag sem honum þykir líklegast til sigurs. Norðurlandaþjóðirnar séu þó allar taldar frekar sterkar, auk þess sem hin hollenska Anouk sé vinsæl. „Anouk er alveg mögnuð. Ætli lagið hennar, Birds, sé ekki mitt uppáhaldslag í keppninni. Það er smá James Bond fílingur í því og hún er bara alveg ótrúlega flott. Eins finnst mér maltneski strákur- inn mjög skemmtilegur. Hann er einlægur og svolítið akústík. Við erum orðnir miklir félagar,“ segir hann. tinnaros@frettabladid.is Eyþór verður með Dalvík í bakgrunni Syngur Ég á líf í Malmö í kvöld en heldur sjálfur mest upp á hina hollensku Anouk. Eyþór Ingi gengur í það heilaga með barnsmóður sinni, Soffíu Ósk Guð- mundsdóttur, í lok júlí. Parið trúlofaði sig í París í nóvember síðastliðnum en hjúskaparstaða þeirra hefur vakið mikla athygli að undanförnu. „Ég kallaði hana unnustuna mína í einhverju viðtalinu um daginn og þá varð allt vitlaust. Ég veit eiginlega ekki alveg hvað gerðist,“ segir Eyþór og hlær. Soffía Ósk styður auðvitað vel við bakið á sínum manni og er með Eyþóri í Malmö. „Daginn eftir að hún kom hingað út birtist blogg á einni Euro-síðunni þar sem sagt var frá því að til okkar hefði sést í stórmarkaði. Það var ótrúlega fríkí og fyndið,“ segir Eyþór. Ganga í það heilaga í lok júlí Framleiðandi Sumarbarna er Ljósband sem einnig framleiddi Okkar eigin Osló og Desember). LEIKSTÝRIR FJÖLSKYLDUMYND Guðrún Ragnarsdóttir leikstýrir nýrri fjölskyldumynd um Silungapoll. „Uppáhaldsdrykkurinn minn er rabarbaradrykkurinn frá Himneskri hollustu. Rabarbarinn er í miklu uppáhaldi hjá mér og að mínu mati mjög vanmetin jurt.“ Arnljótur Sigurðsson tónlistarmaður. DRYKKURINN „Þetta er barnaplata innan sviga. Svona plata fyrir lífsglatt og skemmtilegt fólk,“ segir tónlistar- maðurinn Gunnar Lárus Hjálmars- son um nýju plötuna sína. Platan hefur fengið nafnið Alheimurinn og er Dr. Gunni, eins og hann er kallaður, í aðalhlutverki ásamt söngkonunni Ragnheiði Eiríksdóttur og Elvari úr hljóm- sveitinni Hellvar og trommaranum Kristjáni Frey. Gunnar segir hann og Ragnheiði hafa verið með þessa hugmynd í kollinum í tvö ár. „Við sömdum 14 lög saman. Nú erum við að æfa og stefnum í stúdíó í byrj- un júní,“segir Gunnar en platan sjálf kemur ekki út fyrr en í októ- ber. „Mér skilst að það séu tvær til þrjár góðar tímasetningar á ári til að gefa út plötu og þetta er ein af þeim.“ Það er útgáfufyrirtækið Geim- steinn sem gefur út plötuna og upptökur fara fram í stúdíó þeirra í Keflavík. Stofnandi Geimsteins, Rúnar Júlíusson, lék einmitt stórt hlutverk á síðustu plötu Gunnars, Abbababb. „Ég þarf að minnsta kosti þrjá þungavigtarpoppara til að koma í stað Rúnars sem var í hlutverki Hr. Rokks á síðustu plötu. Það verða stór nöfn gestasöngvar- ar á þessari plötu,“ segir Gunnar, sem vill ekki gefa upp nein nöfn. Fyrsta smá- skífan af plötunni kemur út fyrir 17. júní. - áp Plata fyrir lífsglatt og skemmtilegt fólk Dr. Gunni tekur upp nýju plötuna Alheimurinn í Kefl avík í sumar. 16 ár eru síðan platan Abbababb kom út. NÝ PLATA Í BÍGERÐ Dr. Gunni og Heiða fara í stúdíó í júní að taka upp plötuna Alheimurinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI ER ÞAÐ EKKI ALLTAF EIGINMAÐURINN? HÚN ER HORFIN EFTIR GILLIAN FLYNN ÞÝÐANDI: BJARNI JÓNSSON D YN A M O R E YK JA VÍ KK Metsölubók um allan heim! „Sagan hreinlegahrífur lesandannmeð sér, þetta erhrein og klár fíkn.“WASHINGTON POST Minna að fletta meira að frétta F ÍT O N / S ÍA BESTI FRÉTTA- OG AFÞREYINGARVEFURINN Úr umsögn dómnefndar: „Vefurinn býður upp á margskonar afþreyingu auk gífurlegs úrvals frétta. Vefurinn er léttur og skemmtilegur auk þess sem einfalt og fljótlegt er að finna það efni sem leitað er að.“ ÉG Á LÍF Að sögn Eyþórs Inga var atriðið allt að smella saman í gær. Söngvarinn segir grafíkina á sviðinu koma mjög vel út. NORDICPHOTOS/AFP

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.