Fréttablaðið - 27.05.2013, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 27.05.2013, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 27. maí 2013 | SKOÐUN | 13 ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi. Þú finnur „Kia Motors Ísland“ á Facebook Áhugi forsætisráðherra á varð- veislu og vernd íslensks menn- ingararfs er lofsverður. Íslenska þjóðin er eina fólkið í heiminum með þennan tiltekna menning- ararf og þetta tiltekna tungu- mál og hefur skyldur samkvæmt því; okkur ber að sjá til þess að íslenskan deyi ekki út á nýrri tækniöld, eins og gæti hæglega gerst, heldur verði áfram nota- drjúgt, lifandi og skemmtilegt mál. En ræktarsemi, virðing og varfærni gagnvart viðkvæmri sérstöðu á viðsjálli öld einsleitni og hagræðingar á ekki bara við um svo margrætt og síbreyti- legt fyrirbæri sem þjóðmenning er. Slíkur hugsunarháttur á ekki síður að ráða för hjá ríkisstjórn- inni í umgengni við íslenska nátt- úru. Því miður virðast ýmis teikn á lofti þar. „Landið er fagurt og frítt…“ Íslensk náttúra er að verða æ mikilvægari hluti af íslenskri sjálfsmynd – þjóðarvitund, sé hægt að nota svo hátíðlegt orð – enda engu lík. Hér eru víðerni ósnortin og okkur er mikilvægt að skynja að þau séu það. Þegar við förum um landið skynjum við samhljóm innra með okkur við náttúruna og hversu óumræðilega mikilvægt það er okkur að hún sé ekki eyðilögð í framkvæmdaæði, um leið og við gerum okkur grein fyrir því að náttúran hefur gildi í sjálfri sér; og hlutverk okkar sé að skila gæðum hennar til eftir- komendanna. Og Ísland hefur svo sannarlega gefið okkur þegnum sínum mikið og margt: ekki bara alla þessa ægifegurð heldur líka gjöful fiskimiðin sem nærast ekki síst af framburði jökuláa (sem ekki berst til sjávar þegar virkjað er); jarðhita sem okkur tekst kannski einhvern tímann að finna aðferðir til að beisla; bless- að heita vatnið; meira ríkidæmi í vatnsbúskap en víðast hvar. Umgengnin við auðlindir landsins er eitthvert mikilvægasta verk- efni sem hægt er að hugsa sér fyrir stjórnmálamann á Íslandi og ber að taka alvarlega vilji menn láta taka sig alvarlega sem stjórnmálamenn. Það er afar misráðið að fela sama manni ráðherradóm yfir landbúnaði, sjávarútvegi og umhverfismálum. Þar stangast iðulega á sjónarmið náttúrufræð- inga annars vegar og hins vegar þeirra sem hafa hagsmuni af því að nytja gæði jarðarinnar út frá skammtíma gróðasjónarmiðum. Miðað við málflutning Sigurðar Inga Jóhanssonar á alþingi um virkjana- og stóriðjumál er full ástæða til að óttast að hann dragi taum framkvæmdasinna. „Alltaf þegar ég heyri orðið náttúra…“ Í stjórnarsáttmála nýrrar ríkis- stjórnar blasir ekki beinlínis við ríkur skilningur á umhverf- ismálum. Þar er ekkert fjallað um mengun, ekkert um súrn- un sjávar, ekkert um loftlags- mál, en aðeins talað um náttúru- vernd í sömu andrá og nýtingu og staðhæft að Ísland hafi „sér- stöðu í umhverfismálum í krafti ósnortinnar náttúru og sjálf- bærrar nýtingar endurnýjan- legra auðlinda,“ og haldið áfram: „Sú ímynd er auðlind í sjálfri sér. Unnið verður að því að styrkja þá ímynd og grundvöll hennar, að vernda íslenska náttúru og efla landgræðslu og skógrækt þar sem það á við.“ Sum sé: hér er komin gamla bábiljan um að nátt- úruvernd felist einkum í land- græðslu og skógrækt – mann- gerðri „snortinni“ náttúru – og ímynd. Hin bábiljan sem skýtur hér upp kollinum er sú að hér sé „sjálfbær nýting endurnýjan- legra auðlinda“. Vonandi rennur sá dagur einhvern tímann upp, en með engu móti er hægt að tala um stórar vatnsaflsvirkjanir sem sjálfbærar eða endurnýjanlegar, enda fyllast miðlunarlón á til- teknum árafjölda, vatnafar spill- ist með margvíslegum afleiðing- um fyrir lífríkið. Hið sama gildir um jarðhitavirkjanir, þar sem ókunn verðmæti kunna að vera í húfi á furðu órannsökuðum svæð- um; borholur tæmast og brenni- steinsgufum blásið yfir fólk. Loks má minna á að næst á eftir Áströlum og Bandaríkjamönnum losa Íslendingar – með alla sína „hreinu orku“ – mest af gróður- húsalofttegundum á mann, þ.e.a.s. meðal iðnríkja og notum við þó ekki kol líkt og gert er í Ástralíu og Bandaríkjunum. Persóna í þýsku leikriti var einu sinni látin segja: Alltaf þegar ég heyri orðið menning dreg ég upp skammbyssuna mína. Við- kvæði sumra íslenskra framá- manna gagnvart náttúruvernd hefur verið í þessum anda: Alltaf þegar ég heyri orðið náttúra ræsi ég jarðýtuna mína. Slíkur hugs- unarháttur á ekki við á nýrri öld þar sem verðmætin verða til ein- ungis með því að rannsaka, skoða, þekkja og kunna en ekki með því að böðlast og troðast, ólmast og rótast – og rannsaka svo. Forsætisráðherra kemur manni fyrir sjónir sem íhugull maður. Hann mætti hugleiða hvers vegna svo margt fólk sendi athuga- semdir um rammaáætlun á sínum tíma í stað þess að afgreiða þær sem hvern annan fjölpóst eins og honum varð á að gera í viðtali við Helga Seljan á laugardag – hann mætti velta fyrir sér inntaki þess- ara athugasemda frekar en að gera lítið úr starfi þeirra nátt- úruverndarsamtaka sem skipu- lagt hafa mótmæli og aðgerðir til verndar náttúrunni; hann mætti velta fyrir sér athugasemdum sem bárust jafnt frá laxveiði- mönnum sem talsmönnum ferða- iðnaðarins, næst stærstu atvinnu- greinar landsins; hann mætti hugleiða hvers vegna svo margt fólk mætti í grænu gönguna þann fyrsta maí; hann mætti hugleiða hvers vegna meirihluti lands- manna – og þar á meðal kjósendur hans sem treysta honum til góðra verka – segist vera andvígur virkjana- og stóriðjustefnu. Hann mætti hugleiða hvað er í húfi og hvort maður eigi að aðhyllast jarðýtuna eða framtíðina. Sigmundur Davíð segist vilja hlusta. Hann segist vilja taka upp ný vinnubrögð í samstarfi stjórnar og stjórnarandstöðu á þingi; takast á með rökum og hrinda í framkvæmd góðum hug- myndum, jafnvel þótt þær komi frá stjórnarandstöðu – og hlusta. Engin ástæða er til að ætla að hann meini það ekki. Þess er þá að vænta að hann leggi eyrun við því sem náttúruverndarfólk og náttúrufræðingar hafa að segja. Varðveisla og vernd Í DAG Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Það er afar mis- ráðið að fela sama manni ráðherradóm yfir landbúnaði, sjávarútvegi og umhverfismálum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.