Fréttablaðið - 27.05.2013, Síða 13
MÁNUDAGUR 27. maí 2013 | SKOÐUN | 13
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi.
Þú finnur „Kia Motors Ísland“
á Facebook
Áhugi forsætisráðherra á varð-
veislu og vernd íslensks menn-
ingararfs er lofsverður. Íslenska
þjóðin er eina fólkið í heiminum
með þennan tiltekna menning-
ararf og þetta tiltekna tungu-
mál og hefur skyldur samkvæmt
því; okkur ber að sjá til þess að
íslenskan deyi ekki út á nýrri
tækniöld, eins og gæti hæglega
gerst, heldur verði áfram nota-
drjúgt, lifandi og skemmtilegt
mál.
En ræktarsemi, virðing og
varfærni gagnvart viðkvæmri
sérstöðu á viðsjálli öld einsleitni
og hagræðingar á ekki bara við
um svo margrætt og síbreyti-
legt fyrirbæri sem þjóðmenning
er. Slíkur hugsunarháttur á ekki
síður að ráða för hjá ríkisstjórn-
inni í umgengni við íslenska nátt-
úru. Því miður virðast ýmis teikn
á lofti þar.
„Landið er fagurt og frítt…“
Íslensk náttúra er að verða æ
mikilvægari hluti af íslenskri
sjálfsmynd – þjóðarvitund, sé
hægt að nota svo hátíðlegt orð –
enda engu lík. Hér eru víðerni
ósnortin og okkur er mikilvægt
að skynja að þau séu það. Þegar
við förum um landið skynjum við
samhljóm innra með okkur við
náttúruna og hversu óumræðilega
mikilvægt það er okkur að hún sé
ekki eyðilögð í framkvæmdaæði,
um leið og við gerum okkur grein
fyrir því að náttúran hefur gildi
í sjálfri sér; og hlutverk okkar sé
að skila gæðum hennar til eftir-
komendanna. Og Ísland hefur svo
sannarlega gefið okkur þegnum
sínum mikið og margt: ekki bara
alla þessa ægifegurð heldur líka
gjöful fiskimiðin sem nærast
ekki síst af framburði jökuláa
(sem ekki berst til sjávar þegar
virkjað er); jarðhita sem okkur
tekst kannski einhvern tímann að
finna aðferðir til að beisla; bless-
að heita vatnið; meira ríkidæmi
í vatnsbúskap en víðast hvar.
Umgengnin við auðlindir landsins
er eitthvert mikilvægasta verk-
efni sem hægt er að hugsa sér
fyrir stjórnmálamann á Íslandi
og ber að taka alvarlega vilji
menn láta taka sig alvarlega sem
stjórnmálamenn.
Það er afar misráðið að fela
sama manni ráðherradóm yfir
landbúnaði, sjávarútvegi og
umhverfismálum. Þar stangast
iðulega á sjónarmið náttúrufræð-
inga annars vegar og hins vegar
þeirra sem hafa hagsmuni af því
að nytja gæði jarðarinnar út frá
skammtíma gróðasjónarmiðum.
Miðað við málflutning Sigurðar
Inga Jóhanssonar á alþingi um
virkjana- og stóriðjumál er full
ástæða til að óttast að hann dragi
taum framkvæmdasinna.
„Alltaf þegar ég heyri
orðið náttúra…“
Í stjórnarsáttmála nýrrar ríkis-
stjórnar blasir ekki beinlínis
við ríkur skilningur á umhverf-
ismálum. Þar er ekkert fjallað
um mengun, ekkert um súrn-
un sjávar, ekkert um loftlags-
mál, en aðeins talað um náttúru-
vernd í sömu andrá og nýtingu
og staðhæft að Ísland hafi „sér-
stöðu í umhverfismálum í krafti
ósnortinnar náttúru og sjálf-
bærrar nýtingar endurnýjan-
legra auðlinda,“ og haldið áfram:
„Sú ímynd er auðlind í sjálfri sér.
Unnið verður að því að styrkja þá
ímynd og grundvöll hennar, að
vernda íslenska náttúru og efla
landgræðslu og skógrækt þar
sem það á við.“ Sum sé: hér er
komin gamla bábiljan um að nátt-
úruvernd felist einkum í land-
græðslu og skógrækt – mann-
gerðri „snortinni“ náttúru – og
ímynd. Hin bábiljan sem skýtur
hér upp kollinum er sú að hér sé
„sjálfbær nýting endurnýjan-
legra auðlinda“. Vonandi rennur
sá dagur einhvern tímann upp,
en með engu móti er hægt að tala
um stórar vatnsaflsvirkjanir sem
sjálfbærar eða endurnýjanlegar,
enda fyllast miðlunarlón á til-
teknum árafjölda, vatnafar spill-
ist með margvíslegum afleiðing-
um fyrir lífríkið. Hið sama gildir
um jarðhitavirkjanir, þar sem
ókunn verðmæti kunna að vera í
húfi á furðu órannsökuðum svæð-
um; borholur tæmast og brenni-
steinsgufum blásið yfir fólk.
Loks má minna á að næst á eftir
Áströlum og Bandaríkjamönnum
losa Íslendingar – með alla sína
„hreinu orku“ – mest af gróður-
húsalofttegundum á mann, þ.e.a.s.
meðal iðnríkja og notum við þó
ekki kol líkt og gert er í Ástralíu
og Bandaríkjunum.
Persóna í þýsku leikriti var
einu sinni látin segja: Alltaf þegar
ég heyri orðið menning dreg ég
upp skammbyssuna mína. Við-
kvæði sumra íslenskra framá-
manna gagnvart náttúruvernd
hefur verið í þessum anda: Alltaf
þegar ég heyri orðið náttúra ræsi
ég jarðýtuna mína. Slíkur hugs-
unarháttur á ekki við á nýrri öld
þar sem verðmætin verða til ein-
ungis með því að rannsaka, skoða,
þekkja og kunna en ekki með því
að böðlast og troðast, ólmast og
rótast – og rannsaka svo.
Forsætisráðherra kemur manni
fyrir sjónir sem íhugull maður.
Hann mætti hugleiða hvers vegna
svo margt fólk sendi athuga-
semdir um rammaáætlun á sínum
tíma í stað þess að afgreiða þær
sem hvern annan fjölpóst eins og
honum varð á að gera í viðtali við
Helga Seljan á laugardag – hann
mætti velta fyrir sér inntaki þess-
ara athugasemda frekar en að
gera lítið úr starfi þeirra nátt-
úruverndarsamtaka sem skipu-
lagt hafa mótmæli og aðgerðir til
verndar náttúrunni; hann mætti
velta fyrir sér athugasemdum
sem bárust jafnt frá laxveiði-
mönnum sem talsmönnum ferða-
iðnaðarins, næst stærstu atvinnu-
greinar landsins; hann mætti
hugleiða hvers vegna svo margt
fólk mætti í grænu gönguna þann
fyrsta maí; hann mætti hugleiða
hvers vegna meirihluti lands-
manna – og þar á meðal kjósendur
hans sem treysta honum til góðra
verka – segist vera andvígur
virkjana- og stóriðjustefnu. Hann
mætti hugleiða hvað er í húfi og
hvort maður eigi að aðhyllast
jarðýtuna eða framtíðina.
Sigmundur Davíð segist vilja
hlusta. Hann segist vilja taka
upp ný vinnubrögð í samstarfi
stjórnar og stjórnarandstöðu á
þingi; takast á með rökum og
hrinda í framkvæmd góðum hug-
myndum, jafnvel þótt þær komi
frá stjórnarandstöðu – og hlusta.
Engin ástæða er til að ætla að
hann meini það ekki. Þess er þá
að vænta að hann leggi eyrun við
því sem náttúruverndarfólk og
náttúrufræðingar hafa að segja.
Varðveisla og vernd
Í DAG
Guðmundur Andri
Thorsson
rithöfundur
Það er afar mis-
ráðið að fela sama
manni ráðherradóm yfir
landbúnaði, sjávarútvegi og
umhverfismálum.