Fréttablaðið - 27.05.2013, Qupperneq 8
27. maí 2013 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 8
NISSAN PATHFINDER SE
Nýskr. 05/11, ekinn 60 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 6.790 þús.
Rnr.270247.
NISSAN QASHQAI SE
Nýskr. 06/11, ekinn 45 þús. km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 4.490 þús.
Rnr.260005,
Frábært úrval af notuðum
bílum á frábæru verði
Kletthálsi 11 og Breiðhöfða -110 Reykjavík
Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is
www.bilaland.is
www.facebook.com/bilaland.is
HYUNDAI iX35
Nýskr. 10/11, ekinn 18 þús. km.
bensín, sjálfskiptur.
Rnr. 151924
RENAULT KOLEOS 4x4
Nýskr. 09/08, ekinn 62 þús km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 2.990 þús.
Rnr.270206.
SUBARU FORESTER PLUS
Nýskr. 06/08, ekinn 103 þús km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 2.990 þús.
Rnr.280223.
TOYOTA LAND CRUISER 120 LX
Nýskr. 06/08, ekinn 67 þús. km.
dísil, beinskiptur.
VERÐ kr. 5.390 þús.
Rnr.270246.
BMW X5
Nýskr. 09/07, ekinn 71 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 6.490 þús.
Rnr.151891.
Aðeins kr.
4.490 þús.
Tökum notaðan uppí notaðan! Erum í samningsstuði! SKÓGRÆKT Skógrækt ríkisins
afhendir á næstu vikum kísil-
málmverksmiðju Elkem á Grund-
artanga á annað þúsund tonn af
lerkibolum sem hafa fallið til
við grisjun skóga í öllum lands-
hlutum. Verksmiðjan getur nýtt
35.000 tonn af timbri á ári.
Þröstur Eysteinsson, sviðs-
stjóri hjá Skógrækt ríkisins, segir
þetta eitt dæmi um að nýtt tíma-
bil í skógrækt sem atvinnugrein í
landinu sé hafið. „Nú eru komnir
skógar á Íslandi sem eru orðnir
nógu stórir og gamlir til að hægt
sé á hagkvæman hátt að vinna
efni til nytja. Þar á meðal til
málmvinnslu. Samningur okkar
við Elkem er um 1.600 rúmmetr-
ar timburs en þeir geta tekið við
eins miklu og við komumst yfir
að grisja,“ segir Þröstur en grisj-
unarviðurinn til Elkem kemur frá
fimm skógum Skógræktarinn-
ar, auk tveggja ræktunarsvæða
skógræktarfélaga í öllum lands-
hlutum.
Spurður um fjölda þeirra trjáa
sem felld eru í tengslum við verk-
efnið segir Þröstur að ekki sé
langt frá lagi að um 20 tré séu
grisjuð fyrir hvern rúmmetra
sem fluttur er til Grundartanga.
„Þetta eru því um 24.000 tré sem
voru felld núna. Við erum gjarn-
an að fella um þúsund tré á hekt-
ara og skilja eftir eitt til tvö þús-
und tré. Því hafa verið grisjaðir
um 24 til 30 hektarar af skógi til
að framleiða þetta magn. Það er
reyndar aðeins lítill hluti þess
sem þarf að grisja í skógum hér á
Íslandi. Það þarf að grisja á milli
tvö til þrjú þúsund hektara lands
ef vel ætti að vera,“ segir Þröst-
ur sem bætir við að til að kom-
ast yfir slíkt verkefni þurfi betri
tæki og tól. Ágætis byrjun væri
að fá skógarhöggsvél til landsins.
Þorsteinn Hannesson, sérfræð-
ingur hjá Elkem, segir að verk-
smiðjan á Grundartanga geti
notað allt að 35.000 tonn af timbri
í framleiðslu sinni ár hvert. Grisj-
unarviður frá Skógræktinni er
þar af um 1.200 til 1.500 tonn og
frá Sorpu fást sex til tuttugu þús-
und tonn af viðarkurli úr endur-
unnu timbri, en það magn er mjög
breytilegt á milli ára. Það sem
upp á vantar af timbri er flutt inn
frá Kanada.
„Notkun okkar á timbrinu
er þannig að því er blandað við
annað hráefni sem fer inn á ofn-
inn og umbreytist þar í viðar-
kol, og það er kolefnið sem nýtist
okkur. Timbrið er hlutlaust í til-
liti til kolefnislosunar, en annars
þyrfti að nýta kolefni sem graf-
ið er úr jörðu; kol, viðarkol eða
koks, sem er kolefniseldsneyti úr
kolum. Svo þessi leið er umhverf-
isvæn,“ segir Þorsteinn.
svavar@frettabladid.is
Flytja þúsundir trjáa
í brennsluofn Elkem
Skógrækt ríkisins flytur næstu vikur mikið magn af grisjunarvið til kísilmálm-
verksmiðju Elkem á Grundartanga. Viðurinn kemur frá sjö skógræktarsvæðum af
öllu landinu. Grisja þyrfti um þrjár milljónir trjáa á landinu ef vel ætti að vera.
HLAÐIÐ Á HAFURSÁ Á hvern bíl fara um 40 rúmmetrar, sem jafngildir 800 trjám. MYND/ÞRÖSTUREYSTEINSSON