Fréttablaðið - 27.05.2013, Page 17
MÁLAÐ Í SUMAR
MÁNUDAGUR 27. MAÍ 2013
Vorið og sumarið nýta margir til að bera á pallinn, skjólveggi og annað timburverk,“ segir Einar Loftsson,
málarameistari í málningadeild Byko í
Breidd. Hann segir mikilvægt að fólk hugi
vel að viðhaldi á pöllum því þannig megi
koma í veg fyrir erfiðar og kostnaðarsam-
ar aðgerðir síðar.
Einar lýsir betur hvernig eigi að bera sig
að. „Ef um er að ræða nýjan pall þarf hann
að þorna í fjórar til sex vikur áður en nokk-
uð er gert. Þetta er vegna þess að viðurinn
er yfirleitt gagnvarinn sem þýðir að seltu-
pækli er þrýst inn í hann. Pallurinn þarf því
að þorna vel svo seltan fari úr. Eftir þetta er
slípað létt yfir pallinn, hann sópaður og
borinn á hann pallaolía með lit,“ lýsir Einar
og bendir á að liturinn sé mikilvægur enda
verji hann timbrið gegn sólarljósinu.
Pallaolían sem seld er í Byko er Pinotex
frá Sadolin í Danmörku og Kjörvari 12 frá
Málningu. Einar segir reynsluna af þessum
olíum afar góða enda hafi efnin verið lengi
á markaði.
Eftir að borið hefur verið á pallinn í
fyrsta sinn þarf að bera á hann reglulega
einu sinni á ári. „Þá þarf aðeins að þvo pall-
inn og bera eina umferð á,“ segir Einar en
annað á við þegar pallar eru gamlir og farn-
ir að grána vegna áhrifa frá útfjólubláum
geislum sólarinnar. „Þennan gráma
verður að fjarlægja til að tryggja góða
endingu,“ upplýsir Einar. Það sé gert með
því að bera pallahreinsi á viðinn. „Hann
þarf að liggja á í tiltekinn tíma, yfirleitt
fimmtán til þrjátíu mínútur. Síðan er við-
urinn skrúbbaður með stífum skrúbbi og
vatni. Hann er síðan látinn þorna í þrjá
til fjóra daga og loks borið á hann.“
Þjónustan í málningardeild-
inni er til fyrirmyndar. „Við
erum nokkrir sem höfum
unnið við þetta í fjöldamörg
ár og viðskiptavinir geta stól-
að á að koma ekki að tómum
kofanum hjá okkur þegar
kemur að ráðleggingum á
vali á málningu eða viðar-
vörn,“ segir Einar. Hann
bendir einnig á að verðið á
viðarvörn og annarri málningu hjá
Byko sé afar gott. „Við erum í mörg-
um tilfellum ódýrastir á markaðn-
um og leggjum metnað okkar í að
vera með gott verð og góða þjón-
ustu.“
Nánari upplýsingar um Byko
má finna á www.byko.is
Nú er tíminn til að bera á pallinn
Málningardeild Byko býður upp á gott verð og góða þjónustu. Þrautreyndir starfsmenn veita viðskiptavinum góð ráð um val á efni og
hvernig best sé að bera sig að við þau verkefni sem fyrir liggja. Um þessar mundir huga margir að viðhaldi á pöllum og öðru
timburverki. Byko býður upp á úrval af viðarvörn og réttu tólunum og tækjunum til verksins.
„Vorið og sumarið nýta margir til að bera á pallinn, skjólveggi og annað timburverk,“ segir Einar Loftsson, málarameistari í málningardeild Byko í Breidd. MYND/ANTON