Fréttablaðið - 27.05.2013, Page 46
27. maí 2013 MÁNUDAGUR| MENNING | 18
BAKÞANKAR
Sögu
Garðarsdóttur
Það er margt sem ég óttast í lífinu. Ég óttast stöðugt að fá raflost nálægt inn-
stungum og brauðristum, ég held mig fjarri
fólki sem spyr mig til vegar, ég hef áhyggj-
ur af því að pabbi minn komist að því að ég
sprengdi dekkið á hjólinu hans, aftur, og
svo óttast ég að verða miðaldra kona.
REYNDAR er óttinn við miðellina bland-
aður tilhlökkun því aldrinum fylgir held
ég mikil sátt við sjálfa sig og hispurs-
leysi gagnvart tískustraumum ýmsum og
almennum kröfum um svalheit. Þannig veit
ég ekkert fegurra en staðalímynd mína um
hina miðaldra konu sem klædd þæfðum ull-
arserk dansar taktlaust um stofuna með
hrosshársnælu í barminum á meðan
menningartengdur útvarpsþáttur
ómar í bakgrunninum, segir óvið-
eigandi brandara við matarborðið og
gefur jakkafataklæddum stórmennum
í sjónvarpinu fingurinn.
RAUNVERULEGUR ótti minn
er við afstöðu samfélagsins til
miðaldra kvenna. Fáum virð-
ist sýnd eins mikil vanvirðing
og vantraust og þeim. Þann-
ig hlakka ég ekkert til að vera
umsvifalaust í áhættuhóp fyrir
uppsagnir ef vinnustaður minn
stendur í ströngu eða sífellt sett
undir nýútskrifað ungt fólk sem
hefur slétta húðina eina fram yfir
mig. Miðaldra konur eru auk þess
víðs fjarri á sjónvarpsskjáum, í
kvikmyndum eða á fjölum leikhúsa
og þá sjaldan sem ég sæi kynsystur mínar
og jafnöldrur í leiknu efni væru það aðal-
lega nornir, áhyggjufullar mæður eða kona
sem glímir grátbólgin við alvarlegan sjúk-
dóm.
ÞETTA er frekar leiðinlegt því ef eitthvað
enn ömurlegra gerist ekki, eins og ég kafni
skyndilega á pönnupitsu, bíða mín óhjá-
kvæmilega þau örlög að verða miðaldra.
Þannig munu líkurnar á því að ég verði
ráðherra snarminnka, ég verð kynferðis-
lega ósýnileg og Egill Helgason mun aldrei
spyrja mig hvað mér finnst um nokkurn
skapaðan hlut. Því eins gaman og það er að
vera ungur í samfélagi sem byggir á æsku-
dýrkun má ekki gleyma því að tíminn líður.
Í nýjum sáttmála strákastjórnarinnar er
kveðið á um „að rækta með þjóðinni þær
dyggðir sem best tryggja farsæld og jafn-
ræði“. Innan þessa ofuralmenna orðalags
hljóta að rúmast einhvers konar björgunar-
aðgerðir fyrir konur á miðjum aldri. Í þeim
anda langar mig að biðla til ríkistjórnar-
innar, sem á víst ógeðslega mikinn pening
einhvers staðar, að hella sér út í öflugt for-
varnarstarf gegn kvenlægum miðellifor-
dómum. Menntamálaráðuneytið getur hrint
af stað herferð sem mun auka virðingu
grunnskólanema fyrir keramikkennslu og
glerlist, ýta undir áhuga ungs fólks fyrir
skipulögðu kórastarfi og gera textana við
lög Kims Larsen að skyldulærdómi fyrir
fermingarbörn. Því hvað er jú farsælla og
jafnréttara en að fá að eldast óttalaus með
reisn?
Vill einhver elska 49 ára gamla konu?
SIGHTSEERS (16) 18:00, 20:00, 22:00
IN MEMORIAM? (L) 18:00
HANNAH ARENDT (12) 17:50
THE HUNT (JAGTEN) (12) 20:00, 22:10
ON THE ROAD (16) 20:00
DÁVALDURINN (16) 22:20
HANNAH ARENDTS I G H T S E E R S IN MEMORIAM? JAGTEN
EFTIR
ÓMAR RAGNARSSON
MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR OG KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS
Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
NEMAR, ÖRYRKJAR, ELDRI BORGARAR: 25% AFSLÁTTUR GEGN FRAMVÍSUN SKÍRTEINIS!
BÍÓ PARADÍS KLÚBBURINN: bioparadis.is/klubburinn
FAST & FURIOUS 5.20, 8, 10.40
STAR TREK 3D 5.20, 8, 10.40
MAMA 8
OBLIVION 5.30
EIN STÆRSTA SPENNUMYND SUMARSINS
T.K. - Kvikmyndir.isH.V.A. - FBL
T.V. - BíóvefurinnH.K. - Monitor
5%
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
AKUREYRI
EMPIRE
FILM
T.V. - BÍÓVEFURINN
THE GUARDIAN
H.K. - MONITOR
T.V. - BÍÓVEFURINN
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR
ALL ROADS LEAD TO THIS
EIN STÆRSTA SPENNUMYND SUMARSINS!
5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
FAST & THE FURIOUS 6 KL. 5.40 - 8 - 10.20 12
MAMA KL. 10.20 16 / OBLIVION KL. 8 16
NUMBERS STATION KL. 6 12
FAST & FURIOUS 6 KL. 5 - 8 - 10.45 12
FAST & FURIOUS 6 LÚXUS KL. 5 - 8 - 10.45 12
STAR TREK 3D KL. 5 - 8 - 10.45 12
STAR TREK KL. 8 12
THE CALL KL. 10.45 16
EVIL DEAD KL. 8 - 10.10 18
THE CROODS 3D ÍSL. TAL KL. 3.30 - 5.45 L
THE CROODS 2D ÍSL.TAL KL. 3.30 - 5.45 L
LA DONNA DEL LAGO ÓPERA KL. 5.45 L
FAST & FURIOUS KL. 6 - 9 12
THE GREAT GATSBY 3D ÓTEXTAÐ KL. 10 12
THE GREAT GATSBY KL. 6 - 9 12
PLACE BEYOND THE PINES KL. 9 12
FALSKUR FUGL KL. 6 14
Gleði og glaumur í Hörpu
GLÆSILEG Leikkonan Elma Stefanía Ágústdóttir lifði sig inn í hlutverk sitt á
tónleikunum í glæsilegum búning sem Hrafnhildur Hólmgeirsdóttir á heiðurinn af.
MYND/ÁSA OTTESEN
ÚTSKRIFTARNEMINN Vala Gestsdóttir
ásamt kærasta sínum Einari Björgvin
Davíðssyni.
ALLIR MÆTTIR Sigurður Guðjónsson, Arnar Guðjónsson
og Hildur Konráðsdóttir ásamt börnunum Flóka, Svövu og
Konráði.
HÓLMGEIRSSYSTUR Þær Bára, Sigrún og Hrafnhildur létu
ekki vanta.
Fjölmennt var í Hörpu á laugar-
daginn á útskriftarsýningu Völu
Gestsdóttur. Vala útskrifast úr
meistaranáminu Sköpun, miðlun
og frumkvöðlastarf frá Listahá-
skóla Íslands. Sýningin ber heitið
Heimur hvelanna og er byggð
á ljóði eftir Þórunni Erlu Valdi-
marsdóttur. Vala fékk til liðs við
sig átta hljóðfæraleikara og leik-
konuna Elmu Stefaníu Ágústs-
dóttur sem fluttu eins konar
gjörning við mikinn fögnuð
áhorfenda.