Fréttablaðið - 27.05.2013, Side 14

Fréttablaðið - 27.05.2013, Side 14
27. maí 2013 MÁNUDAGUR| TÍMAMÓT | 14TÍMAMÓT Það er viðeigandi að þú hringir núna, ég sit einmitt á Mokka,“ segir Ari Sig- valdason þegar falast er eftir við- tali vegna sýningarinnar Mokkafólk sem opnuð var á föstudaginn. „Það er óhætt að segja að ég sé hér fastagestur og hafi verið síðastliðin 25 ár, þótt ég komi reyndar ekki á hverjum degi eins og sumir.“ Elstu myndirnar á sýningunni eru teknar 1988 og svo nokkuð reglulega síðan. Þarna má sjá ýmsa stamkúnna Mokka í gegnum tíðina eins og til dæmis Dag Sigurðarson, Sveinbjörn Beinteinsson og Ketil Larsen. „Þetta eru svarthvítar myndir og hér inni hefur ekkert breyst í 55 ár þannig að það er ómögulegt að segja hvenær einstakar myndir eru teknar,“ segir Ari. „Það er helst að maður sjái það á fatnaði fólks og hárgreiðslu. Það er hér til dæmis mynd af mér frá 1988 og ég er mjög „eitís“ á henni.“ Þú ert ekki með sítt að aftan samt. „Nei, ég klikkaði á því, hlýt að hafa verið í uppreisn,“ segir Ari og skellihlær. Segðu mér aðeins frá sjálfum þér. Hver ert þú? „Ég er menntaður stjórn- málafræðingur frá Kaupmannahafn- arháskóla en lengst af hef ég starfað á fjölmiðlum. Var lengi að vinna hjá RÚV, bæði útvarpinu og sjónvarpinu, sem fréttamaður. Á því góða ári 2007 stofnaði ég síðan ljósmyndagallerí, hið fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Síðan hef ég verið að reka það, taka myndir og gefa út bækur og svona hitt og þetta.“ En þú ert sem sagt ekki menntaður ljós- myndari? „Ég er sennilega einn mennt- aðasti ljósmyndari á Íslandi, bara ekki í því fagi.“ Hvernig kom þessi sýning til? „Mokka er sem sagt 55 ára og í tilefni af því kom upp þessi hugmynd um að sýna myndir sem allar eru teknar hér inni. Þetta eru ekkert endilega mynd- ir af þekktu fólki, þótt því bregði fyrir, meira svona tilraun til að fanga stemn- inguna á Mokka í gegnum árin.“ Sýningin verður opin á opnunartíma kaffihússins, frá 9.00 til 18.30, til 27. júní. fridrikab@frettabladid.is Mokka-kaffi hefur ekkert breyst í 55 ár Mokka-kaffi varð 55 ára á föstudaginn var. Af því tilefni var opnuð þar sýning á 15 myndum eft ir Ara Sigvaldason sem allar eru teknar inni á Mokka. Ari hefur verið fasta- gestur á Mokka í 25 ár en segist þó ekki vera þar daglega eins og sumir. EKKERT BREYTIST Á Mokka breytist ekki neitt nema fólkið sem sækir staðinn. Það eldist og tískan í fatnaði og hárgreiðslum breytist, segir Ari. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL AFSKAPLEGA „EITÍS“ Ari árið 1988. „Ég hef klikkað á því að vera með sítt að aftan,“ segir hann. „Hlýt að hafa verið í uppreisn.“ Þennan dag árið 1939 var Golden Gate-brúin á milli San Francisco og Marin-sýslu opnuð fyrir bílaumferð. Tveimur dögum áður höfðu um tvö hundruð manns farið yfir hana fótgangandi og á hjólaskautum. Brúin er rúmlega 2.700 metrar á lengd, 27 metrar á breidd og 227 metrar á hæð. Áður en hún var byggð var siglingarleiðin eina raunhæfa leiðin frá San Francisco yfir til Marin-sýslu. Ferjusiglingar á milli hófust um 1820 en áætlunarferðir hófust um 1840. Siglingarleiðin, sem tekur um tuttugu mínútur að fara, er hættuleg enda eru straumar í flóanum afar sterkir. Margir lögðu á sínum tíma hart að stjórnvöldum að byggja brú þar sem San Francisco var eina stóra borgin í Bandaríkjunum sem enn var háð ferjusiglingum á fjórða áratug síðustu aldar. Sjálfsmorð eru algeng á brúnni en hún er 79 metra yfir yfir- borði sjávar. Fyrsta sjálfsmorðið var framið nokkrum dögum eftir að brúin var opnuð en ekki er vitað hvað þau eru orðin mörg í heildina þar sem ekki eru alltaf vitni. ÞETTA GERÐIST 27. MAÍ 1939 Golden Gate-brúin opnuð fyrir umferð Perlur spænskrar tónlist- ar frá 19. öld til 21. aldar beint úr spænskri þjóðar- sál, svo sem dáðar þjóð- vísur í útsetningu Lorca, eru á efnisskrá Guðrúnar Jóhönnu Ólafsdóttur mezzó- sópransöngkonu og hinn- ar spænsku sveitar Sonor Ensemble í Hörpunni í kvöld. Einnig flytja þau nýtt verk eftir Daníel Bjarnason, Larkin Songs, sem er samið fyrir Guðrúnu Jóhönnu og útsett fyrir Sonor Ensemble. Tónleikarnir eru hluti af Listahátíð í Reykjavík. Spænska kammer sveitin Sonor Ensemble er skipuð virtum hljóð færaleikurum úr Þjóð ars in fón íu hljóm- sveit Spánar undir stjórn Luis Aguirre, sem er einn af reyndustu hljómsveitar- stjórum landsins. Hljóm- sveitin sér hæfir sig í flutn- ingi á  spænskri tónlist og hefur frum flutt fjölda verka eftir spænsk og suður amer- ísk tónskáld. Guðrún Jóhanna starfar á Spáni og hefur komið fram með Sonor Ensemble víða um heim og á tón leikunum í kvöld munu þau flytja mörg af þeim verkum sem yfir- leitt eru á efn isskrá þeirra á tónleikaferðalögum. Píanó ein leikari á  tón- leikunum er Sebastián Mar- iné, einn af fremstu píanó- leikurum og núlifandi tón skáldum Spánar. Stjórn- andi er Luis Aguirre. -gun Seiður frá Spáni og eitt íslenskt verk Nýtt verk eft ir Daníel Bjarnason, næturljóð af götum Madrídar og göldróttir sígauna- dansar hljóma í Norðurljósasal Hörpu í kvöld klukkan 20. GUÐRÚN JÓHANNA Syngur næturljóð af götum Madrídar og göldrótta sígaunadansa, ásamt nýju verki sem Daníel Bjarnason samdi fyrir hana. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA MERKISATBURÐIR 1746 Sett er tilskipun um húsvitjanir og skulu prestar húsvitja minnst tvisvar á ári. 1857 Settar eru reglur um að danskir embættismenn verði að standast íslenskupróf til að fá stöður á Íslandi. 1962 Sveitarstjórnarkosningar á Íslandi. 1981 Fjórir menn farast í flugslysi á Holtavörðuheiði og finnst flak vélarinnar ekki fyrr en 10. júní þrátt fyrir mikla leit. 1982 Ólafur Jóhann Ólafsson lýkur stúdentsprófi með hæstu einkunn sem gefin hefur verið (9,67) frá Menntaskólanum í Reykjavík. 1982 Davíð Oddsson tekur við starfi borgarstjóra í Reykjavík af Agli Skúla Ingibergssyni. 1982 Falklandseyjastríðið: Orrustan um Goose Green hefst. 1983 Hús verslunarinnar í Reykjavík er tekið í notkun. 1991 Landsbankinn yfirtekur rekstur Samvinnubankans. 2006 Sveitarstjórnarkosn- ingar eru haldnar á Íslandi. 2006 Jarðskjálfti af stærð- argráðunni 6,3 á Rich- ter verður á eyjunni Jövu í Indónesíu. Yfir 6.000 manns farast, 36 þúsund slasast og um ein og hálf milljón manns missir heim- ili sín. Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.