Fréttablaðið - 27.05.2013, Qupperneq 6
27. maí 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 6
HEILBRIGÐISMÁL Líkamlegum refsingum barna var
marktækt minna beitt hér á landi eftir 1980 sam-
kvæmt niðurstöðu nýrrar rannsóknar sem gerð var
hér á landi.
Fjallað var um rannsóknina sem gerð var af Geir
Gunnlaugssyni landlækni og Jónínu Einarsdóttur
mannfræðingi í nýjasta tölublaði Læknablaðsins. Þar
kemur fram að markmið rannsóknarinnar hafi verið
að skoða reynslu fullorðinna Íslendinga af líkamlegu
ofbeldi í æsku, meta umfang hennar, réttlætingu þol-
enda og áhrif á mat og uppeldi.
Alls tóku 977 einstaklingar eldri en 18 ára þátt í
rannsókninni, af 1500 manna slembiúrtaki úr þjóð-
skrá. Þeir voru spurðir í símtali um mat á uppeldi
sínu, reynslu af fimm tilteknum formum líkamlegra
refsinga og umfang þeirra.
Af 968 svarendum mátu 810 að uppeldi þeirra hafi
verið gott. Alls sögðu 465 þátttakendur frá bernsku-
reynslu af að minnsta kosti einu formi líkamlegra
refsinga og voru flengingar algengastar. Næstalgeng-
asta form líkamlegra refsinga var kinnhestur og
hristingar. Þeir sem voru 30 ára og eldri höfðu oftar
reynslu af kinnhesti.
Alls 27 svarendur sögðu frá öðrum formum líkam-
legra refsinga en þeim sem sérstaklega var spurt
um. Dæmi um refsingar voru að hafa verið ýtt, hrint,
fengið spark í sig, munnur sápuþveginn, köld sturta,
drekkingarathafnir eða að vera barinn með áhöldum,
til dæmis herðatré, skóflu eða belti.
Faðir var gerandi hjá 155 svarendum, móðir hjá
142, bæði faðir og móðir hjá 106 og aðrir fullorðnir
forsjáraðilar hjá 31. Feður voru samkvæmt rann-
sókninni líklegri til að hafa beitt syni sína líkamleg-
um refsingum en dætur og mæður refsuðu dætrum
sínum oftar en sonum.
Feður voru rúmlega tvisvar sinnum líklegri til að
flengja börn sín en mæður. Mæður refsuðu oftar en
feður með því að gefa kinnhest og slá á fingur. Ekki
var marktækur munur samkvæmt rannsókninni á
því hvort foreldri hristi börn sín oftar. Þeim sem var
refsað oft töldu frekar að refsingin hafi aldrei verið
réttlætanleg og voru líklegri til að telja uppeldi sitt
hafa verið slæmt eða ásættanlegt borið saman við þá
sem höfðu enga slíka reynslu. hanna@frettabladid.is
Líklegra að feður
flengi börnin sín
Ný íslensk rannsókn á reynslu fullorðinna á líkamlegu ofbeldi í æsku sýnir að
líkamlegum refsingum barna var minna beitt eftir 1980. Rassskelling reyndist
algengasta refsingin hjá feðrum en kinnhestur og fingursláttur hjá mæðrum.
BARN Í nýrri rannsókn kemur fram að feður eru líklegri til
að refsa sonum sínum og mæður líklegri til að refsa dætrum.
NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
Rannsóknir sýna að reynsla af ofbeldi í æsku getur
haft neikvæð áhrif á heilsu og líðan þolenda til lengri
eða skemmri tíma. Í umfjöllun Læknablaðsins um
nýja íslenska rannsókn kemur fram að 14 til 15 ára
unglingar með reynslu af líkamlegum átökum innan
veggja heimilisins höfðu marktækt meiri einkenni
þunglyndi, kvíða og reiði og voru með lægra sjálfsmat
en jafnaldrar sem ekki höfðu orðið fyrir slíkri reynslu.
Slæm áhrif ofbeldis í æsku
EFNAHAGSMÁL Kaupmáttur launa
jókst um 2,4 prósent í apríl síðast-
liðnum. miðað við sama mánuð í
fyrra, samkvæmt upplýsingum
Hagstofu Íslands. Tólf mánaða
hækkun kaupmáttar hefur ekki
mælst meiri frá því í maí í fyrra.
Að mati greiningardeildar
Íslandsbanka gæti aukinn kaup-
máttur í mánuðinum skýrt aukna
veltu á notkun kreditkorta. Velta
jókst um 2,8 að raungildi frá því í
apríl í fyrra og debetkortanotkun
í innlendum verslunum jókst um
3,6 prósent að raunvirði í apríl
miðað við sama mánuð í fyrra. - þj
Tölur Hagstofu Íslands:
Aukinn kaup-
máttur í apríl
NOREGUR Norska tollgæslan lagði
á fimmtudaginn hönd á 380 kíló af
khat í bifreið sem kom frá Svíþjóð.
Þetta er stærsti einstaki farmur-
inn af khat sem norsk yfirvöld
hafa tekið.
Khat er planta sem vex aðallega
í norðausturhluta Afríku. Lauf
hennar eru tuggin eða þau soðin í
te til að ná fram örvunaráhrifum.
Efnið er ekki ólöglegt alls staðar
í Evrópu, en talið er að um 100
tonnum af khatlaufum sé smyglað
til Noregs ár hvert. Notkun khats
er ekki almenn hér á landi en fyrir
tveimur árum fann tollgæslan 58
kíló í farangri manna sem voru á
leið vestur um haf og árið 2010 var
lagt hald á 39 kíló. - þj
Norska tollgæslan:
Tók 380 kíló af
khat í bifreið
BÚNT AF DÓPI Hér sést farmurinn sem
náðist á fimmtudaginn.
MYND/NORSKA TOLLGÆSLAN
STJÓRNSÝSLA Oracle, fjárhags- og
mannauðskerfi ríkisins, mætir
þörfum stjórnvalda og stjórn-
sýslu og virkni þess uppfyllir
kröfur ríkisins í meginatriðum.
Ekkert bendir til að betri útkoma
hefði fengist fyrir ríkið með því
að nýta aðra lausn en þá sem varð
fyrir valinu fyrir tólf árum og
nota ætti kerfið áfram.
Þetta er niðurstaða óháðrar
úttektar á Oracle, eða Orra, en
fjármálaráðuneytið réð sænska
ráðgjafann Knut Rexed, forstöðu-
mann Statskontoret, til að gera út-
tektina.
Mikið var fjallað um gagnrýni
Ríkisendurskoðunar á kaupum
ríkisins á Orra á seinni hluta síð-
asta árs. Meðal annars var talið
að áætlanagerð vegna kaupa og
innleiðingar kerfisins hefði verið
verulega ábótavant og kostnaður-
inn farið langt fram úr áætlun.
- sv
Sérfræðingur frá Svíþjóð:
Oracle hentar
vel fyrir ríkið
DANMÖRK Lögreglan í Kaup-
mannahöfn handtók átján vænd-
iskonur á Vesturbrú aðfaranótt
föstudags. Jótlandspósturinn
segir frá.
Að sögn lögreglu höfðu kon-
urnar um nokkra hríð angrað
íbúa og vegfarendur með fram-
göngu sinni, en þær höfðu gengið
hart fram í tilboðum sínum og
skeytt engu um hvort menn sem
gengu um hverfið væru í félags-
skap eiginkvenna eða barna.
Konurnar, sem eru af erlend-
um uppruna, eru grunaðar um
að starfa án atvinnuleyfis en lög-
regla hyggst einnig rannsaka
hvort þær séu mögulega fórnar-
lömb mansals. - þj
Lögregla í Kaupmannahöfn:
Aðgangsharðar
vændiskonur
handteknar
FÓLK Ólafur Tryggvason hefur skipt skrif-
borðsstólnum út fyrir hjól á meðan hann æfir
sig fyrir hjólreiðakeppnina Wow Cyclothon. 27
lið hafa skráð sig til leiks í keppninni, þar sem
þátttakendur hjóla í boðsveitaformi hringinn í
kringum landið dagana 19. til 22. júní og safna
áheitum til styrktar Barnaheilla - Save the
children á Íslandi.
Ólafur er liðsmaður í liðinu Expendables
Cycling Team og slær tvær flugur í einu höggi
með því að æfa af fullum krafti á meðan hann
sinnir vinnu sinni hjá Opnum kerfum.
„Nútíma karlmenn hafa hreinlega ekki
tíma fyrir einhvern leikaraskap og því þarf
maður að beita útsjónarsemi ætli maður að ná
árangri. Enda er ágætlega krefjandi verkefni
að hjóla hringinn í kringum landið svo allur
undirbúningur er góður,“ segir Ólafur en liðið
stefnir ekki aðeins á að komast fyrst í mark
því Ólafur og liðsfélagar hans ætla líka að
vera ofarlega í áheitasöfnuninni.
„Við ætlum að fara alla leið í þessu og það
verður mikið fjör í okkur. Við erum á fullu við
að undirbúa hressandi efni sem við hendum
inn á Facebook-síðuna okkar og hvetjum fólk
til að fylgjast með okkur, og auðvitað heita á
okkur líka. Til þess er nú leikurinn gerður.“
- jhh
Ólafur Tryggvason skipti skrifborðsstólnum út fyrir sérútbúið hjól sem hann hefur við skrifborðið:
Beitir nýstárlegum aðferðum við æfingar
HVERGI
SLAKAÐ
Á Ólafur
Tryggvason
æfir sig við
skrifborðið
fyrir hjól-
reiðakeppn-
ina WOW
Cyclothon
sem fer fram
í júní.
1. Hvar stendur til að setja upp
aðfl ugs ljós fyrir Reykjavíkurfl ugvöll?
2. Hvaða fyrrverandi útvarpsstjóri hélt
upp á sjötugsafmæli sitt um helgina?
3. Hvaða hlutverk mun Ólafur Darri
leika í jólasýningu Borgarleikhússins?
SVÖR:
1. Við Ægisíðu 2. Markús Örn Antonsson
3. Hamlet
VEISTU SVARIÐ?
Prófaðu Sensodyne vörurnar og finndu muninn.
Sensodyne fyrir viðkvæmar tennur
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
NÝ OG BE
TRI
HÖNNUN
!
TANNBURSTAR OG
TANNKREM FYRIR
VIÐKVÆM SVÆÐI