Fréttablaðið - 27.05.2013, Qupperneq 36
FASTEIGNIR.IS18
Björn Karlsson, forstjóri Mannvirkja-
stofnunar, og Grétar Jónasson,
framkvæmdastjóri Félags fasteignasala,
hampa handbók um eldvarnir heim-
ilisins.
Félag fasteignasala hefur tekið
að sér að dreifa fræðsluefni
um eldvarnir til félagsmanna
sinna og er gert ráð fyrir
að handbók um eldvarnir
heimilisins fylgi hverjum
gerðum kaupsamningi á
næstu tveimur árum.
G era má ráð fyrir að um fimm þúsund kaupendur húsnæðis fái efnið afhent
með þessum hætti á árinu.
„Það er okkur mikil ánægja að
geta tekið þátt í þessu mikilvæga
verkefni. Þegar fólk kaupir hús-
næði er gott tilefni að huga að
eldvörnum og tryggja að á nýja
heimilinu séu nægilega margir
reykskynjarar og annar eldvarna-
búnaður,“ segir Grétar Jónasson,
framkvæmdastjóri Félags fast-
eignasala.
Grétar og Björn Karlsson,
forstjóri Mannvirkjastofnun-
ar, skrifuðu undir samkomulag
þessa efnis nýverið. Í því segir
meðal annars að aðilar séu sam-
mála um mikilvægi þess að auka
eldvarnir á heimilum til að draga
úr líkum á tjóni á lífi, heilsu og
eignum.
Í handbók heimilisins um eld-
varnir er að finna upplýsing-
ar og ráð um nánast hvaðeina
sem snertir eldvarnir á heimil-
um. Fjallað er um reykskynjara,
flóttaáætlun, slökkvibúnað, raf-
magn og rafmagnstæki, gas, eld
og eldfim efni, brunahólfun, eld-
varnir í sameign fjölbýlishúsa og
brunatryggingar. Eldvarnabanda-
lagið gefur efnið út og stend-
ur straum af kostnaði en það er
samstarfsvettvangur um aukn-
ar eldvarnir heimilanna. Aðild
að því eiga Eignarhaldsfélagið
Brunabótafélag Íslands, Félag
slökkviliðsstjóra, Landssam-
band slökkviliðs- og sjúkraflutn-
ingamanna, Mannvirkjastofnun,
Sjóvá-Almennar tryggingar hf.,
Slysavarnafélagið Landsbjörg,
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins,
TM hf., VÍS hf. og Vörður trygg-
ingar hf.
Taka þátt
í eldvarna-
fræðslu
Save the Children á Íslandi
TIL SÖLU
Tilboð óskast í fasteignirnar Víðines á Kjalarnesi og Brúarholt II
(Efri Brú) í Grímsnes- og Grafningshreppi og Iðndal 2 í Vogum.
15158 – Víðines – Kjalarnesi
- fyrrum hjúkrunarheimili.
Um er að ræða hjúkrunarheimili,
skrifstofubyggingu, eldhús ásamt ten-
gibyggingum og talin vera 2.265,8 m²
skv. Þjóðskrá Íslands - Fasteignaskrá.
Húsin standa á samtals 16.703 m²
leigulóð. Húseignirnar eru til sýnis í
samráði við Ríkiskaup í síma 530 1400.
14969 – Brúarholt 2 (Efri Brú) -
Grímsnes- og Grafningshreppi.
Um er að ræða gisti- og þjónus-
tumiðstöð ásamt fleiri íbúðarhúsum
og útihúsum. Áætluð stærð húsanna
er um 1.400 m² skv. Þjóðskrá Íslands
– Fasteignaskrá. Húsin standa á 36 ha
landsspildu. Nánari upplýsingar gefur
Louis Pétursson í síma 482 2147 og
892 9825 og hjá Ríkiskaupum í síma
530 1400.
14879 – Iðndalur 2 – Vogum –
eignarhluti Ríkissjóðs Íslands.
Húsnæðið er 124,3 m² skv. Þjóðskrá
Íslands - Fasteignaskrá. Húsnæðið er
til sýnis í samráði við Sveitarfélagið
Voga í síma 440 6200 og Ríkiskaup í
síma 530 1400.
Tilboðseyðublöð liggja frammi hjá Ríkiskaupum ásamt reglum um frágang
og útfyllingu á tilboðseyðublaði.
Gögnin eru aðgengileg á heimasíðu Ríkiskaupa
www.rikiskaup.is.
Tilboð skulu berast til Ríkiskaupa, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík fyrir
kl. 10:00 þann 11. júní 2013 þar sem þau verða opnuð í viðurvist bjóðenda
er þess óska.
TIL SÖLU
Tilboð óskast í ríkisjörðina
Hlíðarberg í Hornafirði.
15471 – Hlíðarberg í Hornafirði, útihús og jörðin sem talin er vera
17 hektarar, eigandi Ríkissjóður Íslands.
Landið er tvískipt samkvæmt afsali frá árinu 1998 þ.e. 10 ha og 7 ha.
Um er að ræða hesthús 59,2 m² byggt 1962, hlaða 76,5 m² byggð 1963,
andahús 987,8 m² byggt 1984, hesthús 344,5 m² byggt 1983 og ali-
fuglahús 83,9 m² byggt 1986 og er brunabótamat allrar eignarinnar kr.
57.470.000,- og fasteignamat er kr. 13.134.000,- skv. Þjóðskrá Íslands
- fasteignaskrá. Andahúsið var endurgert árið 2005 og voru veggir og
þak einangruð, húsið stálklætt að innan og gólf steypt. Útihúsin eru í
misjöfnu ásigkomulagi, að hluta er fyrirsjáanlegt umtalsvert viðhald.
Ekkert íbúðarhús fylgir jörðinni.
Húseignin verður til sýnis í samráði við Reyni Sigursteinsson
í síma 478 1015.
Tilboðseyðublöð liggja frammi hjá ofangreindum aðila og hjá
Ríkiskaupum ásamt reglum um frágang og útfyllingu á tilboðs-
eyðublaði.
Gögnin eru einnig aðgengileg á heimasíðu Ríkiskaupa
www.rikiskaup.is
Tilboð skulu berast Ríkiskaupum, Borgartúni 7, Reykjavík fyrir kl. 10.00
þann 11. júní 2013 þar sem þau verða opnuð í viðurvist bjóðenda er
þess óska.
TIL SÖLU
Tilboð óskast í bæjarhúsin á ríkisjörðinni
Syðri - Bakka í Hörgársveit.
15438 – Syðri Bakki í
Hörgársveit, íbúðarhús og
útihús á 11090 m² leigulóð,
sambyggt að hluta, eigandi
Ríkissjóður Íslands.
Um er að ræða íbúðarhús
146,2 m² byggt 1952 og
sambyggt því alifuglahús
58,3 m² byggt 1967, og véla-/verkfærageymsla 65,7 m² byggt 1959.
Sambyggt fjárhús með áburðarkjallara 214,2 m² byggt 1982 og hlaða
78,3 m² byggð 1982 og er brunabótamat eignarinnar kr. 44.990.000,- og
fasteignamat er kr. 11.482.000,- skv. Þjóðskrá Íslands - fasteignaskrá.
Húsin þarfnast mikils viðhalds eða jafnvel niðurrifs.
Húseignin verður til sýnis í samráði við Þórð Þórðarson
í síma 898 1636.
Tilboðseyðublöð liggja frammi hjá ofangreindum aðila og hjá Ríkis-
kaupum ásamt reglum um frágang og útfyllingu á tilboðseyðublaði.
Gögnin eru einnig aðgengileg á heimasíðu Ríkiskaupa
www.rikiskaup.is
Tilboð skulu berast Ríkiskaupum, Borgartúni 7, Reykjavík fyrir kl. 10.00
þann 11. júní 2013 þar sem þau verða opnuð í viðurvist bjóðenda er
þess óska.
TIL SÖLU
Tilboð óskast í tvö 25m² Sumarhús / gestahús
til flutnings, staðsett á lóð Fjölbrautaskóla
Suðurlands á Selfossi og byggt var af nemendum
og kennurum Fsu síðastliðið skólaár.
Sala. 15473. Um er að ræða 2
timburhús, 25,m2 að grunnfleti.
Að utan er vatnsklæðning,
grunnfúavarin og með litlausri
yfirborðsviðarvörn. Bárujárn er
á þaki en kjöl, áfellur og rennur
vantar. Kjölurinn og áfellurnar
fylgja með ) Útihurð er úr
oregon pine, gluggar eru úr
furu. Að innan er húsið fulleinangrað, rakavarnarlag frágengið sem og
rafmagnsgrind og spónaplötugólf. Húsið verður til sýnis í samráði við
Jón S. Gunnarsson í síma 899 2802, Svan Ingvarsson í síma 893 2092,
og Ríkiskaup í síma 530 1400
Tilboðseyðublöð og byggingarlýsing liggja frammi á sama stað og í
afgreiðslu Ríkiskaupa, Borgartúni 7, 105 Reykjavík.
Nánari upplýsingar og myndir á heimasíðu Ríkiskaupa,
http://www.rikiskaup.is/.
Tilboð skulu berast Ríkiskaupum fyrir kl. 10.00 þann 11. júní 2013 þar
sem þau verða opnuð í viðurvist viðstaddra bjóðenda er þess óska.
gretar@domusnova.is
Grétar Hannesson Hdl.,
sveinn@domusnova.is
Sími: 899 8546
Vélfræðingur / Sölufulltrúi
Sveinn G. Guðmundsson Vegna mikillar sölu vantar
eignir á skrá, frítt sölumat.
Hringdu núna 899 8546
Löggiltur fasteignasali.
Opið hús mánudaginn 27. maí kl. 17,30 - 18,00.
Glæsileg 2. herbergja útsýnisíbúð á 10. hæð.
Að Rjúpnasölum 14, íbúð 1001.